Innlent

Málflutningur dylgjur einar

Bjarni Ó. Halldórsson
Bjarni Ó. Halldórsson

Bjarni Ó. Halldórsson, framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi, segir fullyrðingar forsvarsmanna Sementsverksmiðjunnar um að fyrirtæki hans hafi staðið fyrir undirboðum á markaði í tæpan áratug dylgjur og til marks um óheiðarleika.

Framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar sendi frá sér bréf nýlega þar sem hann sakar Aal­borg Portland um brot á samkeppnislögum. Var það nýjasta innleggið í orðastríð forystumanna framleiðanda og innflytjanda á sementsmarkaði.

Bjarni segir málflutning forsvarsmanna Sementsverksmiðjunnar marklausan með öllu og gagnrýnir að „ráðherrann Jón Bjarnason og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Jón Steindór Valdimarsson, lýsi opinberlega að þeir vilji íslenska einokun á sementi.

„Það eru uppi ásakanir um undirboð. Þar rekst hvað á annars horn í bullinu, flest á röngunni og rest á haus,“ segir Bjarni.

„Kjarni málsins er þessi: Tilgangur alls þessa dæmalausa málatilbúnaðar er úrslitatilraun til þess að flæma Aalborg Portland frá íslenskum markaði.“

Samtök iðnaðarins hafa sent frá sér ályktun þar sem því er hafnað að samtökin hafi hvatt til einokunar, eins og Bjarni hefur haldið fram.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×