Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Trukk sett í sameiningu sveitarfélaga Kristján Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála, og Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitarfélaga, hafa ákveðið að hefja vinnu við mótun tillagna um leiðir til frekari sameiningar sveitarfélaga. Er það liður í átaki til eflingar sveitarstjórnarstigsins.Undirrituðu þeir samkomulag þess efnis í gær. 30.9.2009 04:30
Hersveitir forsetans myrtu 157 mótmælendur í höfuðborginni Hermenn, angandi af áfengi, skutu úr byssum sínum þegar þeir komu inn í Conakry, höfuðborg Vestur-Afríkuríkisins Gíneu í í gær. 30.9.2009 04:00
Fullyrða að ný gjöld aftri endurreisn „Samtök aðila í atvinnurekstri vara við þeirri skattastefnu stjórnvalda að leggja nýjar tegundir gjalda á atvinnureksturinn og hvetja til þess að megináherslan verði lögð á uppbyggingu og sköpun starfa,“ segir í ályktun Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins. 30.9.2009 03:30
Bjóða upp á hugvekju við setningu Alþingis Alþingi verður sett á fimmtudaginn en löng hefð er fyrir því að setningin hefjist með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Við síðustu þingsetningu varð breyting þar á þegar Siðmennt bauð þeim alþingismönnum sem ekki kjósa að ganga til kirkju upp á annan valkost. 29.9.2009 22:15
Segir andstæðinga sína skemmdarvarga Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksisn ritar snarpann pistil á heimasíðu sína í kvöld. Þar fer hann yfir viðbrögð nokkurra ráðherra nú þegar íslendinga vantar sárlega erlenda fjárfestingu og útflutningstekjur eins og hann orðar það. 29.9.2009 21:24
Lögreglan fann kókaín og stera Fíkniefni fundust við húsleitir á tveimur stöðum í Grafarholti um helgina. Á öðrum staðnum var um að ræða hátt í 200 grömm af fíkniefnum, aðallega marijúana en einnig kókaín. Jafnframt var lagt hald á stera. Piltur um tvítugt hefur viðurkennt að eiga fíkniefnin en hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu í málum sem tengjast sölu og dreifingu fíkniefna. Á hinum staðnum fundust um 60 grömm af amfetamíni og einnig marijúana en í minna mæli. Eigandi fíkniefnanna er karl á þrítugsaldri en hann hefur sömuleiðis komið við sögu hjá lögreglu áður. 29.9.2009 20:40
Beðinn að klippa út atriði úr heimildarmynd um hrunið Helgi Felixsson sem frumsýnir á næstu dögum heimildarmyndina, Guð blessi Ísland, segist hafa verið beittur miklum þrýstingi frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni sem hefur gert alvarlegar athugasemdir við viðtal sem birtist við sig í myndinni. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld. 29.9.2009 20:01
Hefur beðið um fund vegna löggæslumála Ólöf Nordal þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur óskað eftir fundi í alsherjarnefnd til þess að fara yfir þær hugmyndir er snúa að breytingum varðandi löggæslumál og sýslumannsembættin í landinu. Hún á ekki von á öðru en að Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður alsherjarnefndar bregðist vel við og fari yfir þessi mál. 29.9.2009 19:30
„2007“ kom aldrei til heilbrigðisstarfsmanna Stjórn Sjúkraliðafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á heilbrigðisþjónustu landsmanna. Niðurskurður á fjárveitingum til sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu skerðir þjónustu við alla sem þurfa á henni að halda. Niðurskurðurinn veldur stórauknu álagi á starfsfólk, með tilheyrandi eftirmálum; óbætanlegu heilsutjóni, kvíða og óöryggi. Er ekki mál að linni? 29.9.2009 18:36
