Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr sjónvarpsfréttatími á leið í loftið Morgunblaðið og Skjár einn munu hefja útsendingar á sjónvarpsfréttatíma á Skjá einum í lok mánaðarins. Forsvarsmenn fyrirtækjanna undirrituðu samning þess efnis í gærdag. Fréttirnar verða sýndar á Skjá einum klukkan 18.50 alla virka daga og verða endursýndir klukkan 21.50. 5.9.2009 04:00
Málflutningur dylgjur einar Bjarni Ó. Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi, segir fullyrðingar forsvarsmanna Sementsverksmiðjunnar um að fyrirtæki hans hafi staðið fyrir undirboðum á markaði í tæpan áratug dylgjur og til marks um óheiðarleika. 5.9.2009 04:00
Ólafur F.: Herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars „Ég held því miður að þetta sé sameiginlegt herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars. Þessir tveir fjandvinir mínir eru að reyna að koma á mig höggi. Hanna Birna ber þær sakir reyndar af sér," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi. 4.9.2009 21:51
Líkti Fjármáleftirlitinu við engla Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, líkti Fjármálaeftirlitinu við engla í ávarpi sem hún flutti á ráðstefnu eftirlitsins í janúar árið 2005. Á sömu ráðstefnu sagði Sigurður Einarsson, þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, eftirlitsaðila með fjármálastarfsemi hér á landi vera jafn kraftmikla og eftirlitsstofnanir í Lúxemborg. 4.9.2009 20:32
Nýjar leiðbeiningar um fjarvistir vegna veikinda af völdum svínaflensu Með hliðsjón af nýjum upplýsingum er einstaklingum sem taldir eru vera með sýkingu af völdum H1N1 inflúensu, eða svínaflensu, ráðlagt að halda sig heima í tvo daga eftir að þeir verða hitalausir, að fram kemur á vef Landlæknisembættisins. Þar segir ráðleggingarnar séu gefnar til að reyna að draga úr líkum á smiti í samfélaginu. 4.9.2009 20:54
Stúdentar fordæma niðurskurð menntamálaráðherra Stúdentaráð Háskóla Íslands fordæmir fyrirhugaðan niðurskurð menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, til Háskóla Íslands á komandi skólaári. Á álykun ráðsins segir að ljóst sé að niðurskurðurinn muni koma hart niður á Háskólasamfélaginu og fela í sér verulega skerta þjónustu og lakari menntun. 4.9.2009 19:49
Ráðherra kallar eftir upplýsingum um mál Landsvirkjunar Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, mun á næstu dögum óska eftir frekari upplýsingum vegna skipulagstillögu Skeiða- og Gnúpverjahrepps, líkt og kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. Það er gert í ljósi úrskurðar samgönguráðuneytisins um að Flóahreppi hafi ekki verið heimilt að semja við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu sveitarfélagsins vegna virkjana við Neðri-Þjórsá. Í samtali við fréttastofu sagðist Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, telja þetta vera nýja túlkun á lögum. 4.9.2009 18:55
Fyrsta alþjóðlega pókermótið á Íslandi fer fram í kvöld Fyrsta alþjóðlega pókermótið á Íslandi verður haldið á veitingastaðnum Sólon í kvöld. Átta norskir pókerspilarar og einn íslenskur munu keppa um laust sæti á pókermóti í Litháen þar sem tugmilljónir króna eru í boði fyrir sigurvegarann. 4.9.2009 20:00
Kannast ekki við samkomulag um áhættusæknari fjárfestingar Enginn stjórnarmaður hjá Styrktarsjóði hjartveikra barna kannast við að hafa undirritað nýjan samning við Landsbankann, sem heimilaði áhættusæknari fjárfestingar með fjármuni sjóðsins. Stjórnin undirritaði hins vegar viðauka, þar sem bankanum er heimilað að fjárfesta í erlendum gjaldeyri - þar er hins vegar tekið fram að 90% peninganna skuli varið í ríkisbréf. 4.9.2009 19:10
Óttast að læknar og hjúkrunarfræðingar flýi land Framkvæmdastjóri Lækninga á Landspítalanum útilokar ekki að nýútskrifaðir læknar og hjúkrunarfræðingar muni flýja land. Þá er ljóst að spítalinn mun ekki geta endurnýjað tækjakost sinn á næstu árum vegna stórfellds niðurskurðar. 4.9.2009 18:51
Forstjóri Landsvirkjunar: Við brutum ekki lög Samgönguráðuneytið hefur úrskurðað að Landsvirkjun hafi brotið lög með því að greiða fyrir skipulag vegna virkjana við Neðri-Þjórsá. Forstjóri Landsvirkjunar telur þetta nýja túlkun á lögum. 4.9.2009 18:41
Fjórðung af erlendum skuldum þjóðarbúsins má rekja til Björgólfs Björgólfur Thor Björgólfsson ber ábyrgð á um fjórðungi af erlendum brúttóskuldum íslenska þjóðarbúsins án bankanna, um eitt þúsund milljörðum króna. Viðskiptaráðherra og aðalhagfræðingur Seðlabankans segja fjarstæðukennt að halda því fram að Ísland stefni í greiðsluþrot. 4.9.2009 18:34
Stækkunarstjóri ESB á opnum fundi Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, heimsækir Ísland í næstu viku. Hann mun meðal annars halda erindi á opnum fundi næstkomandi miðvikudag um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsókn Íslendinga að sambandinu. 4.9.2009 17:58
Annasamt hjá sjúkraflutningamönnum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur haft í nógu að snúast í dag og farið í rúmlega 60 sjúkraflutninga frá því klukkan átta í morgun. Að meðaltali þurfa sjúkraflutningamenn að sinna á bilinu 30 til 40 slíkum útköllum á hverri dagvakt sem er á frá klukkan átta á morgnanna til átta á kvöldin. 4.9.2009 17:43
Innri endurskoðun skoðar mál Ólafs Stjórn Frjálslynda flokksins hefur borist tilkynning frá Reykjavíkurborg um að máli Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa, hafi verið vísað til innri endurskoðunar borgarinnar. Frá þessu er greint á vef Frjálslynda flokksins 4.9.2009 17:16
Gígjökulslys: Áverkar ekki lífshættulegir Líðan konunnar sem slasaðist við Gígjökul í dag er eftir atvikum góð, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans. Hún er með höfuðáverka en ekki er talið að þeir séu lífshættulegir. 4.9.2009 16:54
Metfjöldi erlendra ferðamanna Um 92 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í nýliðnum ágústmánuði, átta þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári sem þá var met. Erlendum gestum fjölgar því um 9,6% milli ára. Brottförum Íslendinga fækkaði hins vegar um tæp 40%, voru um 24 þúsund í ágúst í ár en um 39 þúsund á árinu 2008, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. 4.9.2009 15:54
Brasilískur flóttamaður frjáls eftir viku Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu lögreglustjórans í Reykjavík að brasilíski flóttamaðurinn Hosmany Ramos yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hann lyki 30 daga afplánun sem hann hlaut fyrir að ferðast til Íslands á vegabréfi bróður síns. 4.9.2009 15:43
Óttast að maður hafi höfuðkúpubrotnað við Gígjökul Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, fyrir stundu vegna manns sem slasaðist við Gígjökul, sem er skriðjökull sem er í norðanverðum Eyjafjallajökli. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu er talið að maðurinn hafi höfuðkúpubrotnað þegar hann varð fyrir grjóthruni. 4.9.2009 14:53
Lögreglustjórinn var fyrstur manna á vettvang Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut við Skaftahlíð um klukkan tvö í dag. Að sögn lögreglunnar voru bílarnir í vesturátt. Fólkið slasaðist minniháttar sjúkrabíll var sendur á staðinn til öryggis. Það vakti athygli vegfarenda að Stefán Eiríksson lögreglustjóri var fyrstur lögreglumanna á vettvang og tók þátt í hefðbundnum verkefnum lögreglunnar sem falla til við þessar aðstæður. 4.9.2009 14:13
Karl Wernersson stefnir fréttastjóra og fréttamönnum Stöðvar 2 og Vísis Karl Wernersson hefur stefnt fréttastjóra Stöðvar 2 og Vísis og fréttamönnunum Gunnari Erni Jónssyni og Telmu Tómasson. 4.9.2009 13:25
Landsvirkjun braut lög með greiðslum Landsvirkjun braut lög með því að greiða fyrir skipulagsvinnu Flóahrepps, vegna virkjana í Neðri-Þjórsá. Þetta kemur fram í úrskurði samgönguráðuneytisins. Samkvæmt úrskurðinum er engin heimild í lögum fyrir því að Landsvirkjun greiði sveitarfélögum fyrir vinnu við aðalskipulag. 4.9.2009 12:33
Landspítalinn sker niður um 2,8 milljarða á þessu ári Landspítalinn þarf að skera niður um 2,8 milljarða króna á þessu ári. Stjórnendur Spítalans funduðu með starfsmönnum í morgun til að kynna væntanlegar niðurskurðaraðgerðir. Framkvæmdastjóri Lækninga á Landspítalanum á ekki von á því að þjónusta muni skerðast á þessu ári. 4.9.2009 12:19
Alþjóðahús er ekki lokað Þar sem þess misskilnings gætir að Alþjóðahús hafi hætt starfsemi , er því hér með komið á framfæri að allir þættir í starfsemi hússins eru starfandi að fullu samkvæmt tilkynningu sem barst frá Alþjóðhúsinu. 4.9.2009 12:12
Stjórnvöld verða að grípa strax til aðgerða Stjórnvöld verða að horfast í augu við slæma skuldastöðu og grípa til aðgerða strax, segir Gunnar Tómasson hagfræðingur og fyrrverandi starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í aldarfjórðung. 4.9.2009 12:09
Laugavegurinn verður lokaður bílaumferð á morgun Laugavegurinn frá Frakkastíg og Bankastræti verður göngugata eftir hádegi á morgun og vonast er til þess að ökumenn geymi bifreiðar sínar ókeypis í bílahúsunum á meðan. 4.9.2009 12:00
Neitar að láta fyrrum forstjóra FME kenna sér viðskiptalögfræði Nemandi í Háskólanum í Reykjavík sendi fimmtíu og einum samnemenda og yfirstjórn skólans tölvupóst á dögunum þar sem hann baðst undan að sitja tíma sem Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóri Fjármálaeftirlitsins kennir. 4.9.2009 11:43
Gera ráð fyrir 400 þúsund bólusetningum vegna flensu á Íslandi Inflúensa A eða svokölluð svínaflensa hefur verið staðfest alls staðar á landinu nema í Vestmannaeyjum. Alls hafa 173 tilfelli af inflúensunni verið staðfest með sýnatöku hérlendis. Tilfellunum hefur farið fækkandi og er skýringin mögulega sú að sýnatökum er að fækka. 4.9.2009 11:35
Leigubílaskýlið flutt úr Lækjargötunni Til stendur að flytja leigubílaskýlið sem staðið hefur við Lækjargötu í Reykjavík yfir í Hafnarstræti og mun það standa fyrir framan hús nr. 16. Samkvæmt upplýsingum frá hverfisstöð Reykjavíkurborgar við Njarðargötu er gert ráð fyrir að nokkursskonar samgöngumiðstöð verði á planinu við Hafnarstræti og þótti því eðlilegt að flytja skýlið. Það er rétt að skemmtanaglaðir Reykvíkingar hafi þetta í huga í framtíðinni því líkur eru á að þeir grípi í tómt ef þeir ætla sér að freista þess að ná í leigubíl í Lækjargötunni í framtíðinni. 4.9.2009 10:02
Stöðugleikasáttmálinn var ekki grín Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins minnir stjórnvöld á að stöðugleikasáttmálinn hafi ekki verið undirritaður upp á grín og að brýnt sé að koma verkefnum af stað. 4.9.2009 08:10
Aldrei meiri umferð á þjóðvegum Umferð á þjóðvegum landsins var meiri í sumar en nokkru sinni fyrr, samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar. Heldur dró úr umferð í fyrrasumar og var það meðal annars rakið til bensínhækkana. 4.9.2009 07:20
Eldur í ruslagámi við Glæsibæ Eldur kviknaði í ruslagámi við Glæsibæ í Reykjavík undir morgun. 4.9.2009 07:18
