Fleiri fréttir

Sviku út vörur með stolnu greiðslukorti

Fjórir karlmenn á þrítugsaldri eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en þeir voru handteknir eftir að hafa svikið út vörur úr nokkrum verslunum með stolnu greiðslukorti í nótt. Lögreglan náði mönnunum í tíu-ellefu verslun í Hafnarfirði um þrjúleytið en þá höfðu þeir náð að svíkja út vörur úr nokkrum verslunum.

Natalía og Tara fundnar

Þær Natalía Rós og Tara Rut, sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í gær eru fundnar. Þær fundust í gærkvöldi í Reykjavík og eru komnar aftur á Stuðla.

Tugir með kannabisrækt sem aðalstarf

Lögregla hefur upprætt fjörutíu kannabisræktanir á árinu, lagt þar hald á tæplega 7.000 plöntur og handtekið um sjötíu ræktendur. Talið er að langflestir þeirra hafi haft sinn aðalstarfa af kannabisframleiðslunni.

Kjallara stolið um helgina við Úlfarsfell

„Hvað sem allri spillingu líður þá er þetta örugglega stærsti þjófnaður ársins, alla vega í kílóum talið,“ segir Gunnar Ingi Arnarsson en hann komst að því á mánudagskvöld að búið var að stela af honum og félaga hans byggingareiningum sem áttu að verða útveggir á kjallara parhúss sem þeir eru að reisa í Úlfarsárdal.

Glaðheimasölu verði rift vegna vanefnda

„Bærinn hefur hvorki fengist til þess að gefa út yfirlýsingu um hvenær hann hyggist afhenda hið selda né gert ráðstafanir sem eru forsenda afhendingarinnar,“ segir í bréfi lögmanns Kaupangs eignarhaldsfélags til Kópavogsbæjar.

Nýtt frumvarp - bankastjórar heyri undir kjararáð

Bankastjórar ríkisbankanna, forstjóri Landsvirkjunar og útvarpsstjóri eru meðal fjölmargra forstöðumanna ríkisstofnana sem munu hér eftir þiggja laun samkvæmt ákvörðunum kjararáðs, nái frumvarp fjármálaráðherra í þá veru fram að ganga.

Laser-aðgerðir góð útflutningsvara

Útlendingar flykkjast til landsins til þess að gangast undir laser-aðgerðir á augum en gríðarleg eftirspurn er eftir aðgerðunum á Íslandi um þessar mundir.

Framkvæmd verðkannanna ábótavant

„Framkvæmdinni á verðkönnunum ASÍ er verulega ábótavant,“ segir Þórður Backman, framkvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Kaupási, sem rekur meðal annars verslanir Krónunnar. Hann segir það ekki einungis Bónus sem hefur ítrekað óskað eftir leiðréttingum og ábendingar án þess að nokkuð sé viðhaft af ASÍ.

Margoft tekinn fullur á bílnum

Rétt rúmlega tvítugur maður hefur verið dæmdur í níutíu daga fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Árni og Bjarni hunsa reglur

Þingmennirnir Árni Johnsen og Bjarni Benediktsson úr Sjálfstæðisflokki höfðu í gærkvöldi ekki skráð fjárhagslega hagsmuni sína hjá skrifstofu forseta Alþingis, né útskýrt þar hvers vegna þeir gera það ekki. Frestur til skráningar rann út í fyrradag, en núverandi þingmenn hafa haft rúman mánuð til að skila upplýsingunum.

Klukknahljóð á alþingi - sló 23 sinnum á bjölluna

Forseti Alþingis fór hamförum á bjöllunni í dag og sló allt að tuttugu og þrisvar í hana, þegar honum fannst formaður Framsóknarflokksins fara á svig við þingsköp og ræða allt önnur mál en dagskrárliðurinn heimilaði honum.

Harpa Arnardóttir og Björn Thors leikarar ársins

Harpa Arnardóttir flutti þakkarræðu sína á íslensku leiklistarverðlaununum, Grímunni, í gegnum fartölvu. Harpa hlaut verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki, en gat ekki veitt verðlaununum viðtöku þar eð hún var stödd í Danmörku.

Lögregla leitar að unglingsstúlku

Lögreglan leitar að Jónínu Jófríði Jóhannesdóttur, en Jónína strauk af Götusmiðjunni um klukkan 14:15 í dag og er væntanlega á leiðinni til Reykjavíkur.

Sigurður Pálsson leikskáld ársins

Sigurði Pálssyni voru veitt íslensku leiklistarverðlaunin sem leikskáld ársins á verðlaunaafhendingu Grímunnar. Sigurður hlaut verðlaunin fyrir verk sitt Utan Gátta.

Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri hlaut styrk

Úthlutað var úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara við athöfn í listasafni Sigurjóns Ólafssonar í dag á afmælisdegi Kristjáns. Þetta er í annað skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum.

Hvað ef Sigurjón svíkur Sigurjón?

Óhefðbundin lántaka Sigurjóns Árnasonar í einkalífeyrissjóði hans sjálfs veltir upp ýmsum spurningum, til dæmis hvað gerist standi hann ekki skil á láninu.

Mikilvægt að skera úr um staðgöngumæðrun

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að ákvörðun liggi fljótlega fyrir um heimild kvenna til að fá konur til að ganga með börn fyrir sig, þar sem lífræðileg klukka tifi á fólk sem vill nýta sér þetta ráð til barneigna.

26 mál á borði sérstaks saksóknara

Tuttugu og sex mál eru komin inn á borð til sérstaks saksóknara. Flest eru málin umfangsmikil þar sem um er að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni.

Gunnar Birgisson: Fórnarlamb skipulagðra ofsókna

Undanfarnir dagar nálgast brjálæði í ofsóknum segir Gunnar Birgisson sem telur að Samfylkingin hafi skipulagt samsæri gegn sér. Hann ætlar að láta af embætti sem bæjarstjóri í Kópavogi en segir ósanngjarnt að hann sé dæmdur fyrir viðskipti bæjarins við fyrirtæki dóttur sinnar.

Skattahækkanir afla tíu milljarða á árinu

Skattar og gjöld verða hækkuð um tíu milljarða og skorið verður niður og sparað fyrir sömu upphæð á þessu ári samkvæmt frumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi á fimmtudag. Átta prósenta skattur verður lagður á tekjur umfram sjö hundruð þúsund á mánuði.

Hafa þungar áhyggjur af lækkandi lánshæfismati

InDefence hópurinn hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann lýsir áhyggjum vegna niðurstöðu greiningar Íslandsbanka um hugsanlega lækkun á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands vegna Icesave skuldbindingar. Magnús Árni Skúlason, einn forvsvarsmanna InDefence, undirstrikar þetta í samtali við Vísi.

Skapandi ungmenni fá Erróverðlaun

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að stofna til svokallaðra Erróverðlauna meðal reykvískra ungmenna. Verðlaunin verða veitt ungmennum fyrir frumleika og leikni í listsköpun. Þau verða afhent annað hvert ár í tengslum við fyrirhugaða barnalistahátíð. Tillaga þessa efnis var samþykkt á fundi borgarstjórnar rétt í þessu.

Sigurður Kári aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar

„Mér finnst þetta heiður og mikið traust sem hann sýnir mér að velja mig til þess að starfa svona náið með sér,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Hann hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins.

Sigurrós inn í myndinni sem bæjarstjóri

Nafn Sigurrósar Þorgrímsdóttur, forseta bæjarstjórnar Kópavogs, er nú nefnt meðal sjálfstæðismanna í bæjarfélaginu sem líklegur arftaki Gunnars I. Birgissonar í stöðu bæjarstjóra. Undanfarna daga hafa Gunnsteinn Sigurðsson og Ármann Kr. Ólafsson oftast verið nefndir í því samhengi en nú hefur nafn Sigurrósar bæst við.

Lögregla lýsir eftir tveimur unglingsstúlkum

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Natalíu Rós Jósepsdóttur, og Töru Rut Sighvatsdóttur en þær struku frá unglingameðferðarstöðinni Stuðlum í gærdag. Þær eru báðar fæddar árið 1994 og eru búsettar í Sandgerði og i Reykjanesbæ. Talið er líklegt að þær séu á höfuðborgarsvæðinu eða á Suðurnesjum.

Í gæsluvarðhaldi vegna hrottalegrar nauðgunar

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 10. júlí vegna meintrar nauðgunar í Reykjavík. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur.

Sóley: Aldrei hafa færri störf verið í boði fyrir ungmenni

Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir að þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar meirihlutans í Reykjavík hafi frá árinu 2001 aldrei verið færri störf í boði fyrir ungmenni á aldrinum 17 til 25 ára hjá Reykjavíkurborg.

Framsóknarmenn létu illa af stjórn forseta

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir bað þingmenn Framsóknarflokksins, þau Eygló Harðardóttur og Sigmund Davíð Gunnlaugsson að virða fundarsköp þingsins á þingfundi í dag. Þótti Ástu sem þau Eygló og Sigmundur væru að nýta tíma sem ætlaður er til umræðu um fundadstjórn forseta til þess að ræða önnur málefni.

Ásgerður tekur við sem bæjarstjóri Seltjarnarness

Ásgerður Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness og forstöðumaður fjárhagsdeildar Íslandsbanka, mun taka við af Jónmundi Guðmarssyni sem bæjarstjóri bæjarfélagsins. Þetta var ákveðið á fundi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi í dag.

Leikskólastjóri í Sjálandi: Rýmingin gekk vel

„Hér er allt með kyrrum kjörum,“ segir Ída Jensdóttir, leikskólastjóri á leikskólanum Sjálandi í Garðabæ. Reykur kom upp í rafmagnstöflu leikskólans í dag og þurfti að kalla til slökkvilið. „Þetta var enginn eldur, bara reykur.“

Ummæli forsvarsmanna Bónuss byggð á misskilningi

Ummæli forsvarsmanna Bónuss um verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands er byggð á misskilningi, að fram kemur í tilkynningu frá Alþýðusambandinu. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir í Fréttablaðinu í dag að Alþýðusambandið villi um fyrir neytendum með því að bera saman tvær ólíkar vörutegundir í verðkönnun sinni.

Milljarða skattahækkanir í burðarliðnum

Átta prósenta hátekjuskattur verður lagður á tekjur umfram sjö hundruð þúsund krónur og 15 prósenta viðbótarskattur á fjármagnstekjur umfram tiltekna fjárhæð, samkvæmt efnahagstillögum ríkisstjórnarinnar sem hún stefnir á að leggja fyrir Alþingi á fimmtudag. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun, að hátekjuskatturinn gefi um 2,5 milljarða í tekjur á þessu ári og um fjóra milljarða á ársgrundvelli. Þá mun fjármagnstekjuskatturinn skila um sex milljörðum.

Eldur í rafmagnstöflu í leikskóla í Garðabæ

Eldur kom upp í rafmagnstöflu í leikskólanum Sjálandi í Garðabæ í morgun. Vel gekk að slökkva eldinn að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og voru öll börnin komin út úr skólanum þegar slökkviliðið bar að garði og gekk rýmingin vel.

Eftirsjá að Gunnari

„Það er mikil eftirsjá að Gunnari ef það er satt að hann ætli að víkja," segir Sigurrós Þorgrímsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs.

Guðríður: Of mörgum spurningum ósvarað

Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir að enn sé of mörgum spurningum ósvarað varðandi brotthvarf Gunnars Birgissonar úr stól bæjarstjóra. Krafa minnihlutans hafi verið sú að Gunnar léti af ábyrgðarstörfum fyrir Kópavog.

Ólafur Þór: Ákveðin kaflaskil

„Þetta eru ákveðin kaflaskil fyrir sveitafélagið, hinsvegar á ég erfitt með að sjá hvernig þeir ætla að starfa áfram með Gunnar innanborðs,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vinstri Grænna í Kópavogi um þær fréttir að Gunnar hyggist víkja úr sæti bæjarstjóra. Hann segir þó vandamálum Sjálfsstæðisflokksins í Kópavogi hvergi nærri lokið.

Vissi ekki af ákvörðun Gunnars

Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og annar maður á lista flokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningum, hafði ekki heyrt að Gunnar I. Birgisson ætli að víkja sem bæjarstjóri þegar fréttastofa náði tali af honum.

Gunnar hættir sem bæjarstjóri: Kominn tími á kónginn

„Ég lagði það til á fundinum í gær með mínum flokksfélögum að það væri kominn tími á kónginn,“ segir Gunnar Birgisson sem fyrir skemmstu lauk fundi með Ómari Stefánssyni, bæjarfulltrúa Framsóknarmanna í Kópavogi og samstarfsfélaga Gunnars í meirihlutanum í Kópavogi. Niðurstaða þess fundar var sú að Gunnar hættir sem bæjarstjóri.

100 ár frá því skrúfað var frá krananum í Reykjavík

Í dag eru 100 ár frá því vatni var hleypt á vatnsveitu í Reykjavík. Þessa verður minnst með því að eitt verður athöfn á mótum Laugavegar og Vatnsstígs þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri mun afhjúpa fyrsta minningarskjöldinn sem borgaryfirvöld hafa ákveðið að setja á sögufræg hús og byggingar í Reykjavík.

Átján ára ákærður fyrir tólf þjófnaðarbrot á rúmu ári

Í gær voru þingfestar í héraðsdómi Norðurlands eystra þrjár ákærur á hendur átján ára pilti fyrir alls tólf þjófnaðarbrot. Fimm brotanna framdi hann í félagi við nítján ára dreng og önnur fimm í félagi við annan dreng sem einnig er nítján ára. Brotin eru framin á tímabilinu janúar 2008 til mars 2009. Drengurinn er einnig ákærður fyrir eignaspjöll.

Samfylkingin í Kópavogi: Gunnar verður að víkja

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi ítreka fyrri kröfu sína um að Gunnar I. Birgisson axli ábyrgð og víki sem bæjarstjóri eftir að hann hafi gerst sekur um að hygla stórlega fyrirtæki í eigu dóttur hans. Nú sé reynt að láta umræðuna snúast um skýrslur endurskoðenda og lögfræðiálit en ekki sé rætt um pólitíska og siðferðislega ábyrgð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Guðríði Arnardóttur, oddvita Samfylkingarinnar í bæjarfélaginu.

Sjá næstu 50 fréttir