Innlent

500 milljónum veitt til átaksverkefna í atvinnumálum í Reykjavík

Borgarráð samþykkti tillögur nýs meirihluta borgarstjórnar að breytingum á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á aukafundi sínum rétt í þessu.

Þær fela í sér breytta forgangsröðun þannig að 500 milljónum króna verður nú veitt í margvísleg mannaflsfrek verkefni víðs vegar um borgina.

Samkvæmt mati Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar þýðir þetta að allt að 150 manns geti fengið vinnu til áramóta.

Áðurnefndur hálfur milljarður sem annars hefði verið varið til uppkaupa á eignum bætist við framkvæmdir og viðhaldsverkefni sem þegar voru á áætlun auk 150 milljóna króna sem ætlaðar voru til sérstaks atvinnuátaks í samvinnu við Vinnumálastofnun. Alls verður framkvæmt á vegum Reykjavíkurborgar fyrir 6,5 milljarða í ár og eru framkvæmdir fyrirtækja borgarinnar þá ekki meðtalin.

250 milljónum króna verður varið í opin leiksvæði, græn svæði og endurgerð göngustíga. Nauðsynlegu viðhaldi í ýmsum skólum og leikskólum verður flýtt og sérstök áhersla verður lögð á framkvæmdir í Breiðholtshverfi.

Samkvæmt tilkynningu frá borginni þá er rétt að taka fram að ekki er um viðbótarfjármagn að ræða heldur tilflutning verkefna innan framkvæmdaáætlunar.

Meginbreytingin felst í því að lagt er til að áætlað fjármagn til kaupa á eignum í tengslum við skipulagsbreytingar verði nýtt í mannaflsfrekar framkvæmdir.

Meðal verkefna sem ráðist verður í er endurgerð göngu- og hjólaleiða og leiksvæða, viðhald á húsum í eigu borgarinnar s.s. grunnskólum og leikskólum o.fl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×