Almenn fíkniefnaleit er ekki forvörn 3. júní 2010 03:00 Skólameistari Tækniskólans bað lögregluna að leita að fíkniefnum þar í febrúar. Ráðherra segir að slík leit stangist á við stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. fréttablaðið/pjetur
Almenn fíkniefnaleit í framhaldsskólum getur ekki talist hluti af almennu forvarnastarfi framhaldsskólanna, að mati Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Hún hefur sent öllum skólastjórum framhaldsskóla bréf og tjáð þeim þá afstöðu sína. Þar segir ráðherra að þrátt fyrir að forvarnir séu stór hluti af starfi framhaldsskóla geti almenn leit ekki talist hluti þeirra. Þar er vísað til leitar sem fram fór í Tækniskólanum í febrúar. Í því tilfelli var dyrum lokað og farið með fíkniefnahunda um húsnæði skólans. Í bréfi ráðherra eru skólastjórar minntir á að slíkar aðgerðir samræmist hvorki stjórnarskrá, Mannréttindasáttmála Evrópu né ákvæðum laga um meðferð sakamála. Ekki eigi að grípa til slíkra aðgerða nema lagagrundvöllur sé traustur og ákveðin mál komi upp innan skólanna sem bregðast þurfi við með ákveðnum hætti. „Fíkniefnaleit sem framkvæmd er með framangreindum hætti er óneitanlega harkaleg aðgerð gegn almennum nemendum sem þar sækja nám og er jafnvel ekki kunnugt um tilefni svo viðamikillar og íþyngjandi leitar,“ segir í bréfi ráðherra. - kóp
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira