Innlent

Enginn framboðslisti í Reykhólahreppi

SB skrifar
Óskar Steingrímsson, sveitastjóri Reykhólahrepps.
Óskar Steingrímsson, sveitastjóri Reykhólahrepps.

Ekki hefur enn borist framboðslisti til hreppsnefndarkjörs í Reykhólahreppi. Skilafrestur rann út á hádegi í gær. Endurtaka þurfti sveitastjórnarkosningarnar í hreppnum þegar gleymdist að senda upplýsingar um kosningarnar á íbúa í Flatey.

Í viðtali við Vísi viðurkenndi Óskar Steingrímsson, sveitastjóri Reykhólahrepps, að honum hefðu orðið mistök á þegar hann sendi bréf til íbúa Flateyjar of seint af stað. „Þetta eru jú mistök og það getur vel verið að hægt sé að skrifa þau á mig,“ sagði Óskar.

Halldór D. Gunnarsson, formaður kjörstjórnar, segir menn nú bíða fram á hádegið eftir því hvort framboðslisti líti dagsins ljós. „Mér hefur verið sagt að þegar enginn eða aðeins einn listi berst kjörstjórn framlengist fresturinn. En ég reikna ekki með því að það komi inn lista. Hér hafa ekki verið framboðslistar í mörg ár."

Kosningarnar til sveitastjórnar verða haldnar 24. júlí. Þegar enginn framboðslisti berst eru haldnar óbundnar persónukosningar þar sem allir í hreppnum eru kjöri. „Það eru allir í framboði nema þeir sem biðjast undan kosningu," segir Halldór sem bindur vonir við að kosningarnar nú gangi snuðrulaust fyrir sig. „Já, það er ekkert gaman að standa í þessu aftur og aftur."




Tengdar fréttir

Sveitastjóri blæs á lygasögur

Gengið verður til kosninga í Reykhólahreppi þann 24. júlí næstkomandi. Endurtaka þarf kosningarnar vegna mistaka sveitastjórans en það láðist að senda íbúum Flateyjar upplýsingar um sveitastjórnarkosningarnar á dögunum. Sveitastjórinn blæs á sögur þess efnis að hann hafi þegar sótt um aðra sveitastjórastöðu.

Íbúi Flateyjar kærði kosningarnar

Endurtaka þarf sveitarstjórnarkosningar í Reykhólahreppi þar sem nefnd, skipuð af sýslumanninum á Patreksfirði, hefur úrskurðað kosningarnar ógildar. Samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar lét kjörstjórn hjá líða að kynna komandi sveitarstjórnarkosningar og fyrirkomulag þeirra fyrir íbúum eyja á Breiðafirði. Íbúi í Flatey kærði framkvæmd kosninganna en þar eru sjö



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×