Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hættir útgerð vegna veiðibanns ráðherra „Þetta þýðir einfaldlega að mín heimamið eru horfin með öllu og við þurfum að hætta útgerð,“ segir Ómar V. Karlsson, útgerðarmaður á Hvammstanga, sem gerir út dragnótarbátinn Hörpu HU. 3.6.2010 07:00
Betri karfaveiði en síðustu ár Aflabrögð hafa verið mjög góð á úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg undanfarnar vikur. Skip HB Granda hafa veitt vel og má heita að full vinnsla hafi verið um borð í skipunum frá fyrsta degi vertíðarinnar, eins og fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. 3.6.2010 07:00
Meirihluti myndaður í Grindavík Framsóknar- og sjálfstæðismenn í Grindavík mynduðu meirihluta í gærkvöldi. Í yfirlýsingu er því heitið að starfa saman í fullum trúnaði og hafa hagsmuni allra Grindvíkinga að leiðarljósi. Þá segjast oddvitar flokkanna vilja eiga gott samstarf við alla kjörna bæjarfulltrúa þar sem sjónarmið allra flokka eigi greiðan aðgang. Starf bæjarstjóra verður auglýst. 3.6.2010 06:54
Þeir skutu á sofandi fólk „Þeir skutu á sofandi fólk,“ segir sænski rithöfundurinn Henning Mankell, höfundur bókanna um lögregluforingjann Wallander. „Okkur var rænt.“ 3.6.2010 06:45
Enginn asi í stóru bæjarfélögunum Viðræður fulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur héldu áfram í gær. Ágætur gangur mun vera í viðræðunum en menn segjast þó ætla að fara sér í engu óðslega. 3.6.2010 06:30
Vændiskaupendur í felum Aðeins einn sakborningur í vændiskaupamálinu svonefnda mætti í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar mál á hendur ellefu meintum vændiskaupendum voru þingfest í gær. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins biðu einhverjir hinna sakborninganna í nágrenni dómhússins, þar sem verjendur þeirra höfðu gert þeim viðvart um að fjölmiðlar væru mættir í héraðsdóm. 3.6.2010 06:00
Hestar hafa smitað menn Þess eru dæmi erlendis að fólk hafi smitast af hestum af streptokokkasýkingu þeirri sem nú herjar á hross hér. Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir, sem beinir því til hestafólks að hafa varann á vegna þessa. 3.6.2010 06:00
Hækka þarf heitt vatn um 37 prósent Eigi markmið fimm ára áætlunar um fjárþörf Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að nást, þarf mikla hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins. Á það við um allt nema kalda vatnið. Þar mun gjaldskrá standa í stað. 3.6.2010 06:00
Mál tengd Byr komin á borð saksóknara Sex mál sem tengjast stjórnendum Byrs sparisjóðs hafa verið send sérstökum saksóknara og til Fjármálaeftirlits. Fyrrverandi stjórn Byrs vísaði málinu áfram skömmu fyrir yfirtöku ríkisins á sparisjóðnum í apríl, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara. Málin koma til viðbótar þeim málum sem tengjast Byr og þegar eru í skoðun hjá embættinu. 3.6.2010 06:00
Telur landlækni geta borgað rannsóknina Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hafnar því með öllu að landlæknisembættið hafi ekki getað gert rannsókn á mannlegum mistökum innan íslenskra sjúkrahúsa vegna kostnaðar. Embættið hafi verið mjög vel haldið fjárhagslega á undanförnum árum. 3.6.2010 05:30
Greiðslur Kjalar aftur skertar um 19 prósent Lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðnum Kili, sem er í vörslu Landsbankans, hafa verið skertar um nítján prósent. Þetta var tilkynnt á ársfundi sjóðsins í síðustu viku. Greiðslur úr sjóðnum voru einnig skertar um nítján prósent í fyrra. Alls hefur skerðingin því numið 34,4 prósentum frá hruni. Halldór Kristinsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, segir þetta vera beina afleiðingu af bankahruninu, þar sem sjóðurinn hafi tapað um 20 prósentum eigna sinna. „Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 21 prósent og þá bar sjóðnum lagaleg skylda til að skerða réttindin,“ segir Halldór. 3.6.2010 04:00
Auglýsandi afneitar gjaldeyrisbrotum Seðlabankinn brást í gær við auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem óskað var eftir erlendum aðilum sem eigi íslenskar krónur, ríkisskuldabréf eða aðrar eignir á Íslandi. 3.6.2010 04:00
Almenn fíkniefnaleit er ekki forvörn Almenn fíkniefnaleit í framhaldsskólum getur ekki talist hluti af almennu forvarnastarfi framhaldsskólanna, að mati Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Hún hefur sent öllum skólastjórum framhaldsskóla bréf og tjáð þeim þá afstöðu sína. 3.6.2010 03:00
Mikilvægt að bjóða erlendum blaðamönnum „Við þurfum að segja fólki að við séum búin að vinna úr þeirri stöðu sem það telur að hér hafi verið uppi,“ segir Andrés Jónsson almannatengslafulltrúi um markaðsátakið „Inspired by Iceland“. 2.6.2010 23:07
Lögreglan vinnur úr vísbendingum Í kjölfar myndbirtingar fyrr í dag bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu allnokkrar vísbendingar um mennina tvo sem hún óskaði eftir að hafa tal af vegna máls sem er til rannsóknar hjá embættinu. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar. 2.6.2010 20:44
Nýr meirihluti á Vopnafirði Búið er að mynda nýjan meirihluta á Vopnafirði. Það eru Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og N-listi, listi nýs afls sem náð hafa samkomulagi um að stjórnasveitafélaginu. K-listi framfara og félagshyggju var með hreinan meirihluta á síðasta kjörtímabili en verður nú í minnihluta með tvo fulltrúa. 2.6.2010 20:35
Forsætisráðherra með of lág laun Meðallaun tuttugu stjórnenda hjá ríkisbankanum Landsbankanum með fríðindum og lífeyrisgreiðslum eru 950 þúsund krónur, eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi. Í nýlegum lögum um kjararáð er kveðið á um að föst laun fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, verði ekki hærri en föst laun forsætisráðherra. Þau eru 935 þúsund krónur á mánuði. 2.6.2010 19:24
Sigmundur Ernir: Það þarf að flýta landsfundi Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar segir þingmenn og forystu hennar hafa brugðist og því þurfi að flýta landsfundi og skerpa á pólitík flokksins. Úrslit sveitarstjórnarkosninganna séu aðvörun sem taka beri alvarlega. 2.6.2010 18:59
Stór rannsókn á áhrifum ösku á fólk Nú þegar öskufall er að verða að daglegum viðburði á höfuðborgarsvæðinu og ekkert útlit fyrir endalok þess, fer fram stór rannsókn á vegum Landlæknisembættisins á áhrifum ösku á fólk. 2.6.2010 18:54
Hvatning um lögbrot Í Markaðnum fylgiriti Fréttablaðsins í dag birtist auglýsing þar sem auglýst er eftir erlendum aðilum sem eigi íslenskar krónur, ríkisskuldabréf eða aðrar eignir á Íslandi. Eru hlutaðeigandi beðnir að hafa samband í gegnum uppgefið netfang eða símanúmer, en auglýsingin er nafnlaus. 2.6.2010 18:40
Meintur hrotti áfram í varðhaldi Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni á þrítugsaldri sem svipti annan mann frelsi og beitti hann ofbeldi. Manninum var í fyrstu gert að sitja í varðhaldi til 28. maí en það hefur verið framlengt til 24. júní. 2.6.2010 16:47
Jón Gnarr gaf Degi The Wire Jón Gnarr, formaður Besta flokksins afhenti Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrstu þáttaröðina af bandarísku sjónvarpsþáttunum The Wire í gær. Jón setti það sem skilyrði um miðjan síðasta að forystumenn hugsanlegs samstarfsflokks hefðu séð þættina. Síðan þá hefur það verið ófrávíkjanleg krafa Besta flokksins að samstarfsflokkurinn hafi horft á þættina. 2.6.2010 15:20
Gríðarleg vanskil hjá stóru bönkunum Meira en 40 prósent heildarútlána þriggja stærstu viðskiptabankanna voru í 90 daga vanskilum, eða greiðslur þeirra þóttu ólíklegar í febrúar 2010. 18 prósent lána voru í skilum eftir fjárhagslega endurskipulagningu, en aðeins 39 prósent þeirra voru í skilum án endurskipulagningar. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Fjármálastöðugleika Seðlabankans. 2.6.2010 18:32
Smálán til ungmenna siðlaus Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir markaðssetningu smálánafyrirtækja til ungmenna siðlausa. Neytendasamtökin hafi ítrekað skorað á viðskiptaráðherra að bregðist við málinu en engin viðbrögð fengið 2.6.2010 18:51
Dagur ræðir hvernig viðræður ganga Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, fer yfir niðurstöður kosninganna og segir frá því hvernig viðræðurnar við Besta flokkinn um hugsanlegt meirihlutasamstarf í Reykjavík gangi. 2.6.2010 17:47
Tvær hópuppsagnir í maí Tilkynnt var um 2 hópuppsagnir í maí 2010 þar sem alls 27 manns var sagt upp. Sumir þeirra verða endurráðnir. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. 2.6.2010 17:29
Ljúka meirihlutaviðræðunum í Hafnarfirði fyrir helgi Meirihlutaviðræður í Hafnarfirði ganga vel að sögn oddvita Samfylkingarinnar. Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi bæjarstjórastólinn. Stefnt er að því að ljúka viðræðunum fyrir helgi. 2.6.2010 14:45
Lögreglustöð 4 brátt í eitt hús Starfsemi lögreglustöðvar 4 verður brátt á sama stað en verkefnum á svæðinu er nú sinnt frá tveimur stöðum, lögreglustöðvunum á Völuteigi 8 í Mosfellsbæ og Krókhálsi 5b í Reykjavík. Allir rannsóknarlögreglumenn stöðvarinnar hafa haft aðsetur á Völuteignum en þeir flytja sig fljótlega um set og fá rúmgóða aðstöðu á Krókhálsi 5a, segir í tilkynningu. 2.6.2010 14:42
Framkvæmdastjóri LÍÚ: Ráðherra svíkur dragnótamenn „Það er ekki hægt að segja að það komi lengur á óvart, en okkur þykir það samt miður að enn á ný skuli Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ganga á bak orða sinna," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ í frétt frá LÍÚ. 2.6.2010 14:36
Krúttlegur kópur fæddist í Húsdýragarðinum Landselsurtan Særún í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum kæpti í nótt sprækum kópi. Kópurinn hóf sig strax til sunds með móður sinni og svamlar um í selalauginni gestum til mikillar gleði. Landselsurtur kæpa í látrum á landi og kóparnir líkjast fullorðnum selum mjög nema hvað auðvitað eru þeir minni. Umhyggja urtanna gagnvart kópum sínum er afskaplega sýnileg og mikið um knús þeirra á milli, segir í frétt frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. 2.6.2010 14:26
Kyrrsetning eigna Skarphéðins Bergs felld úr gildi Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi ákvörðun sýslumanns um kyrrsetningu eigna Skarphéðins Bergs Steinarssonar. Um miðjan síðasta mánuð fór skattrannsóknarstjóri fram á að eignir Skarphéðins, Jóns Ásgeir Jóhannessonar, Jóns Sigurðssonar og Hannesar Smárasonar yrðu kyrrsettar. Þeir voru allir í forsvari fyrir FL Group á árunum 2006 og 2007 og grunaðir um refsiverða háttsemi í tengslum við brot félagsins á lögum um virðisaukaskatt. 2.6.2010 13:13
Borgarstjórn: Ólafur getur sjálfur óskað eftir lögreglurannsókn Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna segja engar vísbendingar vera uppi um að flokkarnir hafi með neinum hætti brotið lög eða gengið gegn skyldum þeirra til að upplýsa um fjármál sín. Vilji Ólafur að fram fari lögreglurannsókn á styrkjum til flokkanna getur hann óskað eftir því á eigin ábyrgð, að mati borgarfulltrúanna. 2.6.2010 13:11
Katrín afhenti Foreldraverðlaunin Foreldraverðlaun Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, voru afhent í 15. sinn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin. 2.6.2010 12:53
Einhleypar konur og samkynhneigð pör geta fengið egg og sæði Einhleypum konum og samkynhneigðum jafnt sem gagnkynhneigðum pörum, sem búa við skerta frjósemi beggja maka, er nú heimilt að nota bæði gjafaegg og gjafasæði við glasafrjóvgun. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í gær. 2.6.2010 12:46
Ábendingar almennings hafa áhrif á viðræðurnar Á fjórða hundrað hugmynda hafa borist frá almenningi inn á vefsíðuna Betrireykjavik.is sem Samfylkingin og Besti flokkurinn stofnuðu vegna meirihlutaviðræðna í borgarstjórn. Einar Örn Benediktsson segir að Besti flokkurinn ætli ekki að flýta sér. 2.6.2010 12:37
Hestaflensan getur borist í menn Hestaflensan sem herjað hefur á hross á landinu getur borist í menn. Landlæknisembættið vekur athygli á þessu og hvetur þá sem sinna hestum til að gæta fyllsta hreinlætis. 2.6.2010 12:24
Lögreglan leitar tveggja manna | Myndir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Lögregla hefur ekki greint nánar frá málavöxtum. 2.6.2010 11:51
Telur brýnt að skerpa skilin milli borgarstjórnar og borgarráðs Óskar Bergsson, fráfarandi borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, telur brýnt að skerpa betur á verkaskiptingu milli borgarstjórnar og borgarráðs. Óskar lagði fram tillögu þess efnis á sínum síðasta borgarstjórnarfundi í gær. 2.6.2010 11:18
Neytendur njóta ekki góðs af styrkingu krónu Neytendasamtökin segja að innflytjendur og/eða smásalar hafi nýtt sér styrkingu krónunnar til að hækka álagningu. 2.6.2010 11:16
Gefa öllum sjö ára börnum reiðhjólahjálma Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands gefa öllum börnum sem eru að ljúka 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins. Nemendur víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu var boðið í heimsókn í höfuðstöðvar Eimskipafélagsins í Reykjavík í dag þar sem þau fengu afhenta reiðhjólahjálmana sína. 2.6.2010 10:46
Læknaráð: Minni fjárframlög þýðir skert þjónusta Ekki verður komist hjá skertri þjónustu á Landspítalanum og fækkun starfsfólks komi til frekari niðurskurðar á fjárframlögum ríkisins til spítalans. Þetta ályktaði aðalfundur læknaráðs Landspítala fyrir skömmu. 2.6.2010 10:39
Læknaráð Landspítala: Nýbygging verði tilbúin 2016 Læknaráð Landspítala skorar á yfirvöld að stefna að verklokum á nýbyggingu Landspítalans við Hringbraut á tilsettum tíma árið 2016. Læknaráðið samþykkti ályktun þess efnis fyrir skömmu. 2.6.2010 10:12
Guðríður: Engar ófrávíkjanlegar kröfur Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir flokkinn ekki setja neinar ófrávíkjanlegar kröfur í meirihlutaviðræðunum í bæjarfélaginu. Hún segir að Listi Kópavogsbúa hafi gerst sekur um trúnaðarbrest. 2.6.2010 09:49
Þingfestingar í vændiskaupamálum Mál ellefumenningana sem ákærðir eru fyrir að greiða fyrir vændi á síðasta ári voru þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Alls voru sautján mál af svipuðum toga rannsökuð en ákærur að lokum gefnar út í ellefu tilfellum þar sem sönnunargögn skorti í sex málum. Þinghald er lokað í málunum og nöfn sakborningannna því ekki gerð opinber. Öll tilvikin tengjast vændisstarfssemi á vegum Catalinu Ncogo, sem hefur stundum verið nefnd Miðbaugsmaddaman, en hún hefur áður verið dæmd fyrir að hafa milligöngu um vændi. 2.6.2010 09:47
Blómfríður fékk trollið í skrúfuna Björgunarskip frá Snæfellsbæ er nú á leið til hafnar með rækjubátinn Blómfríði frá Ólafsvík í togi. Báturinn fékk trollið í skrúfuna og kallaði eftir aðstoð. Björgunarskipið hélt af stað klukkan átta í gærkvöldi og var komið að Blómfríði um klukkan ellefu. Veðrið á svæðinu var ekki gott í nótt en hefur lagast með morgninum að sögn björgunarsveitarmanna. 2.6.2010 07:13