Fjölmörg atriði standa enn út af borðinu 4. júlí 2010 12:19
Fjölmörg atriði standa enn út af borðinu í viðræðum um Icesave málið en samninganefnd íslenskra stjórnvalda fundaði fyrir helgi með þeim bresku og hollensku um framhald viðræðna. Stjórnarandstöðunni er haldið upplýstri um gang mála. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, sendi í lok maí áminningarbréf til íslenskra stjórnvalda þar sem fram kom að Ísland væri skuldbundið til að greiða lágmarkstryggingu á Icesave reikningum Landsbankans. Stjórnvöld fengu tveggja mánaða frest til að svara áminningarbréfinu og rennur fresturinn því út í lok þessa mánaðar. Fallist ESA ekki á rök Íslands í málinu eða telur svarið ekki fullnægjandi gæti málið endað fyrir EFTA dómstólnum. Fjármálaráðherra hefur sagt að stjórnvöld muni taka til varna vegna áminningar ESA. Vænlegast sé þó að ljúka Icesave málinu við samningaborðið, að því gefnu að ásættanleg niðurstaða fáist - ákveðin áhætta felist í því ef málið fer fyrir EFTA dómstólinn. Viðræður við Breta og Hollendinga um lausn málsins eru nýhafnar eftir langt hlé en samninganefnd Íslands fundaði með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda í Reykjavík fyrir helgi. Umræddir fundir voru fyrst og fremst til að skiptast á upplýsingum og undirbúa frekari viðræður. Samkvæmt heimildum fréttastofu standa enn fjölmörg atriði út af í viðræðunum. Búist er við því að fjármálaráðherra upplýsi stjórnarandstöðuna um gang mála í Icesave málinu í vikunni.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Erlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Fleiri fréttir Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Sjá meira