Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sendinefnd AGS væntanleg Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur til Íslands í næstu viku til viðræðna við ríkisstjórnina og fleiri. Nefndin hyggst beina athygli sinni að endurreisn fjármálakerfisins og ræða um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. 25.11.2009 16:19
Ríkisstjórnarfundur í kvöld Ríkisstjórnin kemur saman til fundar í kvöld í forsætisráðuneytinu til að afgreiða þau frumvörp sem stjórnin hyggst leggja fyrir Alþingi áður en þingmenn fara í jólaleyfi. Fundartíminn er heldur óvenjulegur en ríkisstjórnarfundir eru að jafnaði haldnir á þriðjudags- og föstudagsmorgnum. 25.11.2009 16:13
Niðurskurðurinn bitnar á frístundaheimilum Vinstri grænir í Reykjavík gera alvarlegar athugsemdir við fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundasviðs fyrir árið 2010. Ljóst sé að niðurskurður á sviðinu komi til með að bitna að einna verst á frístundaheimilum. Vinstri grænir vilji hækka útsvarsprósentuna. 25.11.2009 15:55
Ástand raflagna reglulega yfirfarið í leikskólum Viðhald raflagna í fasteignum er mikilvægt og hjá Reykjavíkurborg eru þessi mál í ákveðnum farvegi, að fram kemur í tilkyniningu frá framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. 25.11.2009 15:30
UNIFEM á Íslandi fagnar 20 ára afmæli sínu í dag Í dag fagnar UNIFEM á Íslandi 20 ára afmæli sínu en þessi dagur er einnig alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Á sama tíma er því fagnað að Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna á 30 ára afmæli. 25.11.2009 15:18
Arion banki tryggi að íbúðalán Skagamanna versni ekki Bæjarstjórn Akraness segir að með lokun útibús Arion banka, áður Kaupþings, í bæjarfélaginu skerðist þjónusta bankans mjög og ekki sé boðlegt að vísa fólki til annarra byggðarlaga til þess að sækja daglega bankaþjónustu. 25.11.2009 15:15
Jóhanna tók djúpt í árinni um Suðvesturlínu Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði á þingfundi í dag að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefði tekið djúpt í árinni með ummælum sínum um Suðvesturlínu um helgina. 25.11.2009 14:18
Mikilvægt að bankar fari að reglum Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir afar mikilvægt að settar verði leikreglur um fjárhagslega endurskipulagningu bankanna. Hún hefur boðað Gylfa Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á fund nefndarinnar á morgun. 25.11.2009 13:50
Ljósaganga farin til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum Í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gegn konum, verður alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 19. sinn. Átakinu verður formlega ýtt úr vör með Ljósagöngu til að vekja athygli á ofbeldi gegn konum og hvetja til aðgerða. 25.11.2009 13:32
Þjóðarhagur ætti frekar að opna nýja verslunarkeðju Ef Þjóðarhagur er að hugsa um hagsmuni neytenda ættu þeir frekar að opna nýja verslanakeðju en að reyna að kaupa Haga, segir Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku. Það væri heppilegra fyrir neytendur og markaðinn í heild að fá nýja aðila inn. 25.11.2009 13:04
Óttast að foreldrar fari fyrr út á vinnumarkaðinn BHM telur skerðingu fæðingarorlofsgreiðslna ógna jafnrétti og vega að réttindum barna og fjölskyldna. Formaður Leikskólaráðs Reykjavíkurborgar sem nú er í fæðingarorlofi óttast að foreldrar fari fyrr út á vinnumarkaðinn vegna skerðingarinnar og kostnaður bitni á sveitarfélögunum. 25.11.2009 12:43
Jóhanna ræðir Icesave þegar hennar tími er komin Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist ekki ætla að ræða Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar á Alþingi fyrr en hennar tími sé kominn. Forsætisráðherra hefur enn ekki tekið til máls um frumvarpið sem nú er í annarri umræðu. 25.11.2009 12:26
Ástæðulaust að óttast 500 milljóna króna niðurskurð Ragnar Sær Ragnarsson, starfandi formaður leikskólaráðs Reykjavíkur, segir foreldra ekki þurfa að hafa nokkrar áhyggjur þrátt fyrir meira en 500 milljóna króna niðurskurð. 25.11.2009 12:20
Nauðgunum á skemmtistöðum hefur fjölgað Hópnauðgunum og nauðgunum á skemmtistöðum fer fjölgandi hér á landi. Meiri en þriðjungur þeirra sem leita til Neyðarmóttöku vegna nauðgana eru 18 ára og yngri, eða 37%. Þetta kemur fram í svari Álfheiðar Ingadóttur, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn Önnu Pálu Sverrisdóttur, þingmanns Samfylkingar. 25.11.2009 11:25
Heimilum sem fá fjárhagsaðstoð fjölgar á ný Heimilum sem fá greidda fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fjölgar á nýjan leik. Árið 2008 fengu 5029 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 749, eða 17,5%, frá árinu áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en stofnunin hefur allt frá árinu 1987 leitað slíkra upplýsinga frá sveitarfélögum. 25.11.2009 10:49
Deilt um prjóna og Facebook á bæjarstjórnarfundi Tveir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði deildu um prjóna og samskiptavefinn Facebook á fundi bæjarstjórnar í gær. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði áhugaleysi bæjarfulltrúa meirihlutans með ólíkindum. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar svaraði um hæl og sagðist vera ofvirk og eiga auðveldara með að halda athygli þegar hún prjónar. Ekkert af þessu var þó bókað í fundargerð því deilurnar áttu sér stað netinu. Nánar til tekið á Facebook. 25.11.2009 10:26
BHM andmælir frekari skerðingum á fæðingarorlofi Bandalag háskólamanna lýsir andstöðu við frekari skerðingu réttinda í fæðingarorlofi, þar sem slíkt er skref afturábak í jafnréttismálum og vegur að réttindum barna og fjölskyldna. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar BHM en þar er bent á að markmið fæðingarorlofs sé að tryggja barni samvistir við báða foreldra og gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. 25.11.2009 08:35
Fermingarbörn söfnuðu átta milljónum Rúmlega 8 milljónir króna söfnuðust þegar fermingarbörn um land allt gengu í hús þann 9. og 10. nóvember með bauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Undanfari þess var fræðsla til rúmlega 3000 fermingarbarna um aðstæður í fátækum löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni að því er fram kemur í tilkynningu frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Féð rennur til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Afríkulöndunum, Eþíópíu, Malaví og Úganda. 25.11.2009 08:30
Lögreglan fylgist með vændishúsum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarnar vikur fylgst með fjórum húsum víðsvegar um borgina sem grunur leikur á að séu notuð undir vændisstarfssemi. Þetta kemur fram í DV í dag. Húsin eru í miðbæ Reykjavíkur, Grafarvogi, Breiðholti og í Kópavogi. Að sögn blaðsins hafa ómerktir lögreglubílar sinnt eftirliti við húsin síðustu tvo mánuði og fylgst með gestakomum því kaup á vændi og milliganga um slík viðskipti eru bönnuð þótt sala vændis sé heimil samkvæmt lögum. 25.11.2009 08:25
Ölvaður ökumaðir olli þriggja bíla árekstri Litlu munaði að illa færi þegar ölvaður ökumaður fór yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut á milli Grænásvegar og Hafnavegar í gærkvöldi. Bíllinn rakst utan í tvo aðra sem voru að koma úr gagnstæðri átt og skemmdust allir bílarnir töluvert. Meiðsli á fólki voru hins vegar minniháttar. 25.11.2009 07:23
