Fleiri fréttir

Meta hvort gúmmíbolti hafi ógnað lífi stúlku

Karlmaður sem setti gúmmíbolta upp í leggöng stúlku og skildi hann þar eftir án þess að hún vissi fær dómkvadda matsmenn til að meta hvort lífi eða heilsu stúlkunnar hafi verið stofnað í augljósan háska, áður en málið verður tekið fyrir í Hæstarétti. Hún fékk bólgur og alvarlega sýkingu í leggöng.

Jóhanna vonast eftir ESB-aðild innan þriggja ára

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að Ísland geti orðið aðili að Evrópusambandinu innan tveggja til þriggja ára. Hún greindi frá því mati sínu á blaðamannafundi í gær sem haldinn var í kjölfar sumarfundar forsætisráðherra Norðurlandanna á Egilsstöðum. Jóhanna kynnti norrænum starfsbræðrum sínum gang mála í Evrópusambandsáætlunum ríkisstjórnarinnar. Var þeim vel tekið og buðu forsætisráðherrarnir fram aðstoð við undirbúning aðildarviðræðna.

Skoða að beina frekar fé í LÍN en atvinnubætur

Til athugunar er hvort hagkvæmara væri að beina ríkisfé inn í Lánasjóð íslenskra námsmanna frekar en atvinnuleysistryggingasjóða til að laða fólk í nám. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á Alþingi í gær.

Vilja fella ríkisábyrgð Icesave-skulda úr gildi

„Við verðum að neita að samþykkja ríkisábyrgð á Icesave-skuldbindingarnar án einhvers konar fyrirvara,“ segir Ólafur Elíasson, einn af forsvarsmönnum InDefence-hópsins um Icesave-samninginn.

Ríkið stofnar ritfangaverslun

„Það er óskaplega vitlaust ef ríkið á að fara að setja upp ritfangaverslun," segir Árni Kristinsson, verslunarstjóri Kaupfélags Skagfirðinga.

Eignafrysting var nauðsynleg

Það var rétt af Bretum að beita hryðjuverkalögunum gegn Landsbankanum á sínum tíma, til að tryggja fjármálastöðugleika í Bretlandi, segir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í svarbréfi til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra.

Fundaði um jarðvarma við forseta Filippseyja

Stefán Lárus Stefánsson sendiherra afhenti í síðustu viku Gloriu Macapagal-Arroyo, forseta Filippseyja, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Filippseyjum. Hann hefur aðsetur í Tókýó.

Unglingsstúlkur viðstaddar dópleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á rúmlega 20 grömm af marijúana í íbúð í miðborginni um helgina. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var yfirheyrður vegna málsins en viðkomandi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna sölu fíkniefna. Í íbúðinni var hópur af fólki, þ.á.m. þrjár unglingsstúlkur. Hringt var í foreldra þeirra sem komu og sóttu stúlkurnar. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.

Íslensk kona leitar að staðgöngumóður

„Það er okkar stærsta ósk að eignast annað barn," segir íslensk kona sem leitar að staðgöngumóður hér á landi til að ganga með barn fyrir sig. Staðgöngumæðrun er bönnuð á Íslandi, en nefnd á vegum heilbrigðisráðuneytisins fjallar nú um lögleiðingu þess.

Tólf krónu munur á kaup- og sölugengi evru í Leifsstöð

Tæplega tólf krónu munur er á kaup og sölugengi evru í Landsbankaútibúinu í Leifsstöð. Nokkrir ferðamenn hafa haft samband við fréttastofu og gert athugasemdir við þetta. Hvort þetta sé hreinlega leyfilegt. Jóhannes Gunnarsson, formaður neytendasamtakanna, segir að frjáls verðmyndun sé á þessum markaði líkt og öllu öðru. Hann gerir hinsvegar athugsemd við framsetningu á upplýsingum um gengi gjaldmiðla á vefsíðum bankanna.

Bæjarstjórinn í Grindavík: Óróleikinn auðvitað slæmur

„Óróleikinn er auðvitað afar slæmur og það er ekki síst íbúanna og byggðarinnar vegna,“ segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, um stöðu mála í bæjarfélaginu en mikill óróleiki hefur verið í bæjarpólitíkinni í Grindavík undanfarið ár.

Ber við trúnaði um kostnað og greiðanda álits

Eiríkur Elís Þorláksson, lögmaður LEX sem vann lögfræðiálit um viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun, segist ekki tjá sig um kostnaðinn við lögfræðiálitið sem hann vann að beiðni Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs. Hann segist ekki heldur vilja segja til um hver komi til með að greiða fyrir álitið, enda sé hann bundinn trúnaði um allt slíkt.

Samkomulagið upp á borðið

InDefence-hópurinn krefst þess að stjórnvöld gefi íslenskum almenningi von í Icesave-málinu. Hópurinn krefst þess að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar fái aðgang að samkomulaginu, þannig að Alþingismenn hafi forsendur til að meta frumvarp til ríkisábyrgðar á rúmlega 700 milljarða ábyrgð vegna samkomulagsins við bresk og hollensk stjórnvöld.

Lögregla fann fíkniefni í húsleit hjá dópsala

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á rúmlega 20 grömm af marijúana í íbúð í miðborginni um helgina. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var yfirheyrður vegna málsins en viðkomandi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna sölu fíkniefna. Í íbúðinni var hópur af fólki, þ.á.m. þrjár unglingsstúlkur. Hringt var í foreldra þeirra sem komu og sóttu stúlkurnar. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.

Eigandi gúmmíbátsins: Ekkert leyndarmál í þessu

„Það er ekkert leyndarmál í þessu og hefur aldrei verið. Ég fór strax sama kvöld og þetta gerðist upp á lögreglustöð og sýndi öll mín gögn,“ segir Sigurður Örn Sigurðsson sem átti gúmmíbátinn sem notaður var til þess að sigla út í Papey til þess að sækja eiturlyf þann 20. apríl síðastliðinn.

Nýting orkulinda og uppbyggingu stóriðju rædd á þingi

Nýtingu orkulinda og uppbyggingu stóriðju verður til umfjöllunar í sérstakri utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Málshefjandi er Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og til andsvara verður Svandís Svavardóttir, umhverfisráðherra.

Sigmundur Davíð: „Þetta finnst Samfylkingunni fyndið“

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi nú fyrir skömmu að hann hyggist leggja fyrir þingið stjórnafrumvarp um skuldbindingar ríkisins vegna Icesave innstæðna við Breta og Hollendinga. Hann býst við að fá samþykki meirihluta Alþingis en því eru þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna ekki sammála.

Íslendingur hlýtur viðurkenningu á sviði Microsoft samskiptalausna

Aðalsteinn Rúnarsson, sérfræðingur hjá EJS, náði nýlega þeim merka áfanga að verða fyrsti Íslendingurinn til að fá prófskírteini fyrir sérþekkingu á sviði samskiptalausna en Aðalsteini bauðst að taka þátt í sérstöku námskeiði á því sviði sem haldið var í Danmörku.

17 þingmenn hafa frest út daginn

17 þingmenn hafa frest út daginn til að upplýsa um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf utan þings. Þar á meðal eru tveir ráðherrar Vinstri grænna og níu þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Á fimmtudaginn höfðu 28 þingmenn af 63 upplýst um hagsmunatengsl sín en síðan hafa 18 þingmenn skráð upplýsingarnar.

Samfylkingarfólk skorar á menntamálaráðherra

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, krefjast þess að námslán fyrir næsta skólaár hækki. Þeir skora á Katrínu Jakobsdóttur, menntmálaráðherra, að staðfesta ekki þær úthlutunarreglur sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt.

Boðað til mótmælafundar vegna Icesave

Yfir 30 þúsund manns hafa skráð sig gegn Icesave samkomulaginu á Facebook samskiptavefnum. Forsvarsmenn hópsins boða til mótmælafundar við Alþingishúsið klukkan tvö í dag. Þingfundur hefst klukkustund síðar og því er búist við að mótmælin standi yfir í nokkurn tíma.

Fjármálin líklega skoðuð sjö ár aftur í tímann

Óvíst er hversu langt aftur í tímann fjármál stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna verða skoðuð en líklega verður miðað við árið 2002. Forsætisráðherra vill að gerð verði úttekt sem nær aftur til ársins 1999.

3000 jarðskjálftar í maí

Í maí mældust um 3.000 jarðskjálftar á landinu, þar af um 2.000 í skjálftaröð við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofu Íslands. Stærsti skjálftinn var þann 29. maí og mældist 4,7 á richter en upptök hans voru við vestanvert Fagradalsfjall og fannst hann víða um suðvestanvert landið - vestur í Búðardal og austur að Hvolsvelli.

Eyða þarf óvissunni - vill Gunnar og spillinguna burt

„Óvissa er aldrei góð og hjálpar hvorki bæjarfélaginu og alveg örugglega ekki Sjálfstæðisflokknum né meirihlutanum,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, oddviti Vinstri grænna í Kópavogi, um stöðu mála í bæjarfélaginu en talsverð óvissa hefur verið um framtíð Gunnars Birgissonar sem bæjarstjóra vegna viðskipta dóttur hans við Kópavog.

Innbrot og fullar fangageymslur

Fimm menn voru handteknir í Vesturbæ Reykjavíkur við innbrotstilraun. Brotist var inn í stofnun í hverfinu og fór þjófavarnarkerfið í gang.

Greiðslur töfðust en eru í skilum

Þróunarfélagið á Keflavíkurflugvelli og Háskólavellir hafa endursamið um greiðslur fyrir kaup á húsum á gamla hersvæðinu. Háskólavellir áttu að greiða Þróunarfélaginu, sem er í eigu ríkisins, 4,3 milljarða um síðustu áramót, en samningurinn hljóðar alls upp á 13,5 milljarða. Háskólavellir hafa enn ekki greitt upphæðina, en munu greiða um tvo milljarða á næstunni.

