Greiðslur Kjalar aftur skertar um 19 prósent 3. júní 2010 04:00 Fyrrverandi starfsmenn Mjólkusamsölunnar hafa orðið fyrir umtalsverðri kjaraskerðingu á undanförnu ári.
Lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðnum Kili, sem er í vörslu Landsbankans, hafa verið skertar um nítján prósent. Þetta var tilkynnt á ársfundi sjóðsins í síðustu viku. Greiðslur úr sjóðnum voru einnig skertar um nítján prósent í fyrra. Alls hefur skerðingin því numið 34,4 prósentum frá hruni. Halldór Kristinsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, segir þetta vera beina afleiðingu af bankahruninu, þar sem sjóðurinn hafi tapað um 20 prósentum eigna sinna. „Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 21 prósent og þá bar sjóðnum lagaleg skylda til að skerða réttindin," segir Halldór. Kjölur er einn þeirra fimm lífeyrissjóða í vörslu Landsbankans sem sérstakur saksóknari tók til rannsóknar í mars 2009 vegna gruns um að þar hefði verið fjárfest umfram heimildir í tilteknum félögum, meðal annars Landsbankanum og tengdum félögum. Annar sjóðanna fimm, Lífeyrissjóður Eimskipafélags Íslands, hafði þá runnið inn í Kjöl. Sú rannsókn stendur enn yfir en er langt komin, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara. Halldór segist lítið hafa frétt af rannsókninni. Hann er ekki sakborningur, enda tók hann ekki við sjóðnum fyrr en eftir hrun. Hann segist ekkert hafa séð í störfum sínum fyrir sjóðinn sem bendi til þess að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað. „Nei, þú sérð að ef þú berð þetta tap saman við tap annarra lífeyrissjóða sem eru ekki í vörslu hjá bönkum eða fjármálastofnunum þá er þetta mjög sambærilegt," segir hann. Halldór segir mikla skerðingu skýrast af því að sjóðurinn sé lokaður, sem þýðir að enginn greiðir lengur í hann iðgjöld. Slíkir sjóðir séu mun viðkvæmari fyrir skakkaföllum vegna fjárfestinga heldur en sjóðir sem geta treyst á innkomu til framtíðar. Kjölur varð til árið 2007 þegar fimm lífeyrissjóðir sameinuðust; Lífeyrissjóður Mjólkursamsölunnar, Eftirlaunasjóður Olíuverslunar Íslands, Lífeyrissjóður flugvirkja, Lífeyrissjóður starfsmanna Áburðarverksmiðjunnar og Lífeyrissjóður Eimskipafélags Íslands. Sjóðfélagar er um 4.500 og þar af fá yfir 800 nú greitt úr sjóðnum.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Knapi datt af baki Innlent Fleiri fréttir Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Sjá meira