Innlent

BHM andmælir frekari skerðingum á fæðingarorlofi

Bandalag háskólamanna lýsir andstöðu við frekari skerðingu réttinda í fæðingarorlofi, þar sem slíkt er skref afturábak í jafnréttismálum og vegur að réttindum barna og fjölskyldna. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar BHM en þar er bent á að markmið fæðingarorlofs sé að tryggja barni samvistir við báða foreldra og gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.

„BHM varar eindregið við því að tímabundið erfiðleikaástand í efnahagsmálum verði látið koma svo harkalega niður á samfélagslegum framfaramálum, sem kostað hefur mikla baráttu og fórnir að ná fram," segir ennfremur.

Þá er einnig bent á að markmið laganna sé einig að jafna stöðu karla og kvenna á vinnumarkaði og tryggja þátttöku beggja foreldra í uppeldi og umönnun barna. „Með breytingum þeim sem gerðar voru síðastliðið sumar var stórlega dregið úr möguleikum karla til töku fæðingarorlofs. BHM telur betur fara á að markvisst sé unnið að því að uppfylla markmið laganna, enda eru nú ýmsar blikur á lofti hvað varðar jafna stöðu karla og kvenna."






Tengdar fréttir

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlof lækkaðar

Hámarks greiðslur í fæðingarorlofi verða lækkaðar úr 350 þúsund krónum á mánuði í 300 þúsund, samkvæmt drögum að frumvarpi sem félagsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×