450 opinberir starfsmenn með meira en milljón á mánuði

Um 450 starfsmenn ríkissins er með meira en milljón í tekjur á mánuði. Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í vinnuhópi um ríkisfjármál telur að það geti skilað hundruðum milljóna til ríkisins að lækka laun þessara opbinberu starfsmanna. Þetta kom fram í kvóldfréttum Sjónvarpsins.

Grásleppukarlar skila yfir milljarði í þjóðarbúið

Gríðarhátt verð fæst nú fyrir grásleppuhrogn og hefur það hækkað um 85 prósent frá því fyrra. Þessi mikla verðhækkun gerir gott betur en að bæta upp aflasamdrátt í grásleppunni og er áætlað að heildaraflaverðmæti fari yfir einn milljarð króna á tveggja mánaða vertíð í ár.

Skattahækkanir munu seinka efnahagsbatanum

Skattahækkanir munu seinka efnahagsbatanum og draga máttinn úr fyrirtækjum og heimilum í landinu að mati þingmanns Sjálfstæðisflokks. Hann hvetur ríkisstjórnina til að leggja meiri áherslu á niðurskurð heldur en skerða ráðstöfunartekjur heimila enn frekar.

Ráðherrarnir komu með einkaþotum til Egilsstaða

Fundur forsætisráðherra Norðurlandanna er hafinn á Egilsstöðum. Það var um þrjúleytið sem einkaþotur ráðherranna lentu hver af annarri á Egilsstaðaflugvelli frá hinum Norðurlöndunum en áður hafði Jóhanna Sigurðardóttir komið með áætlunarflugi til Austurlands. Forsætisráðherrarnir ræða meðal annars um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.

VG í Skagafirði: Endurreisnin mikilvægari en aðild að ESB

Félag vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði minnir á samþykktir flokksins og yfirlýsingar fyrir nýliðnar alþingiskosningar þar sem alfarið er hafnað Evrópusambandsaðild og ítrekað að hagsmunum Íslendinga sé best borgið utan sambandsins. VG er eini flokkurinn sem á sæti á alþingi sem hefur frá upphafi talað skýrt í þessum efnum.

Búið að opna Sæbrautina

Búið er að opna Sæbraut en henni var lokað fyrr í dag í Vestur vegna alvarlegs umferðarslyss sem þar varð. Tveir bílar skullu saman og voru einhverjir fluttir á slysadeild. Þá varð einnig hörð aftanákeyrsla í Mosfellsbæ fyrr í dag og einhverjar tafir urðu á umferð, búið er að ganga frá því.

Vilja klára málið fyrir fulltrúaráðsfundinn á morgun

Sjálfstæðismenn í Kópavogi ætla að reyna að hittast í dag til þess að ræða um hver verði eftirmaður Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra. Sem kunnugt er mun Gunnar hafa boðið sínum flokksmönnum að stíga til hliðar til þess að greiða fyrir meirihlutasamstarfi Sjáflstæðis- og Framsóknarflokks í bænrum. Óvíst er hver sest í stól Gunnars en menn vilja vera búnir að klára það mál fyrir fulltrúaráðsfund flokksins sem fram fer á morgun.

Hörð aftanákeyrsla í Mosfellsbæ - tafir á umferð

Nokkuð hörð aftanákeyrsla var við Hringtorg í Mosfellsbæ fyrir stundu til móts við Álafossveg. Að sögn lögreglu var tilkynnt um áreksturinn klukkan 13:07 en enginn var fluttur á slysadeild samkvæmt þeirri bókun sem varðstjóri hafði þegar Vísir ræddi við hann. Hann segir nokkrar tafir vera á umferð á svæðinu og býst hann við að svo verði áfram.

Í kapphlaupi um að moka upp makrílnum

Íslenski síldveiðiflotinn er kominn í æðisgengið kapphlaup um að moka sem mestu upp af makríl. Tilgangurinn er að tryggja sér veiðireynslu áður en stjórnvöld skipta makrílkvóta milli skipa. Fyrir vikið fer mestur hluti aflans í bræðslu.

Fékk gullmedalíu Evrópsku augnlæknaakademíunnar

Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans fékk fyrir helgi gullmedalíu evrópsku augnlækna-akademíunnar (European Academy of Ophthalmology). Þetta var tilkynnt á fundi akademíunnar í Amsterdam á föstudag. Um leið var Einar tekinn sem meðlimur í akademíuna en hún telur 48 evrópska augnlækna og vísindamenn. Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag, Háskóla Íslands, Landspítalann og Einar sjálfan.

Herbert kosinn formaður Borgarahreyfingarinnar

Í gær var haldinn aukaaðalfundur Borgarahreyfingarinnar. Þar var kosin ný stjórn sem situr til aðalfundar í haust. Kosningin fór fram með rafrænum hætti en í stjórn voru kjörnir 8 og 5 til vara. Kosningin gekk þannig fyrir sig að sá sem fékk flest atkvæði varð formaðru stjórnar en það var Herbert Sveinbjörnsson. Lilja Skaftadóttir fékk næst flest atkvæði og varð varaformaður. Baldvin Jónsson varð síðan í þriðja sæti og er ritari flokksins.

Sjá næstu 50 fréttir