Hundur réðist að hænum og drap 10. júní 2009 13:38 Haninn í Borgargerði, áður en hann varð fyrir árás hundsins. Mynd/ úr einkasafni
Stór hundur, sem var með eigendum sínum í orlofshúsabyggðinni í Akurgerði í Ölfusi, réðst að hænsnum á bænum Borgargerði um miðjan dag í gær. Náði hann að drepa eina hænu og skaða hanann á bænum áður en tókst að stöðva hann. Þetta kemur fram á vefnum sunnlendingur.is. Þar segir að mikið af lömbum sé við nærliggjandi bæi sem hundurinn hefði allt eins getað ráðist að ef hann hefði ekki verið stöðvaður. Sólmundur Sigurðsson, bóndi í Borgargerði, tók hundaárásinni létt þegar Sunnlendingur.is spjallaði við hann í dag og sagði að ekki yrðu eftirmálar af hans hálfu vegna þessa. „Fólkið sem átti hundinn varð miður sín en málið var leyst innan húss og lögregla ekki kölluð til. Haninn mun vonandi jafna sig og ég fæ nýja hænu frá fólkinu," sagði Sólmundur í samtali við vefinn. Sólmundur heldur hænur eingöngu til heimanota en sé horft til þess hlutfalls stofnsins sem hundurinn komst í er skaðinn gríðarlegur. „Ég er nú bara með fimm hænur þannig að þessi eina sem drapst samsvarar 20% af bústofninum," segir Sólmundur hlæjandi í samtali við vefinn. „Mestar áhyggjur hef ég af því að fá ekki eggin mín því hinar hænurnar eru auðvitað í sjokki." Sólmundur þakkar fyrir að tengdadóttir hans var heima við. „Annars hefði hundurinn klárað hænurnar en þegar hún kom að var hann búinn að drepa eina og byrjaður að tæta í sig hanann," segir Sólmundur. Þó Sólmundur taki málinu af stillingu eru dæmi um að bændur í Ölfusi séu óhressir og einn þeirra sagði í samtali við Sunnlending.is: „Furðulegt að fólk skuli hleypa svona skaðræðisskepnum lausum, þó það sé uppi í sveit."
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Sjá meira