Innlent

Gefa öllum sjö ára börnum reiðhjólahjálma

Nemendur af höfuðborgarsvæðinu fengu afhenta reiðhjólahjálma í dag. Þeim var auk þess boðin hressing yfir tónlistarflutningi Polla Pönks. Þá litu nokkrir velbúnir lögreglumenn við á vélfákum sínum sem ræddu við börnin og sýndu þeim hjólin sín og hjálma.
Nemendur af höfuðborgarsvæðinu fengu afhenta reiðhjólahjálma í dag. Þeim var auk þess boðin hressing yfir tónlistarflutningi Polla Pönks. Þá litu nokkrir velbúnir lögreglumenn við á vélfákum sínum sem ræddu við börnin og sýndu þeim hjólin sín og hjálma.
Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands gefa öllum börnum sem eru að ljúka 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins. Nemendur víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu var boðið í heimsókn í höfuðstöðvar Eimskipafélagsins í Reykjavík í dag þar sem þau fengu afhenta reiðhjólahjálmana sína.

Alls verða 4200 reiðhjólahjálmar gefnir í ár og munu Kiwanisklúbbar og Eimskipafélagið vítt og breitt um landið sjá um dreifinguna, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þar segir að fyrir sjö árum hafi Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands tekið höndum saman að fyrirmynd Kiwanisklúbbsins Kaldbaks á Akureyri og gefið reiðhjólahjálma á landsvísu. Frá upphafi verkefnisins hafa hátt í 30 þúsund hjálmar verið gefnir 7 ára börnum sem nú er um 10% þjóðarinnar. „Markaðsverð verkefnisins hefur kostað um 100 milljónir frá upphafi og er þeim peningum vel varið. Ljóst er samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni víðsvegar um land að þessir hjálmar hafa bjargað mannslífum og mörgum ungmennum frá alvarlegum meiðslum," segir Ólafur Hand hjá Eimskipafélagi Íslands.

Verkefnið nýtur einnig ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard, forstöðumanns Forvarnahússins. „Þetta er frábært tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að taka þátt í þessu með okkur og fylgja því eftir" segir Herdís.

Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. Hjálmur sem farið er vel með á að endast í 5 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×