Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bæjarstjórn á Álftanesi kynnt Þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Margrét Jónsdóttir hafa myndað „starfhæfa bæjarstjórn“, samkvæmt tilkynningu frá þeim í gær. 29.9.2009 01:00
Mynda mannlegt friðarmerki Til stendur að mynda mannlegt risavaxið friðarmerki á Klambratúni á föstudaginn. 29.9.2009 00:30
Ungliðahreyfing fagnar ráðningu Davíðs Oddssonar Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði fagna ráðningu Davíðs Oddssonar í starf ritstjóra Morgunblaðsins en ályktun þess efnis var samþykkt á aðalfundi félagsins nú um helgina. Í ályktuninni segir meðal annars að með þessu hafi eigendur Morgunblaðsins fellt niður hálfrar aldar bleika grímu blaðsins. 28.9.2009 20:18
Framsóknarmenn fagna hugmyndum um skuldaleiðréttingu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir það vera fagnaðarefni ákveði ríkisstjórnin að leiðrétta skuldir heimilanna líkt og greint frá um helgina. Hann eigi þó eftir að sjá hvernig þetta verið útfært. 28.9.2009 16:45
LSH: Yfirvinna skert og aksturssamningar afnumdir Hátt í tvö þúsund starfsmenn Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH) hafa á síðustu dögum fengið send bréf þar sem þeim eru kynntar breytingar sem gera á á starfskjörum þeirra. Að sögn Björns Zöega forstjóra spítalans er um að ræða uppsögn á aksturssamningum auk þess sem föst yfirvinna verður lækkuð í 10 prósent af starfshlutfalli. 28.9.2009 16:42
Drengurinn kominn í leitirnar 16 ára gamall drengur sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í morgun, Ólafur Benedikt Þórarinsson, er kominn í leitirnar. Lögreglan á Suðurnesjum þakkar veitta aðstoð. 28.9.2009 16:10
Gefur kost á sér sem formaður Ungra jafnaðarmanna Dagný Ósk Aradóttir Pind, 24 ára meistaranemi í lögfræði við Háskóla Íslands, gefur kost á sér sem formaður Ungra jafnarðarmanna en landsþing hreyfingarinnar sem fer fram í Reykjavík um næstu helgi. Þá lætur Anna Pála Sverrisdóttir af embætti sem formaður en hún gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu. 28.9.2009 16:04
Ríkisstjórnin með viðamiklar breytingar í burðarliðnum Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ráðast í viðamiklar breytingar og endurskipulagningu á verkefnum ráðuneyta og stofnana. Markmiðið með breytingunum er að nýta fjármuni betur og að forgangsraða í ríkisrekstrinum með nýjum hætti og verja grunnþjónustuna, að fram kemur á vef forsætisráðuneytisins. Landinu verður skipt upp í 5-6 svæði. 28.9.2009 15:47
Ísland með þriðju bestu heilbrigðisþjónustuna í Evrópu Ísland hafnaði í þriðja sæti í samanburði gæðaviðmiða í heilbrigðisþjónustu í 33 Evrópuríkjum með 811 stig af 1000 mögulegum. Í úttektinni er gæðaviðmiðum skipt í sex meginsvið sem hafa mestu þýðingu fyrir notendur heilbrigðisþjónustu. 28.9.2009 15:27
Nýr formaður SUS: Skilur gagnrýnisraddir varðandi leiguflug Ólafur Örn Nielsen nýkjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segist skilja að vissu leyti þær gagnrýnisraddir sem hafa verið uppi um kosningar til formanns sambandsins um helgina. Einungis átta atkvæði skildu að Ólaf og keppinaut hans, Fanneyju Birnu Jónsdóttur. Leiguvél með 50 stuðningsmönnum Ólafs mætti á Ísafjörð á sunnudagsmorgun til þess að taka þátt í kosningunum. 28.9.2009 14:15
Niðurstöðu að vænta í máli séra Gunnars Mál séra Gunnars Björnssonar er komið inn á borð Karls Sigurbjörnssonar biskups og er ákvörðunar að vænta. Gunnar hefur verið í leyfi frá störfum sem prestur á Selfossi frá því hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn sóknarbörnum sínum vorið 2008. Biskupsstofa hefur ítrekað framlengt leyfið en það rennur út næstkomandi fimmtudag. Ákveði biskup ekki annað getur Gunnar snúið til baka í lok vikunnar sem sóknarprestur á Selfossi. 28.9.2009 14:13
Faðir lét 13 ára gamlan son sinn keyra Þegar lögreglumenn á Selfossi stöðvuðu við hefðbundið eftirlit akstur bifreiðar í gær kom í ljós að ökumaðurinn var 13 ára gamall. Faðir hans var með í för og hafði leyft drengnum að aka bifreiðinni. 28.9.2009 12:56
Lampaþjófur vopnaður exi Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning klukkan hálf eitt í nótt frá öryggisverði Securitas um yfirstandandi innbrot í gróðurhús í Hveragerði. Þegar öryggisvörður hringdi á lögreglu kom innbrotsþjófurinn að honum með exi í hönd. Maðurinn ógnaði ekki öryggisverðinum. Þegar lögregla kom á staðinn var hann á bak og burt og þrátt fyrir leit fannst maðurinn ekki. 28.9.2009 12:48
Jónas Ingi og Tindur fengu þunga dóma Jónas Ingi Ragnarsson var dæmdur í tíu ára fangelsi og Tindur Jónsson í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir aðild sína að fíkniefnaverksmiðju sem var upprætt í Hafnarfirði í fyrra sumar. 28.9.2009 11:56
Utanríkisráðuneytið styrkir UNICEF Íslandsnefnd Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, hefur fengið átta milljónir króna úthlutað frá utanríkisráðuneytinu vegna langvinns neyðarástands í Austur-Kongó. Styrkurinn rennur til verkefna barnahjálparinnar gegn kynferðisofbeldi og aðstoðar konur og stúlkur sem hefur verið nauðgað en kynferðisofbeldi er beitt í landinu í hernaðarlegum tilgangi. 28.9.2009 11:45
Árásarkonan í Keflavík hefur játað - gert að sæta geðrannsókn Tuttugu og tveggja ára gömul kona sem handtekin var í Keflavík vegna árásar á fimm ára gamla stúlku í gærdag hefur játað að hafa stungið stúlkuna. Hún var úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness fyrir stundu. 28.9.2009 11:15
Valnefnd mælir með tengdasyni biskups Valnefnd leggur til að tengdasonur biskups verði skipaður sóknarprestur í Kársneskirkju í Kópavogi. Formaður sóknarnefndar segir faglega hafa verið að staðið að málum. Þjóðkirkjan var dæmd skaðabótaskyld þegar tengdasonurinn var ráðinn sendiráðsprestur í London haustið 2003. 28.9.2009 11:15
Vill fund með iðnaðarráðherra Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur beðið um fund með iðnaðarráðherra vegna ákvörðunnar ríkisstjórnarinnar um að framlengja ekki viljayfirlýsingu um álver á Bakka. Hún segist búast við svari frá ráðherra í dag. 28.9.2009 10:47
„Starfhæf bæjarstjórn" mynduð á Álftanesi Starfhæf bæjarstjórn hefur verið mynduð á Álftanesi með aðkomu þriggja fulltrúa D-lista og Margrétar Jónsdóttur sem var áður í bæjarstjórn fyrir Á-lista. Margrét sagði í sumar skilið við félaga sína í bæjarstjórnarhópi Á-listans og er nú óháð. Í samvinnu við bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks samþykkti Margrét að segja bæjarstjóranum Sigurði Magnússyni af Á-listanum upp störfum á dögunum. 28.9.2009 10:36
Gæsluvarðhalds krafist yfir konunni í Keflavík Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík hefur konan sem handtekin var í gær vegna árásar á 5 ára stúlku verið yfirheyrð. Hún verður síðan leidd fyrir dómara innan skamms þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir henni. 28.9.2009 09:50
Lýst eftir dreng frá Grindavík Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Ólafi Benedikt Þórarinssyni til heimilis að Staðarvör 8, Grindavík. Ólafur er 16 ára, 183 cm á hæð, þrekvaxinn um 95 kg. með dökkt stuttklippt hár. Í tilkynningu frá Lögreglu segir að Ólafur hafi verið klæddur í dökkar buxur, svarta köflótta skyrtu og svartan jakka. 28.9.2009 09:35
Steinunn lætur af embætti UVG Jan Eric Jessen var kjörinn nýr formaður Ungra vinstri grænna á landsfundi félagsins í gærkvöldi. 28.9.2009 07:23
Togstreita stjórnar veldur búsifjum Togstreita innan ríkisstjórnarinnar í samskiptum við erlenda fjárfesta og beislun og nýtingu orkuauðlinda er á góðri leið með að valda þjóðinni miklum búsifjum, segir í ályktun stjórnar Samtaka iðnaðarins. 28.9.2009 07:18
Struku af unglingaheimili Tvær unglingsstúlkur, sem struku af unglingaheimili við Eyjafjörð í gær, gáfu sig fram í nótt og flutti lögreglan þær á heimilið aftur. 28.9.2009 07:16
Flughált á Öxnadalsheiði Mikil hálka var á Öxnadalsheiði í gærkvöldi og rann bíll utan í snjótönn á kyrrstæðum snjóruðningsbíl. 28.9.2009 07:09
Þrjú innbrot í nótt Brotist var inn í fyrirtæki við Flugvallarveg, Bíldshöfða og Suðurlandsbraut í Reykjavík í nótt og komust þjófarnir undan í öllum tilvikum. 28.9.2009 07:06
Mat geðlækna ekki aðalatriði Óvíst er hvort þær bætur sem eyrnamerktar voru Breiðavíkurdrengjum í fjáraukalögum 2008, rúmar 120 milljónir, muni renna til fórnarlambanna óskiptar, eða hvort rannsóknarnefnd Breiðavíkurmálsins eigi að þiggja laun sín úr þeim potti. Nefndarstörf kosta nú um sextíu milljónir. 28.9.2009 06:45
Skoðar hertar reglur til að stöðva netníð Réttarfarsnefnd mun skoða hvort breyta eigi lögum til að taka á ólöglegri birtingu persónuupplýsinga á netinu í kjölfar ábendinga Persónuverndar, segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. 28.9.2009 06:00
Stóraukin ásókn í sjóði stéttarfélaga Ásókn í styrktarsjóði stéttarfélaga hefur aukist umtalsvert frá því að kreppan skall á. Hjá þeim stéttarfélögum sem haft var samband við stóð þó ekki til að skerða greiðslur úr sjóðunum, sem eru sagðir standa vel þrátt fyrir að tekjur hafi í sumum tilvikum einnig dregist saman. 28.9.2009 06:00
Óttast ásókn í skattfé almennings Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra vill skoða vel hugmyndir um einkarekið sjúkrahús, en óttast afleiðingar þess að opna dyr einkarekinnar heilbrigðisþjónustu hér á landi. 28.9.2009 05:30
Hægt væri að selja almenningi aðgang „Niðurstaðan úr söfnuninni sýnir skýrt hvað þjóðin vill. Hún vill að þessir hlutir séu í lagi,“ segir Edda Heiðrún Backman leikkona sem haldið hefur utan um söfnunina Á rás fyrir Grensás. Á föstudagskvöld söfnuðust 120 milljónir króna í peningum og um 20 milljónir í formi vinnuframlags. 28.9.2009 05:00
Óttast að missa starfsfólk Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA), býst við að stofnunin þurfi að skera niður um 100-150 milljónir króna á næsta ári. Hann býst jafnvel við enn meiri niðurskurði næstu ár á eftir, eða um allt að 25 prósent af því rekstrarfé sem stofnunin hefur haft. 28.9.2009 04:30
Háværum kröfum um útboð ekki sinnt Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum á þriðjudag, með atkvæðum meirihlutans, að fara ekki í útboð á tölvuþjónustu bæjarins. Þess í stað var samningur við fyrirtækið T. Þ. SecureStore framlengdur, en það er í eigu Bjarna Ármannssonar og Arnar Gunnarssonar. Örn er sonur Gunnar Sigurðssonar, forseta bæjarstjórnar. 28.9.2009 03:15