Gleymdi að kynna aðgerðaráætlun stjórnvalda Félagsmálaráðherra gleymdi að kynna aðgerðaráætlun stjórnvalda um lækkun lána fyrir skilanefnd Kaupþings, sem á níutíu prósent húsnæðislána bankans. Hann viðurkennir að hafa gert mistök, en segir stefnt að því að kynna aðgerðirnar á morgun engu að síður. 29.9.2009 18:29
Segir umhverfisráðherra ekki koma hreint fram Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir útspil umhverfisráðherra að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vegna Suðvesturlínu á milli Hellisheiða og Helguvíkur og annarra tengdra framkvæmda tefja áætlanir um orkuflutning. Með þessu sé umhverfisráðherra að setja álverið í Helguvík í hættu. Líkt og fram kom á Vísi fyrr í dag hefur málinu verið vísað aftur til Skipulagsstofnunar til efnislegrar meðferðar og úrlausna. 29.9.2009 17:19
Þjóðleikhússtjóri skipaður á morgun Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, skipar á morgun í stöðu Þjóðleikhússtjóra til næstu fimm ára. Í samtali við fréttastofu var Katrín þögul sem gröfin og vildi ekki gefa upp hvern hún muni skipa. 29.9.2009 16:47
Líkfundamaður snýr aftur - aftur Litháinn Tomas Malakauskas, sem var dæmdur í líkfundarmálinu á Neskaupstað árið 2005 er snúinn aftur til Íslands. Hann var gripinn á Leifsstöð þegar hann kom hingað til lands frá Danmörku 25. september. 29.9.2009 16:45
Ráðherrar ósamstíga í yfirlýsingum um skuldaleiðréttingu Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýnir ósamræmi í yfirlýsingum ráðherra um skuldaleiðréttingu heimilanna. Hún segir óstjórn einkenna verkstjórn forsætisráðherra. 29.9.2009 15:51
Úrskurður umhverfisráðherra sigur fyrir náttúruvernd Náttúruverndarsamtök Íslands fagna úrskurði Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um að fella úr gildi þá ákvörðun Skipulagsstofnunar að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vegna Suðvesturlínu á milli Hellisheiði og Helguvíkur og öðrum tengdum framkvæmdum. Samtökin segja úrskurðinn sigur fyrir náttúruvernd. 29.9.2009 15:34
Hannes Hólmsteinn mætir á þing ungs Samfylkingarfólks Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, verður meðal gesta á landsþingi Ungra jafnaðarmanna sem fer fram um helgina í Reykjavík. Á þinginu munu hann og Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, takast á í sérstökum kappræðum um hvaða hugmyndafræði eigi að hafa að leiðarljósi í uppbyggingu Íslands. 29.9.2009 15:20
Svandís fellir ákvörðun Skipulagsstofnunar úr gildi Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda vegna Suðvesturlínu á milli Hellisheiði og Helguvíkur og öðrum tengdum framkvæmdum. Málinu hefur verið vísað aftur til Skipulagsstofnunar til efnilegrar meðferðar og úrlausnar. 29.9.2009 14:50
Duftgarður vígður í Öskjuhlíð Duftgarður á milli Perlunnar og Fossvogskirkjugarðs verður vígður næstkomandi föstudag. Hann hefur fengið nafnið Sólland. Framkvæmdir við garðinn hófust sumarið 2005 og hefur síðan verið haldið áfram eins og fjármagn hefur leyft, að fram kemur í tilkynningu. Tveir hólmar og fjögur skógarsvæði verða tekin í notkun í þessum fyrsta áfanga. 29.9.2009 14:47
Kannast ekki við World Class vændiskonuna „Þetta hefur aldrei komið upp og ég kannast ekkert við þetta,“ segir Dísa Jónsdóttir eigandi World Class en frétt birtist í dag á eyjan.is þar sem greint er frá því að heilsunuddari af erlendu bergi brotnu hafi stundað vændi inn á líkamsræktarstöð World Class. Samkvæmt fréttinni á stúlkan, sem á að vera á tvítugsaldri, að hafa starfað sem heilsunuddari. 29.9.2009 14:42
Ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot - í fyrsta sinn í sögu unglingaheimila Búið er að gefa úr ákæru á hendur manni á fertugsaldri vegna alvarlegra kynferðisbrota gagnvart unglingsstúlkum á meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal. 29.9.2009 14:03
Mikilvægt að þjónusta við áhættufæðingar sé fyrir hendi Það er brýnt að þjónusta við áhættufæðingar sé fyrir hendi í heimabyggð, segir formaður Samtaka sunnlenskra kvenna. Hugmyndir eru um að leggja niður keisaraskurði í hagræðingarskyni á Akranesi og Reykjanesbæ. 29.9.2009 12:33
Stal jólaskrauti á Akranesi Maður var handtekinn við þjófnað úr ólæstri geymslu á Akranesi. Var hann í óðaönn að bera muni, aðallega jólaskraut, út úr geymslunni þegar til hans sást. Þá hafði hann unnið talsverðar skemmdir í geymslunni, rifið niður ljós og utanáliggjandi raflagnir. 29.9.2009 12:21
Garðyrkjubændur funda vegna tíðra innbrota Lögreglan í Árnessýslu leitar enn innbrotsþjófs, sem ógnaði öryggisverði með exi, þegar hann kom að þjófinum á innbrotsstað í gróðurhúsi í Hveragerði í fyrrinótt. Garðyrkjubændur eru orðnir langþreyttir á lampastuldum og hafa blásið til fundar um málið á morgun. 29.9.2009 12:16
Afskriftaleiðin kemur Íslandsbanka til góða Afskriftaleið Íslandsbanka er gerð á viðskiptalegum forsendum og mun koma bankanum til góða, segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. Skuldbreyti viðskiptavinir erlendum lánum í íslensk þá bæti það gjaldeyrisjöfnuð bankans. 29.9.2009 12:06
Lögin passa ekki við veruleikann „Við erum sammála um það í nefndinni að lögin þyrftu að passa betur við veruleikann," segir Unnur Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu hér á landi. 29.9.2009 11:54
Ódæðið í Reykjanesbæ: Fjölskylda konunnar í áfalli „Við erum bara í sjokki,“ segir systir Selmu Guðnadóttur sem situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa stungið fimm ára gamla telpu í bringuna í Reykjanesbæ um helgina. 29.9.2009 11:28
Krufning liggur fyrir - lést af slysförum Karlmaðurinn sem fannst látinn í Reykjavíkurhöfn sunnudaginn 13. september lést af slysförum og tengist andlát hans ekki saknæmu athæfi, að sögn lögreglu. Krufning leiddi í ljós að maðurinn drukknaði. Engin vitni voru að slysinu. 29.9.2009 11:23
Óákveðið hver tekur sæti Magnúsar í bankaráði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé búið að ákveða hver taki sæti í bankaráði Seðlabankans sem fulltrúi flokksins í stað Magnúsar Árna Skúlasonar sem sagði sig úr ráðinu fyrir rúmum hálfu mánuði. Sigmundur á von á því að þingflokkurinn afgreiði málið fljótlega eftir að þingstörf hefjast á nýjan leik, en Alþingi kemur saman næstkomandi fimmtudag. 29.9.2009 10:38
Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Þriggja bíla árekstur varð á Miklubraut við Skaftahlíð á tíunda tímanum í dag. Bílarnir óku í vesturátt. Ekki lítur út fyrir að slys hafi orðið á fólki. Búast má við einhverjum töfum vegna þessa. 29.9.2009 10:01
Rúða í Lífeyrissjóði Vestmannaeyja brotin Rúða var brotin í húsnæði Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja að morgni 21. septembers. Lögreglan telur að rúðan hafi verið brotin um nóttina. Ekki er vitað hver var að verki. 29.9.2009 09:51
Hraðamyndavélar settar upp á milli Hveragerðis og Selfoss Á fimmtudaginn verða tvær hraðamyndavélar á Hringvegi milli Hveragerðis og Selfoss teknar í notkun. Jafnframt hefur verið bætt við nýrri hraðamyndavél í Hvalfjarðargöngum sem verður gangsett á sama tíma. 29.9.2009 09:48
Ung vinstri græn vilja heimila hústökur Ung vinstri græn hvetja Alþingi til að mynda lagalega umgjörð til að heimila hústökur. Þau vilja að ákveðnum skilyrðum uppfylltum verði löglegt að taka yfir hús hafi það staðið autt í 12 mánuði og ljóst þyki að eigandi þess ætli ekki að nota það í nánustu framtíð. Þetta er meðal þeirra ályktana sem samþykktar voru á landsfundi hreyfingarinnar um síðustu helgi. 29.9.2009 09:40