Bruggverksmiðja í heimahúsi Lögreglan á Suðurnesjum gerði upptæka stórtæka bruggverksmiðju í heimahúsi í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þar fundust 40 lítrar af tilbúnum landa og 300 lítrar af gambra, ásamt áhöldum og tækjum til bruggunar og átöppunar. 4.9.2009 07:13
Tekinn tvisvar á sama klukkutíma Ökumaður var tekinn tvisvar á sama klukkutímanum í nótt fyrir of hraðan akstur. Annars vegar á Breiðholtsbraut á hundrað kílómetra hraða og hins vegar á Reykjanesbraut á 110 kílómetra hraða. 4.9.2009 07:11
Lentu í árekstri undir áhrifum Tveir voru fluttir á slysadeild og síðan í fangageymslur eftir árekstur tveggja bíla á Nýbýlavegi í nótt. Mennirnir voru í öðrum bílnum, en ökumann hins bílsins sakaði ekki. 4.9.2009 07:08
Forstjórinn segir þörf á hörðum aðgerðum Reynt verður eftir fremsta megni að komast hjá uppsögnum á Landspítalanum þótt mikill niðurskurðir blasi við. Þetta segir Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, sem mun funda með starfsfólki spítalans í dag. Þó sé líklegt að starfshlutfall verði skert eða vöktum breytt. 4.9.2009 07:00
Starfsgreinasambandið kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar Stöðugleikasáttmáli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins var ekki undirritaður upp á grín, segir Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins í nýjum pistli á vef sambandsins. Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins leggur á það ríka áherslu að nú þurfi að koma verkefnunum af stað. 3.9.2009 23:26
Vill heildstæða löggjöf um þjóðaratkvæðagreiðslur Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, vill að sett verði heildstæð lög um þjóðaratkvæðagreiðslur þannig að þjóðin geti sagt álit sitt í veigamiklum málum sem snerta þjóðina. 3.9.2009 21:48
Hvers vegna eiga Íslendingar að greiða Icesave? Af hverju ætti fólk sem kom hvergi nálægt Icesave reikningunum að greiða fyrir þá, bara af því að þeir búa á Íslandi? Þessarar spurningar spyr Nathan Lewis, sjóðsstjóri og pistlahöfundur á Huffington Post. 3.9.2009 19:42
Fjölskyldufyrirtækið Nýja Kaupþing Svo virðist vera sem fjölskylda Bjarna Jónssonar útvegsbónda úr Strandasýslu hafi náð töglum og höldum á Nýja Kaupþingi. 3.9.2009 21:16
Sögufrægt herskip fundið á botni Faxaflóa Staðfesting fékkst á því í dag að skipsflak á botni Faxaflóa, sem neðansjávarmyndir náðust af á mánudag, er sögufrægt bandarískt herskip, sem þýskur kafbátur sökkti í seinni heimstyrjöld. Gat eftir tundurskeyti sést greinilega á skipsskrokknum. 3.9.2009 18:50
Fundu 440 kannabisplöntur í Árbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Árbænum síðdegis í gær. 3.9.2009 18:25
Varaþingmaður vill að forseti skýri afstöðu sína í Icesave málinu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, þarf að útskýra hvers vegna hann synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar en ekki lögum um ríkisábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans, segir Sigurður Kári Kristjánsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns flokksins. 3.9.2009 18:17
Stöðvaður á yfir 190 kílómetra hraða Ökumaður á vélhjóli var stöðvaður eftir að hann hafði mælst á 192 kílómetra hraða á þjóðvegi 1, rétt austan við Selfoss eftir hádegið í dag. Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Maðurinn verður ákærður vegna athæfisins enda sagði lögreglumaður á Selfossi í samtali við Vísi að hraðinn væri það mikill að hann væri búinn að sprengja alla „sektarskala". 3.9.2009 17:36
Bílþjófur handtekinn í Laugardal Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Laugardal í gærkvöld vegna bílþjófnaðar. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Bílnum var stolið í Kópavogi fyrr um daginn. 3.9.2009 16:45
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent