Spá verðhruni 4. júlí 2010 18:30
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu á eftir að hrynja ef spár sérfræðinga Landsbankans ganga eftir. Sömu spár voru notaðar til að réttlæta allt að 75 prósent afslátt á fasteignalánum þegar þau voru færð úr gamla bankanum í þann nýja. Þegar Nýi Landsbankinn tók yfir fasteignalán gamla bankans voru stuðst við nokkrar forsendur við verðmatið á lánasafninu. Ein helsta forsendan, samkvæmt heimildum fréttastofu voru spár bankans um fasteignaverð á næstum árum. Samkvæmt þessum spám fer fasteignaverð niður í 150 krónur á fermetrann en fermetraverðið er nú um 220 þúsund krónur að meðaltali. Markaðurinn á því enn töluvert í botninn ef marka spá Landsbankans. Hafa ber í huga að það var nýja bankanum í hag að spá svo lágu verði til þess að geta rökstutt afslátt á lánasafninu. Tökum dæmi um hvernig þessi spá bankans auðveldaði honum að fá fasteignalán á afslætti. Hjón sem skulda bankanum eftir að hafa keypt 100 fermetra íbúð á 40 milljónir í góðærinu. Gamli bankinn lánaði 70% af kaupverðinu eða 28 milljónir sem urðu að 56 milljónum við hrun krónunnar Nýi bankinn verðmetur fermetrann í íbúð hjónanna á 150 þúsund +/- 20 þúsund. Í þessu tilfelli 170 þúsund vegna þess að þetta er nýleg og vel staðsett eign. Bankinn tekur svo 80% af þessu sem gerir um 136 þúsund krónur á fermetrann. Þar sem þetta er 100 fermetra íbúð kaupir Nýi Landsbankinn því lán hjónanna á 13,6 milljónir á meðan höfuðstóllinn stendur í 56 milljónum. 76% skuldarinnar er afskrifuð við færsluna úr gamla bankanum í þann nýja. Það eru 42 milljónir. Það skal tekið fram að þetta er einfölduð mynd og Landsbankinn segir að fleiri forsendur hafi komið til þegar lánasafn gamla bankans var tekið yfir. Bankinn segist til að mynda hafa tekið safnið yfir á 33% afslætti.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Fleiri fréttir Öll áhöfnin handtekin Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Sjá meira