Ólafur F.: Herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars Magnús Már Guðmundsson skrifar 4. september 2009 21:51 Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista og óháðra. Mynd/GVA „
Ég held því miður að þetta sé sameiginlegt herbragð Hönnu Birnu og Guðjóns Arnars. Þessir tveir fjandvinir mínir eru að reyna að koma á mig höggi. Hanna Birna ber þær sakir reyndar af sér," segir borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon. Frjálslyndi flokkurinn íhugar að kæra Ólaf fyrir fjárdrátt. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, sagði fyrr í vikunni að Ólafur hafi látið greiða lögbundinn styrk borgarinnar til stjórnmálaflokka inn á eigin reikning í stað Frjálslynda flokksins. Greiðslurnar geta numið allt að þremur milljónum króna á ári. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur verið falið að fara yfir málið. Ólafar undrast að það sem kallar lágkúrulegt erindi hafi verið vísað til innri endurskoðunar borgarinnar. Hann viti að Guðjón Arnar hafi ætlað að setja sig í samband við Hönnu Birnu Kristjánsdóttir, borgarstjóra, vegna málsins. Saman reyni þau að koma á sig höggi. Borgarfulltrúinn fagnar þó yfirferð innri endurskoðunar. Hans skjöldur sé hreinn. Ólafur segir borgarmálafélag F-listans, sem stofnað var utan um starfsemi borgarstjórnarflokksins, hafa fyrir því lögfræðiálit að fjárframlagið eigi að renna til framboðsins og Frjálslyndra og óháðra, en ekki til flokksins á landsvísu. Ólafur kveðst hafa hlegið þegar hann heyrði fyrst af málinu. Guðjón Arnar og Magnús Reynir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, séu með allt niðrum sig. Magnús hafi sérstakt lag á því að fara illa með fjármuni og fæla fólk frá flokknum. „Margur heldur mig sig. Ég tileinka þeim fóstbræðrum þau orð."
Tengdar fréttir Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31. ágúst 2009 10:03 Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig. 3. september 2009 10:40 Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr „Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. 31. ágúst 2009 11:35 Ætlar í mál við Ríkisútvarpið Borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn Ríkisútvarpinu vegna fréttaflutnings af deilum hans við Frjálslynda flokkinn um fjárframlög frá Reykjavíkurborg. Ólafur kvaddi sér hljóðs á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og kynnti þessi áform sín. 3. september 2009 05:45 Innri endurskoðun skoðar mál Ólafs Stjórn Frjálslynda flokksins hefur borist tilkynning frá Reykjavíkurborg um að máli Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa, hafi verið vísað til innri endurskoðunar borgarinnar. Frá þessu er greint á vef Frjálslynda flokksins 4. september 2009 17:16 Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira
Íhuga að kæra Ólaf F. fyrir fjárdrátt „Málið er að þegar hann var borgarstjóri lét hann færa þetta fé á eigin reikning án samráðs við okkur," segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. 31. ágúst 2009 10:03
Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig. 3. september 2009 10:40
Ólafur F.: Með jafnhreinan skjöld nú sem fyrr „Árið 2008 var ekki unað við það af okkar hálfu að flokkur úti í bæ sem var ekkert að vinna með okkur ætlaði að fá aftur þetta fé annað árið í röð til þess eins í besta falli að klekkja á okkur, en ekki til að láta fjármuni renna til framboðsins," segir Ólafur F. Magnússon, óháður borgarfulltrúi. 31. ágúst 2009 11:35
Ætlar í mál við Ríkisútvarpið Borgarfulltrúinn Ólafur F. Magnússon hefur ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn Ríkisútvarpinu vegna fréttaflutnings af deilum hans við Frjálslynda flokkinn um fjárframlög frá Reykjavíkurborg. Ólafur kvaddi sér hljóðs á borgarstjórnarfundi á þriðjudag og kynnti þessi áform sín. 3. september 2009 05:45
Innri endurskoðun skoðar mál Ólafs Stjórn Frjálslynda flokksins hefur borist tilkynning frá Reykjavíkurborg um að máli Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa, hafi verið vísað til innri endurskoðunar borgarinnar. Frá þessu er greint á vef Frjálslynda flokksins 4. september 2009 17:16