Grjótkastarinn íhugar að keyra inn á Alþingi 5. júlí 2010 14:30 Aðalheiður Gunnlaugsdóttir stendur fyrir framan bankann. Hópur af lögreglumönnum sést fyrir aftan hana en þeir vönduðu henni ekki kveðjurnar. „
Það er ekki þér að þakka að við fengum ekki grjótið í andlitið," hreytti lögreglumaður í Aðalheiði Gunnlaugsdóttur þegar blaðamaður ræddi við hana fyrir utan Seðlabankann í hádeginu í dag. Aðalheiður játaði að hafa kastað grjóti í áttina að lögreglunni en minnstu munaði að það hefði farið í höfuðið á einum lögreglumanninum sem blaðamaður ræddi við. Aðalheiður svaraði engu þegar lögreglumennirnir gengu framhjá henni. „Ég miðaði nú á þakið á Seðlabankanum, ég dreif bara ekki," sagði Aðalheiður um grjótkastið en tveir lögreglumenn ræddu við hana eftir mótmælin og tóku niður persónuupplýsingar hennar. Ekki er ólíklegt að hún verði kærð fyrir brot gegn valdstjórninni. Sjálf sagði Aðalheiður að grjótkastið hefði verið skilaboð til stjórnvalda þegar lögreglan hafði afskipti af henni. Í samtali við blaðamann sagðist hún eiga í mjög erfiðri fjárhagsstöðu þessa daganna. „Ég skulda um tíu milljónir í bílalánum," sagði Aðalheiður en aðspurð segir hún gengisdóminn, sem féll á dögunum, ekki hafa haft mikil áhrif enn sem komið er. Hún er ósátt við tilmæli Seðlabankans og FME um að reikna skuli lánin út frá seðlabankavöxtunum. „Til hvers hafa Hæstarétt," spurði Aðalheiður sem var einn af þeim fjögur hundruð mótmælenda sem tóku stöðu fyrir utan Seðlabankann og börðu á potta og pönnur í hádeginu í dag. „Annars hef ég skrifað það að ég ætla að keyra inn á Alþingi," segir Aðalheiður sem sér ekki margar lausnir í sínu máli þrátt fyrir gengisdóminn. Aðalheiður var ekki handtekin vegna málsins en einn mótmælandi var handtekinn fyrir að óhlýðnast tilmælum lögreglunnar. Þá lenti tónlistarkonan Ellen Kristjánsdóttir í átökum við lögregluna. Hún þurfti að leita sér aðhlynningar eftir átökin.
Tengdar fréttir Miðaldra kona grýtti lögreglumenn Grjóti var kastað í átt að lögreglunni á mótmælunum við Seðlabankann nú fyrir skömmu. Kona á miðjum aldri játaði að hafa kastað steininum og sagði það hennar skilaboð til stjórnvalda. Lögreglan hefur yfirgefið vettvanginn. 5. júlí 2010 14:05 Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Miðaldra kona grýtti lögreglumenn Grjóti var kastað í átt að lögreglunni á mótmælunum við Seðlabankann nú fyrir skömmu. Kona á miðjum aldri játaði að hafa kastað steininum og sagði það hennar skilaboð til stjórnvalda. Lögreglan hefur yfirgefið vettvanginn. 5. júlí 2010 14:05