Harma afstöðu stjórnarinnar til atvinnusköpunar Sameiginlegur fundur þingflokks framsóknarmanna og landsstjórnar Framsóknarflokksins, sem lauk í gærkvöldi, harmar að ríkisstjórnin skuli ekki standa heilshugar að baki viðleitni Norðlendinga til atvinnusköpunar. 29.9.2009 07:19
Leita vopnaðs innbrotsþjófs Lögreglan í Árnessýslu leitar enn innbrotsþjófs, sem ógnaði öryggisverði með exi, þegar hann kom að þjófnum á innbrotsstað í gróðurhúsi í Hveragerði um miðnæturbil í fyrrinótt. 29.9.2009 07:17
Sofnaði undir stýri á Sauðárkróki Ölvaður ökumaður gistir nú fangageymslurnar á Sauðárkróki eftir að hafa ekið utan í kyrrstæðan bíl þar í bæ í gærkvöldi. 29.9.2009 07:08
Verkfærum stolið í innbroti við Viðarhöfða Brotist var inn í fyrirtæki við Viðarhöfða í Reykjavík í nótt og þaðan stolið nokkrum dýrum handverkfærum af DeWalt-gerð. Þjófurinn komst undan. 29.9.2009 07:04
Feitum hefur fjölgað mikið Of feitum Íslendingum hefur fjölgað hratt undanfarin sautján ár. Þeir voru um tíu prósent þjóðarinnar árið 1990 en eru um tuttugu prósent í dag. Til að sporna við þessari þróun eru forvarnir besta ráðið og þá er einkar mikilvægt að beina sjónum sínum að börnum og unglingum, segir Stefán Hrafn Jónsson, einn höfunda skýrslunnar Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990 til 2007, sem kynnt var í gær. 29.9.2009 06:00
Breytingar kalla á nýja hugsun Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í viðamiklar breytingar og endurskipulagningu á verkefnum ráðuneyta og stofnana. Markmið þeirra er meðal annars að forgangsraða í ríkisrekstrinum, auka skilvirkni og nýta fjármuni á sem árangursríkastan hátt. 29.9.2009 06:00
Árásarkonan í Keflavík var allsgáð Konan sem handtekin var í Keflavík á sunnudag fyrir að stinga fimm ára stúlku í brjóstið hefur játað brotið. Hún var hvorki undir áhrifum áfengis né vímuefna þegar árásin var gerð, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Henni hefur verið gert að gangast undir geðrannsókn. 29.9.2009 06:00
Skulda þjóðinni afsökunarbeiðni Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist sjá eftir því að hafa ekki gengið miklu harðar fram í því að koma Icesave úr útibúi Landsbankans á Íslandi yfir í erlend dótturfélög. 29.9.2009 05:30
Fimm með illræmda sýkingu Á síðustu dögum hafa fimm greinst með sýkingu af völdum E. coli-bakteríunnar illræmdu, samkvæmt upplýsingum landlæknisembættisins. 29.9.2009 05:00
Skuldavandi heimila er viðráðanlegur Útfærsla endanlegra aðgerða til að koma til móts við þá sem eiga í mestum skuldavanda er á lokastigi. Er aðgerðunum ætlað að gilda um alla, sama hvar þeir skulda og sama hverrar tegundar lán þeirra eru. 29.9.2009 04:30
Gróðabrask ástæða skulda í sjávarútvegi Yfirskuldsetningu sjávarútvegsfyrirtækja má að stórum hluta rekja til annars en reksturs fyrirtækjanna. Nálægt helmingur skulda sjávarútvegsins er til kominn vegna hlutabréfakaupa, afleiðusamninga og skuldsettra yfirtöku fyrirtækja. 29.9.2009 04:00
Telja tengdason biskups hæfastan Valnefnd innan Þjóðkirkjunnar mælir með Sigurði Arnarsyni í stöðu sóknarprests í Kársneskirkju í Kópavogi. Sigurður er tengdasonur séra Karls Sigurbjörnssonar biskups. 29.9.2009 03:30
Halda samt áfram að meta Bakka stóriðja Rannsóknir á fjárhagslegri hagkvæmni álvers á Bakka halda áfram þó að ríkisstjórnin hafi ákveðið að framlengja ekki sérstaka viljayfirlýsingu þar um. 29.9.2009 03:00