Kjallara stolið um helgina við Úlfarsfell 17. júní 2009 07:30 Þarna voru útveggirnir fyrir helgi en á mánudag greip Gunnar Ingi í tómt. Mynd/Valli „
Hvað sem allri spillingu líður þá er þetta örugglega stærsti þjófnaður ársins, alla vega í kílóum talið," segir Gunnar Ingi Arnarsson en hann komst að því á mánudagskvöld að búið var að stela af honum og félaga hans byggingareiningum sem áttu að verða útveggir á kjallara parhúss sem þeir eru að reisa í Úlfarsárdal. Veggirnir voru á fjórum rekkum sem hver um sig vegur 25 tonn þannig að þjófarnir höfðu á brott með sér 100 tonn. Alls nemur tjónið um sjö milljónum króna. Hann segir að íbúi í Úlfarsárdal hafi séð rekkana fulla á fimmtudag og telur Gunnar Ingi líklegast að þjófarnir hafi látið greipar sópa á föstudagskvöld eða á laugardag. „Lögreglan ætlaði ekki að trúa mér þegar ég tilkynnti þetta enda kannski ekki mikið um það að heilli hæð sé stolið af fólki," segir hann. „Það sem er líka undarlegt í þessu er að það þarf sérstakir einingavagna til að taka þessa rekka í burtu og það eru ekki margir sem búa yfir slíkum tækjum," segir Gunnar Ingi. Hann segir ljóst að þjófarnir hafi þurft að gefa sér góðan tíma til verksins því um hálftíma til þrjú korter taki að fjarlægja hvern rekka. „Þetta tæki því heilan dag ef hver rekki er tekinn, ferjaður og síðan komið eftir þeim næsta," segir hann. Gunnar Ingi og Arinbjörn Marinósson, sem reisir parhúsið á móti honum, hafa steypt sökkla og var ráðgert að gera kjallarann tilbúinn í sumar. Hann vonast til þess að einhverjir getið gefið upplýsingar um ferðir stórra flutningatækja með rekka í Úlfarsfellinu um síðustu helgi svo lögreglan hafi meiri upplýsingar til að vinna úr. „Ég er búinn að skanna allt höfuðborgarsvæðið sjálfur og fann á einum stað einingar þannig að það er ekki mikið um þetta um þessar mundir," segir hann. Hann segist ekki vita hvað menn hyggist fyrir með einingarnar en þær eru sérhannaðar fyrir parhús þeirra félaga sem hafi verið samþykkt af byggingarfulltrúa. „Þannig að það er ekki hlaupið að því að setja þetta upp einhvers staðar annars staðar nema þá með því að svindla eitthvað."
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira