Fleiri fréttir

Álag á starfsmönnum mikið vandamál

Álag á vinnustöðum hefur aukist til muna en laun lækka eða standa í stað, samkvæmt nýlegri kjarakönnun Bandalags háskólamanna (BHM). Um sjötíu prósent félagsmanna telja að álag á vinnustöðum þeirra hafi aukist, en svipuð niðurstaða kom fram fyrir ári í hliðstæðri könnun, þar sem hlutfallið var 60 prósent. Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM, segir niðurstöðuna ekki koma á óvart.

Skrifa bréf til fyrirmynda

Bréfsefni með yfirskriftinni Takk fyrir að vera til fyrirmyndar verður dreift inn á heimili landsins í dag og á morgun. Bréfsefnið er ætlað til bréfaskrifta til þeirra sem fólk telur hafa verið sér fyrirmynd á einn eða annan hátt.

Tíu rússneskir njósnarar handteknir í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn handtóku í dag tíu einstaklinga grunaða um að vera rússneskir njósnarar. Einn gengur enn laus. Ákærur á hendur njósnurunum hljóma líkt og reyfari frá Kalda stríðs árunum en fólkið hafði búið í Bandaríkjunum í um 20 ár og hafði það markmið að koma sér fyrir í mikilvægum stöðum í stjórnkerfinu.

Vinnuafköst minni hjá konum með legslímuflakk

Vinnuafköst eru 38% minni hjá konum sem þjást af legslímuflakki eða endómetríósu eins og sjúkdómurinn er kallaður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum kvenna með endómetríóusu.

Styrmir Þór sá þriðji sem er ákærður

Þriðji maðurinn sem er ákærður í fyrstu ákærum sérstaks saksóknara er Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, en eins og fréttastofa greindi frá voru fyrrverandi sparissjóðsstjóri og fyrrverandi stjórnaformaður Byrs, auk ónafngreinds þriðja manns, ákærðir fyrir umboðssvik í tengslum við lánveitingar Byrs sparisjóðs til félagsins Exeter Holding.

Vöktuðu tölvupóst brottrekins starfsmanns

Starfsmaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna kvartaði til Persónuverndar yfir því að tölvupóstur hans var áframsendur á þriðja aðila eftir að samið var um starfslok hans hjá félaginu. Persónuvernd segir áframsendingu póstsins óheimila.

Stefnir í einhver mestu flóð í sögu Skaftárhlaupa

Tvö Skaftárhlaup, sem nú koma hvort ofan í annað, eru talin geta valdið mestu flóðum í þekktri sögu þessara náttúruhamfara. Vegir eru farnir í sundur á nokkrum stöðum, varnargarðar hafa brostið og á næstum dögum er búist við að flætt geti yfir hringveginn í Eldhrauni.

„Mér er fullkomlega misboðið"

Sjúkratryggingar Íslands neita að greiða tannlæknakostnað lítillar stúlku sem missti báðar framtennurnar í hjólaslysi. Helga Vala Helgadóttir, móðir stúlkunnar, segir ríkið beita stúlkuna óréttlæti. Stúlkan þarf að gangast undir aðgerð þar sem hluti verður tekin af mjaðmabeini hennar til að setja í góminn.

Kreppunni lokið

Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur verið hér á landi undanfarnar tvær vikur til að undirbúa þriðju endurskoðun sjóðsins á efnhagsáætlun Íslandi. Nefndin hefur meðal annars fundað með íslenskum stjórnvöldum til að fara yfir fjárlagahugmyndir næsta árs en miðað er við að stjórn sjóðsins afgreiði þriðju endurskoðun í lok sumars.

Skólastjóri Hraðbrautar segir ekkert athugavert við arðgreiðslur

Skólastjóri Hraðbrautar, Ólafur H. Johnson, segir í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum að arðgreiðslur til eigenda skólans, sem DV minntist á í fréttum sínum, ekki athugaverðar. Þá segist hann ennfremur ekki kvíða niðurstöðu Ríkisendurskoðunar þar að lútandi.

Kindur af öskusvæðunum með sterka heimþrá

Kindurnar sem fluttu voru úr öskufallinu frá Eyjafjallajökli og austur í Skaftárhrepp hafa svo sterka heimþrá að þær leggjast til sunds yfir stórfljótin Skaftá og Kúðafljót og reyna að brjótast í gegnum girðingar.

Ríkissaksóknari óttaðist reiði almennings

Persónuvernd hefur úrskurðað að Ríkissaksóknara beri að afmá rannsóknarskjöl um lát tveggja manna í Daníelsslipp af heimasíðu embættisins. Ríkissaksóknari birti skjölin í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttsins Kompáss um málið en ættingjar mannana tveggja sættu sig ekki við þau málalok að mennirnir hefðu svipt sig lífi í bílnum.

Gísli Marteinn situr áfram

Gísli Marteinn Baldursson ætlar ekki að víkja sem borgarfulltrúi vegna ályktunar sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um helgina. Hann segist engar lánafyrirgreiðslur hafa fengið, hvorki kúlulán né önnur óvenjuleg lán.

Samkomulag um samstarf í fötlunarfræði

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands, undirrituðu í dag tvo samstarfssamninga um kennslu og rannsóknir á sviði fötlunarfræða við Háskóla Íslands. Markmið samninganna er að efla fræðastörf á sviði fötlunarfræða og styrkja þannig kennslu, rannsóknir, framþróun og stefnumörkun á fræðasviðinu og í málefnum fatlaðs fólks.

Gylfi mætir á borgarafundinn í Iðnó

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur staðfest komu sína á Opinn borgarafund í Iðnó í kvöld. Gylfi mun þar verða með framsögu, ásamt Lilju Mósesdóttur þingmanni VG, Pétri Blöndal þingmanni Sjálfstæðisflokks og Guðmundi Andra Skúlasyni talsmanni Samtaka lánþega. Auk þeirra verða í pallborði þeir Ragnar Baldursson hrl. og Marinó G. Njálsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

Andrés endurkjörinn formaður

Ný stjórn og ný siðanefnd var kjörin á aðalfundi Almannatengslafélags Íslands sem fram fór í dag og var Andrés Jónsson endurkjörinn sem formaður félagsins. Aðrir í stjórn eru Hjördís Árnadóttir varaformaður, Lovísa Lilliendahl gjaldkeri, Snorri Kristjánsson ritari og G. Pétur Matthíasson meðstjórnandi. Varamaður er Eva Dögg Þorgeirsdóttir.

Bergur endurráðinn

Bergur Elías Ágústsson hefur verið endurráðinn sem sveitarstjóri Norðurþings. Þetta var samþykkt á síðasta fundi byggðaráðs. Bergur hefur verið sveitarstjóri undanfarin fjögur ár. Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mynduðu meirihluta í Norðurþingi eftir kosningarnar í lok apríl en samanlagt hafa flokkarnir sjö sveitarstjórnarfulltrúa af níu.

Lára Óskarsdóttir: Enginn sem stoppaði mig

„Ég er bara rosalega ánægð með þessa niðurstöðu, ég er eins og hinir pólitíkusarnir að þegar ég tapa þá er ég ánægð," segir Lára Óskarsdóttir, sem bauð sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum um helgina. Ólöf Nordal þingmaður flokksins fékk 70% atkvæða en Lára fékk rúmlega 17%.

Ungir framsóknarmenn fylgjandi aðildarviðræðum

Ungir framsóknarmenn í Reykjavík hvetja þingmenn flokksins til að fylgja stefnu Framsóknarflokksins í Evrópumálum. Stjórn félagsins leggur áherslu á mikilvægi þess að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið fái þann lýðræðislega farveg sem hófst með ályktun Alþingis um aðildarviðræðurnar.

Handtóku fíkniefnasala í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði á föstudaginn. Um var að ræða bæði kókaín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á um 100 steratöflur og 1.150 millilítra af sterum í vökvaformi. Þá tók lögregla líka í sína vörslu töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Segir sjálfstæðismenn verða að horfast í augu við staðreyndir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að sjálfstæðismenn þurfi að horfast í augu við að aðildarferlið sé hafið og því sé æskilegra að menn sameinist um að berjast fyrir hagsmunum Íslands í aðildarviðræðum við sambandið. Fyrrverandi formaður flokksins segist ekki sjá fyrir sér stofnun nýs flokks óánægðra sjálfstæðismanna.

Tveimur bílum stolið í hverri viku

53 bílum hefur verið stolið hér á landi það sem af er þessu ári samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Þetta jafngildir því að tveimur bílum sé stolið í hverri viku.

Fullir í sundi kærðir fyrir húsbrot

Þegar starfsfólk Sundhallar Selfoss komu til vinnu á sunnudagsmorguninn fann það tvo ölvaða karlmenn í sundinu. Samkvæmt dagbók lögreglunnar á Selfossi voru mennirnir uppivöðslusamir og leiðinlegir.

Aukið álag

Nær 70% svarenda í kjarakönnun Bandalags háskólamanna sögðu að álag hafi aukist á vinnustað á síðustu mánuðum, og að laun fari lækkandi eða standi í stað.

Borgarafundur í Iðnó

Opnir Borgarafundir standa fyrir borgarafundi Í Iðnó í kvöld um málefni nýfallinna hæstaréttardóma í bílalánsmálunum og hefst fundurinn klukkan átta.

Um 800 milljónir til endurreisnar vegna eldgosanna

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að veita 791,7 milljónir króna til endurreisnar og vegna neyðaraðgerða í kjölfar eldgosanna í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að styðja eigi við uppbyggingastarf á eldgosasvæðinu og treysti enn frekar á störf þeirra sem komið hafa að neyðaraðgerðum, öryggismálum og endurreisn í kjölfar hamfaranna.

Þorsteinn Pálsson: Ekki á leið úr flokknum

„Frá mínum bæjardyrum séð tók landsfundurinn mjög óskynsamlega ákvörðun. Þessi niðurstaða er bæði vond fyrir flokkinn og Evrópumálstaðinn,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, um ályktun um Evrópumál sem samþykkt var á landsfundi flokksins um helgina. Flokkurinn vill nú að umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Hann segist ekki sjá fyrir sér stofnun nýs flokks óánægðra sjálfstæðismanna.

Skaftárhlaupið nær hámarki síðdegis

Skaftárhlaupið úr eystri katlinum nær hámarki síðdegis eða í kvöld en áin er þegar farin að flæða yfir bakka sína. Áin flæddi meðal annars yfir bakka nærri bænum Skál og yfir veg nærri Hálendismiðstöðinni nærri Hólaskjóli.

Japanir veltu bíl sínum - sendiráðið skarst í leikinn

Minniháttar umferðaróhapp varð í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í síðustu viku þegar að sjö Japanir veltu bíl sínum. Ein kona kvartaði undan verk í baki og var send á sjúkrahús. Eini maðurinn í hópnum sem kunni ensku fór með henni á sjúkrahúsið. Þeir fimm sem eftir voru gátu því engan veginn bjargað sér, þar sem himinn og haf skildi á milli tungumála þeirra og lögreglu, eins og það er orðað í tilkynningu frá lögreglu.

Vilja að öllum nauðungarsölum á heimilum verði frestað

Hagsmunasamtök heimilanna skora á stjórnvöld að frysta tafarlaust eignir og fé í eigu fjármálastofnana til að standa undir skaðabótaábyrgð sem fyrirtækin kunna að hafa skapað sér í tengslum við nauðungarsölur byggðar á húsnæðis- og bílalánum.

Félagsráðgjafar vilja lýsandi nafn

Félagsráðgjafafélag Íslands skorar á stjórnvöld að finna sameinaðri stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættis nafn sem lýsi hlutverki hennar og er hlutlaust gangvart starfsstéttunum þrjátíu og tveimur sem stofnunin sér um leyfisveitingar til og hefur eftirlit með. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi fyrr í mánuðinum. Þá telur stjórn félagsins mikilvægt að yfirmaður stofnunarinnar beri starfsheitið forstjóri eða forstöðumaður og hafi menntun á heilbrigðissviði.

Fjármál Hraðbrautar til Ríkisendurskoðunar

Menntamálaráðuneytið hefur óskað eftir úttekt Ríkisendurskoðunar á Menntaskólanum Hraðbraut en samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu þá er það gert vegna þess að samningar á milli ríkis og skólans renna út í ár.

Ákall til blóðgjafa

Blóðbankinn biður blóðgjafa að muna eftir bankanum áður en þeir fara í frí og koma og gefa blóð. Nú er svo komið að birgðir af blóði í O blóðflokkunum er í lágmarki og sérstaklega vantar O negativt blóð, að því er fram kemur í tilkynningu. Blóðbankinn er ábyrgur fyrir allri söfnun og vinnslu blóðs hér á landi.

Brenndist af hrauni á Fimmvörðuhálsi

Kona brenndi sig á hendi um helgina, þegar hún tók upp hraunmola á Fimmvörðuhálsi. Molinn reyndist glóandi að innan þótt yfirborðið væri meinlaust að sjá.

Lögregla of fáliðuð

„Það hefur mikil breyting átt sér stað í seinni tíð,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur verið starfandi lögreglumaður í 34 ár.

Aukið og grófara ofbeldi gegn lögreglu

Bótagreiðslur til lögreglumanna við skyldustörf, sem borgarar hafa ráðist á og slasað, hafa náð nýjum hæðum á síðustu árum. Það sýnir að ofbeldi gegn lögreglu hefur farið harðnandi. Fjöldi mála af þessu tagi í málaskrám lögreglu milli ára segir einnig sína sögu. Málunum hefur farið fjölgandi. Þá hafa hótanir í garð lögreglumanna orðið grófari. Þær beinast nú ekki einungis að lögreglumönnunum sjálfum heldur hafa einnig komið upp mál þar sem borgarar hafa hótað þeim að lífláta börn þeirra, eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu.

Stórhvelaveiðar eru að hefjast

Hvalbátarnir tveir, Hvalur 8 og Hvalur 9, héldu til veiða í gærkvöldi, um tíu dögum síðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bátarnir tveir hafa verið í slipp á undanförnum vikum og voru prufukeyrðir í síðustu viku.

Saka Guðmund um einelti og hroka

Barnaverndarstofu barst kvörtunarbréf, undirritað af tíu starfsmönnum Götusmiðjunnar, í maí síðastliðnum. Í bréfinu lýsa starfsmenn yfir áhyggjum af starfsemi meðferðarheimilisins og saka Guðmund Tý Þórarinsson, forstöðumann stofnunarinnar, um einelti. Í bréfinu segir einnig að Guðmundur komi mjög sjaldan og óreglulega inn í Götusmiðjuna og þegar hann komi þá sé hann með yfirgang, frekju og hroka.

Sjá næstu 50 fréttir