Telur landlækni geta borgað rannsóknina 3. júní 2010 05:30 Heimfærð tölfræði erlendra rannsókna bendir til að 200 manns deyi árlega vegna mannlegra mistaka á LSH. Myndin tengist ekki fréttinni beint. fréttablaðið/pjetur
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hafnar því með öllu að landlæknisembættið hafi ekki getað gert rannsókn á mannlegum mistökum innan íslenskra sjúkrahúsa vegna kostnaðar. Embættið hafi verið mjög vel haldið fjárhagslega á undanförnum árum. Fréttablaðið sagði frá því í gær að rannsókn væri hafin á vegum Landlæknisembættisins á tíðni „óvæntra skaða“ á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Staðið hefur til að gera rannsókn sem þessa í nokkur ár en af því hefur ekki orðið vegna fjárskorts, að sögn Sigurðar Guðmundssonar, forseta Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og fyrrverandi landlæknis, sem er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar. Rannsóknin kostar um átta milljónir króna en þegar liggur fyrir styrkur frá heilbrigðisráðuneytinu og Félagi hjúkrunarfræðinga að upphæð 700 þúsund krónur. „Mér finnst eðlilegt að farið sé í rannsókn sem er sambærileg við þær sem aðrar þjóðir hafa gert, telji menn þess þörf. En ég kaupi ekki þau rök að það hafi ekki verið hægt að gera þessa rannsókn vegna fjárskorts,“ segir Álfheiður. „Þegar ég auglýsti eftir nýjum landlækni hér fyrir áramót þá kom fram að það stæði til að efla eftirlitshlutverk landlæknis. Það má skilja það bæði með tilliti til kreppunnar, en kannski líka að manni finnist ekki að þessu eftirliti hafi verið sinnt nægilega vel á undanförnum árum.“ Hún segir að landlæknisembættið hafi fengið ríflegar fjárveitingar á undanförnum árum og embættið hafi haft jákvæðan höfuðstól upp á um þrjátíu milljónir króna árið 2008 og ef rannsóknir séu taldar nauðsynlegar hljóti þær að vera forgangsatriði þar innan dyra. Geir Gunnlaugsson landlæknir segir að ákveðinn afgangur hafi verið af rekstrarfé sem færst hafi á milli ára. Það hafi tekist með harðri fjármálastjórn. Geir segir að það hafi ekki verið nýtt í rannsóknina enda styrki embættið ekki rannsóknir að öllu jöfnu. Hann er ekki þeirrar skoðunar að ráðuneytið eigi að reiða fram átta milljónir til að klára rannsóknina. Hann segir það fullan ásetning sinn að rannsóknin verði framkvæmd og embættið leggi henni lið með mannafla og faglegu innleggi. Fáist ekki styrkirnir þýði það ekki að rannsóknin verði ekki unnin og til greina komi að embættið láti fé renna til verksins síðar, komi upp sú staða.svavar@frettabladid.is Álfheiður Ingadóttir
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira