Innlent

Bílaumboð getur ekki selt notaða bíla

Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar. Mynd/E.Ól
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar. Mynd/E.Ól
Brimborg, eitt stærsta bílaumboð Íslands með um 200 starfsmenn, á enga notaða bíla til að selja fólki. Bílastæðið hjá fyrirtækinu er tómt en allir bílarnir voru færðir í bílaleigu fyrirtækisins. Forstjórinn vandar markaðsátakinu Inspired by Iceland ekki kveðjurnar.

Þegar litið er yfir bílastæði fyrir notuðu bílana hjá Brimborg er það tómt. Þegar stjórnendur fyrirtækisins sáu fram á litla bílasölu eftir bankahrun var ákveðið að stofna bílaleigu, sem orðin sú þriðja stærsta á landinu á 16 mánuðum með sex hundruð bíla í útleigu. Yfir mesta anna tímann í bílaleigunni voru notuðu bílarnir færðir yfir til bílaleigunnar.

„Akkúrat í augnablikinu þá er enginn bíll til sölu. Þeir eru nánast allir í útleigu," segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.

Þetta stendur þó vonandi til bóta. „Við erum að bæta við 165 nýjum bílum og getum vonandi fært eitthvað af notuðu bílunum í söluna aftur nema það aukist enn frekar í leigunni."

Agli líst vel á ferðasumarið og segir að júní hafi verið frábær hjá bílaleigunni. Hann segir að ekki hafi verið mikið um afpantanir vegna gossins en þó var verra þegar það var ekki flogið með kúnnana til Íslands.

Rétt er að taka fram að fréttastofa sagði frá því að í gær að bílaleigan Hertz skilaði hundrað af tæplega fjögur hundruð bifreiðum sem félagið keypti af Toyota. Pantanirnar höfðu dregist saman um fimmtung milli ára.

Óánægður með Inspired by Iceland

Egill er ósáttur með markaðsátakið Inspired by Iceland sem stjórnvöld stýrðu. Hann segir slíkt átak þurfi betri undirbúning og segir að það höfði ekki til þeirra sem ekki koma til Íslands, sem er fólk á miðjum aldri og eldra.

„Við hefðum átt að setja okkur tveggja ára markmið en ekki reyna að redda einhverju ferðasumri. Við finnum til dæmis engan mun á bókunum eftir átakið og fyrir átakið," segir Egill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×