Munaði millimetrum að hnífurinn færi í hjarta stúlkunnar Eggvopnið, sem 22 ára gömul stúlka beitti gegn 5 ára gamalli stelpu á Suðurgötu í Keflavík í dag, var aðeins millimetrum frá því að fara í hjarta stúlkunnar. 27.9.2009 19:55
Karen Lind fundin Karen Lind Sigurpálsdóttir sem lögreglan lýsti eftir í gær er fundin. Hún fannst á Akureyri í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 27.9.2009 20:35
Nýr formaður kjörinn í SUS Ólafur Örn Níelsen var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna á sambandsþingi sem fram fór á Ísafirði um helgina. Fanney Birna Jónsdóttir fyrrverandi formaður Heimdallar bauð sig fram gegn Ólafi og hlaut Ólafur 106 atkvæði en Fanney Birna 98. 27.9.2009 15:00
Sveitarfélög áforma nýja viljayfirlýsingu við Alcoa Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að endurnýja ekki viljayfirlýsingu við Alcoa virðist engu breyta um undirbúning álvers á Bakka því sveitarfélögin áforma í staðinn að skrifa upp á nýja viljayfirlýsingu við álfyrirtækið. Þá hefur stjórn Landsvirkjunar samþykkt að undirbúa stofnun félags með aðild Alcoa um orkunýtinguna. 27.9.2009 19:24
Stakk 5 ára gamla stelpu með eggvopni Tuttugu og tveggja ára gömul kona var handtekin í Keflavík í dag grunuð um að hafa veitt 5 ára gamalli stelpu áverka með eggvopni. Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Mikil lögregluaðgerð stóð yfir í Keflavík í morgun vegna málsins. Ekki er vitað hvort konan hafi þekkt eitthvað til telpunnar eða hvað vakti fyrir henni. 27.9.2009 16:28
Rikisstjórnin þarf að laða að erlendar fjárfestingar Samtök iðnaðarins skora á ríkisstjórnina að leggja sitt af mörkum til þess að laða að erlendar fjárfestingar á öllum sviðum og þar með taldar þær sem leiða til hagnýtingar orkuauðlinda landsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins. 27.9.2009 16:12
Rannsóknarlögreglan fór inn í hús á Suðurnesjum Lögreglan á Suðurnesjum hefur girt af hús í Keflavík vegna aðgerða sem þar fer fram. Varðstjóri hjá lögreglunni sem Vísir náði tali af sagðist ekki geta gefið upplýsingar um málið að öðru leyti en því að um væri að ræða vettvangsstörf af hálfu rannsóknarlögreglunnar. 27.9.2009 15:37
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í bílslysi í Jökulsárhlíð síðastliðinn föstudag hét Stefán Björnsson. Hann var 68 ára að aldri og bjó að Lónabraut 25 á Vopnafirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin börn. 27.9.2009 14:48
Félagsmálaráðherra fundar stíft um aðgerðir fyrir heimilin Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra situr á stífum fundarhöldum í dag til að ræða aðgerður í þágu heimilanna. Samkvæmt upplýsingum frá Hagsmunasamtökum heimilanna átti hann fund með þeim klukkan eitt í dag. 27.9.2009 13:37
Mannaflsfrekar framkvæmdir upp á tugi milljarða Ríkisstjórnin hefur raðað upp stórverkefnum sem skapa eiga hundruð eða þúsundir starfa á næstu misserum. Ráðist verður í byggingu nýs Landsspítala upp á 50 milljarða króna og en um 800 manns fá vinnu við byggingaframkvæmdirnar. 27.9.2009 13:03
Pilturinn fundinn Þrettán ára gamall piltur sem barnaverndanefnd lýsti eftir í morgun er fundinn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 27.9.2009 12:27
Vilja gera Austurland að einu sveitarfélagi Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, SSA, samþykkti samhljóða í gær að vinna að því að allt Austurland yrði eitt sveitarfélag. 27.9.2009 12:11