Vill að fjölmiðlar fái stuðning frá ríkinu Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, telur að ríkisvaldið eigi að styðja við fjölmiðla til að tryggja innviði þeirra og lýðræðislega umræðu. Slíkt sé alþekkt á Norðurlöndunum. Hún saknar ákvæðis þar um í frumvarpi um fjölmiðlalög sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu vikum. 25.11.2009 06:00
Dómstólar sagðir að kafna í málafjölda Héraðsdómur Reykjavíkur er að sligast undan miklum málafjölda. „Það er hrúgað stöðugt á dómstólana eins og þeir séu botnlaus hít sem taki endalaust við,“ segir Helgi Jónsson, dómstjóri í Reykjavík. 25.11.2009 06:00
Viljum gleðjast þótt tímar séu erfiðir „Einmitt í svona árferði er ákveðið sjónarmið að horfa fram á veginn og láta skína í að það séu bjartari tímar fram undan," segir Þórður Snorri Óskarsson, aðjúnkt í vinnusálfræði við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, spurður hvort fyrirtæki eigi að halda jólahlaðborð í kreppunni eða borga starfsmönnum frekar andvirði þess. 25.11.2009 06:00
Rafmagnsmál leikskóla víða í ólestri Raflögnum og rafbúnaði í leikskólum er víða ábótavant samkvæmt úttekt Brunamálastofnunar. Örn Sölvi Halldórsson, sérfræðingur á rafmagnsöryggissviði stofnunarinnar, segir alvarlegustu athugasemdirnar snúa að merkingum í rafmagnstöflum og biluðum tenglum á svæðum þar sem börn eru. 25.11.2009 05:30
Frestur til að höfða riftunarmál lengdur Slitastjórnir gömlu bankanna fá lengri frest en áður til að höfða mál til að fá óeðlilegum fjármálagjörningum rift, samkvæmt frumvarpi sem Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra kynnti í ríkisstjórn í gærmorgun. Slitastjórnirnar höfðu lýst áhyggjum af of skömmum fresti í bréfi til tveggja ráðuneyta. „Okkar mat var að það væri alveg rétt,“ segir Gylfi. 25.11.2009 05:00
Vilja göng til Dýrafjarðar Sama dag og lokasprengjan í Óshlíðargöngum verður sprengd er efnt til baráttufundar um önnur göng, Dýrafjarðargöngin. Fundurinn fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í hádeginu á laugardaginn. 25.11.2009 04:45
Haldið sofandi í öndunarvél Manninum sem féll ofan í húsgrunn við sumarbústað við Flúðir um síðustu helgi er enn haldið sofandi í öndunarvél, samkvæmt upplýsingum frá lækni á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. 25.11.2009 04:30
Engar tilraunir gerðar „Það er góð regla að gera ekki tilraunir á viðskiptavinum,“ segir Tómas Tómasson, stundum kenndur við Tommaborgara. Tommi hefur í fjögur og hálft ár rekið Hamborgarabúlluna og stefnir á að opna fjórða staðinn við Ofanleiti 14 í vikunni. 25.11.2009 04:00
Tóku kannabis fyrir 4,5 milljónir Fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tók í fyrrakvöld marijúana, tilbúið til sölu, að andvirði um 4,5 milljónir króna í götusölu. 25.11.2009 03:45
Glókollur hefur numið land Glókollur, sem er minnsti fugl Evrópu og kallaður fuglakóngur í Skandinavíu, er einn af nýlegum landnemum á Íslandi. 25.11.2009 03:30
Vill frekari rök fyrir fækkun kennslustunda Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur beðið sveitarfélögin að rökstyðja nánar hugmyndir um að fækka lögbundnum kennslustundum í grunnskólum um þrjár til fjórar á viku. 25.11.2009 03:15
Beiðnin samþykkt vestra Dómstóll í Delaware í Bandaríkjunum féllst í gær á gjaldþrotabeiðni Decode, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE). Beiðnin var send fyrir viku. 25.11.2009 03:00
Gegn ólöglegum fiskveiðum Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði alþjóðasamning um aðgerðir hafríkja gegn ólöglegum fiskveiðum í Róm. Jón var þar staddur á aðalfundi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. 25.11.2009 02:30
Árni hefði ekki gert slíka kröfu Árna Páli Árnasyni félagsmálaráðherra var ekki kunnugt um að ráðgjafi hans, Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur, hygðist gera kröfu upp á 230 milljónir í bú Landsbankans. 25.11.2009 02:00
Skiptum ekki um stefnu eftir fréttum Samkomulag ríkis og borgar um samgöngumiðstöð er í fullu gildi og öll umræða síðustu daga um hugsanlegar breytingar á því er að frumkvæði samgönguráðuneytis. 25.11.2009 01:45
Gefur fólki virkilega mikið að knúsa dýr „Það getur gefið fólki virkilega mikið að fá að knúsa dýr," segir Jóhanna Ósk Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur um þá nýbreytni sem hófst á líknardeild Landspítalans í gær að fá sérstakan hund í heimsókn á deildinni. 25.11.2009 01:30
Afstaða borgarinnar er skýr „Ég get lítið annað sagt um þetta mál en að fyrir liggur skýr afstaða borgaryfirvalda um að alhliða samgöngumiðstöð rísi við Hlíðarfótinn. Það kemur fram í minnisblaði sem Reykjavíkurborg og ríkisvaldið undirrituðu í apríl,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri um hugmyndir um að reist verði ný flugstöð í stað samgöngumiðstöðvar. 25.11.2009 01:00
Samfylkingin býður fram á Seltjarnarnesi Á aðalfundi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi, sem haldinn var mánudagskvöldið 23. nóvember, var samþykkt að flokkurinn bjóði fram í eigin nafni á Seltjarnarnesi í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 29. maí 2010. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 24.11.2009 20:10
Ráðherra hafnar því að veggjöld að sunnan fari norður Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að sú hugmynd að láta veggjöld af Suðurlandi niðurgreiða Vaðlaheiðargöng hafi ekki verið rædd við sig og komi ekki til greina. 24.11.2009 19:03
Aldraður ökumaður fundinn Bifreiðin ZFZ 36 sem lögreglan leitaði í dag er komin fram ásamt ökumanni hennar og ekkert amaði að honum. Bílnum ók 86 ára gamall maður sem ætlaði upp á Kjalarnes úr miðbænum klukkan hálftíu í morgun. 24.11.2009 17:36
Húsleitin snýr ekki að bankanum eða starfsmönnum Samkvæmt upplýsingum MP banka snýr húsleit embættis sérstaks saksóknara í bankanum í dag að ákveðnum viðskiptavinum bankans en ekki að bankanum sjálfum eða starfsmönnum hans. Bankinn hefur veitt allar umbeðnar upplýsingar og mun aðstoða embætti sérstaks saksóknara eftir föngum, að fram kemur í tilkynningu frá bankanum. 24.11.2009 17:01
Tugir manna yfirheyrðir í máli Baldurs Um tugur manna hefur verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara í máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, þar sem gagnrýni Karls Axelssonar, lögmanns Baldurs, er vísað á bug. 24.11.2009 15:53
Lögregla lýsir eftir bíl og ökumanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir bifreiðinni ZFZ-36 sem er Volkswagen Golf ljósgrár. Bílnum ekur 86 ára gamall maður sem ætlaði upp á Kjalarnes úr miðbænum klukkan hálftíu í morgun, en ekkert hefur spurst um hann síðan þá. 24.11.2009 15:23
Árni Páll vissi ekki af 230 milljóna króna kröfu Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, vissi ekki að Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum sem nú starfar hjá félagsmálaráðuneytinu, myndi gera 230 milljóna króna kröfu í þrotabú Landsbankans. Sjálfur sagðist hann í umræðum á Alþingi í dag mundi ekki hafa gert samskonar kröfu í sporum Yngva. 24.11.2009 14:28
Ummæli Jóhönnu mistúlkuð Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í umræðum á Alþingi í dag að ekki væri nein ástæða til að hafa áhyggjur af ummæli forsætisráðherra um stóriðjumálin á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Orð hennar hafi verið mistúlkuð. 24.11.2009 13:55