Borgarstjórn: Ólafur getur sjálfur óskað eftir lögreglurannsókn 2. júní 2010 13:11 Á sínum síðasta borgarstjórnarfundi í gær óskaði Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, eftir lögreglurannsókn á því hvernig flokkarnir í borginni hefðu varið styrkjum úr borgarsjóði. Tillögunni var hafnað. Mynd/GVA
Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna segja engar vísbendingar vera uppi um að flokkarnir hafi með neinum hætti brotið lög eða gengið gegn skyldum þeirra til að upplýsa um fjármál sín. Vilji Ólafur F. Magnússon, að fram fari lögreglurannsókn á styrkjum til flokkanna getur hann óskað eftir því á eigin ábyrgð, að mati borgarfulltrúanna. Á sínum síðasta borgarstjórnarfundi í gær óskaði Ólafur eftir lögreglurannsókn á því hvernig flokkarnir í borginni hefðu varið styrkjum úr borgarsjóði. Tillögunni var hafnað með 14 atkvæðum gegn einu. Í frávísunartillögu sinni vísa borgarfulltrúarnir í lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og að þar komi fram að Reykjavíkurborg sé skylt að veita stjórnmálasamtökum sem fengið hafa a.m.k. einn mann kjörinn í borgarstjórn eða hlotið a.m.k. fimm prósent í næstliðnum sveitarstjórnarkosningum fjárframlög til starfsemi sinnar. Í lögunum komi einnig fram að stjórnmálasamtök eigi að skila árlega reikningum sínum árituðum af endurskoðendum til Ríkisendurskoðunar sem birti í framhaldinu útdrátt úr reikningunum þar sem greint er frá helstu niðurstöðum.Engar vísbendingar um lögbrot Þá rifja borgarfulltrúarnir upp að borgarráð beindi þeim tilmælum sínum til stjórnmálasamtakanna sem fengu fulltrúa kjörna í borgarstjórn fyrir fjórum árum að þau gerðu grein fyrir því hvernig framlögum borgarinnar til þeirra á bilinu 2006-2009 hefði verið varið. „Engar vísbendingar eru uppi um að stjórnmálasamtökin hafi með neinum hætti brotið lög eða gengið gegn skyldum þeirra til að upplýsa um fjármál sín, hvað ofangreind atriði varðar, sem er lágmarkskrafa fyrir því að óskað sé þeirrar lögreglurannsóknar sem tillaga borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar gengur út á. Borgarfulltrúanum er hins vegar frjálst, á eigin vegum og á eigin ábyrgð, að óska slíkrar rannsóknar," segir í frávísunartillögu borgarfulltrúa Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Fleiri fréttir Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík síðustu vikur í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent