Milljónalaun sögð of góð fyrir bæjarstjóra 5. júlí 2010 03:30 Bæjarstjórn hefur endurnýjað ráðningarsamning við Aldísi Hafsteinsdóttur bæjarstjóra.
Minnihluti A-listans í bæjarstjórn Hveragerðis segir laun Aldísar Hafsteinsdóttur bæjarstjóra vera of há. Nýr ráðningarsamningur við Aldísi var ræddur á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag. Minnihlutinn benti á að samkvæmt honum yrðu laun og hlunnindi Aldísar um 1.050.000 krónur á mánuði. Minnihlutinn kveðst ekki gera athugasemdir við 487 þúsund króna grunnlaun bæjarstjórans en segir honum ætluð önnur réttindi og starfskjör sem séu umfram það sem aðrir starfsmenn bæjarins fái. „Sem er fullkomlega óeðlilegt og mismunun við aðra starfsmenn,“ segir í bókun minnihlutans. Aldís Hafsteinsdóttir segir ráðningarsamninginn nú sambærilegan við fyrri samning. Breytingin sé aðallega sú að nú greiði bærinn ekki bifreið fyrir bæjarstjórann heldur borgi aksturspeninga. Þetta muni bærinn væntanlega þurfa að greiða minna í bifreiðakostnað bæjarstjóra en áður. Þess utan lækki hún um tvo launaflokka. Gagnrýni fulltrúa A-listans beinist að því að bæjarstjóri fái greiddar 72 klukkustundir í fasta yfirvinnu alla mánuði ársins, greiddan bílastyrk fyrir 1.300 kílómetra akstur á mánuði og skuli eiga rétt á sex mánaða biðlaunum. Sérstaklega óeðlilegt sé að bæjarstjóri fái yfirvinnu og akstursgreiðslur á orlofstíma. Meirihluti D-listans sagði gagnrýni A-listans ranga og misvísandi og felldi tillögu minnihlutans um að bæjarstjórinn fengi aðeins greitt fyrir þá yfirvinnu sem hann vinni eða þá að taka yfirvinnutíma sem frí. Sömuleiðis var fellt að hann fengi greiddan bílastyrk í samræmi við akstursbók eins og aðrir bæjarstarfsmenn og að biðlaunarétturinn yrði þrír mánuðir í stað sex mánaða. „Það hefur verið könnun á kjörum sveitarstjóra á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem sýnir að sveitarstjórar í Hveragerði hafa verið í hópi lægst launuðu sveitarstjóra í sveitarfélögum af okkar stærðargráðu,“ segir Aldís sem gefur lítið fyrir þá tillögu minnihlutans að hún taki yfirvinnu út í fríum. „Ég held að flestir sem þekkja störf bæjarstjóra viti að hann er alltaf á vaktinni og það væri fátt um vinnudaga ef ég ætti að taka yfirvinnuna út í fríum.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Fleiri fréttir Öll áhöfnin handtekin Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Sjá meira