Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vonast eftir átakalausum ársfundi Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, vonar að ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sem fer fram á eftir verði átakalaus. Stjórn VR samþykkti tillögu þess efnis að gerð verði breyting á stjórn lífeyrissjóðsins. 25.5.2009 17:55
Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill ekki ofurlaun Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar, Jóhann Kristjánsson, segist ekki hafa gert launakröfu upp á 7.7 milljónir. Hann hafi eingöngu notað það sem viðmið hefði hreyfingin viljað umbuna honum fyrir starf kosningastjóra. 25.5.2009 17:02
AGS: Áhyggjur af samstöðuskorti Íslendinga Fulltrúar Samstöðu, bandalags grasrósarhreyfinga, hittu í dag í annað sinn fulltrúa Alþjóðgjaldeyrissjóðsins en fyrri fundurinn átti sér stað þann 10. mars síðastliðinn. Í tilkynningu frá bandalaginu segir að í máli þeirra Franeks Roswadovski og Marks Flanagan, fulltrúum AGS, hafi komið fram að þeir hafi áhyggjur af því að samstöðu skorti í þjóðfélaginu um aðgerðir og markmið í efnahagsmálum þjóðarinnar. 25.5.2009 16:43
Dæmdur fyrir að misnota dóttur æskuvinar Tryggvi Óli Þorfinnsson, 42 ára gamall Hveragerðingur, var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að misnota unglingsstúlku kynferðislega. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að setja gervilim í leggöng stúlkunnar þegar hún var fimmtán ára auk þess sem hann lét hana hafa við sig munnmök. 25.5.2009 16:28
Jóhanna: AGS ræður ekki för „Við erum ekki að takast á við halla ríkissjóðs til að þóknast Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða erlendum lánadrottnum," sagði Jóhanna Sigurðardóttir í munnlegri skýrslu sinni um efnahagshorfur á Alþingi. 25.5.2009 16:02
Borgarahreyfing: Átök hluti af gagnsæi Stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna átakafundar sem var haldin í gærkvöldi en þar var framkvæmdarstjóri hreyfingarinnar harðlega gagnrýndur. Hann lagði fram reikning á félagsfundinum þar sem hann óskaði eftir að fá 7.7 milljónir króna fyrir störf sín. 25.5.2009 15:56
ESB tillögu dreift á þingi Tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórnin leggi fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu var dreift á Alþingi í dag. Í athugasemdum við tillöguna segir að hún sé lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tækifæri til að hafna eða samþykkja samning um aðild að sambandinu þegar hann liggur fyrir. Þá segir að víðtækt samráð verði haft við hagsmunaaðila um samningsmarkmið á ýmsum sviðum auk þess sem skoðað verði hvort unnt verði að ná fram samstarfi í gjaldmiðilsmálum samhliða viðræðum um hugsanlega aðild til þess að styðja við gengi krónunnar. Búast má við því að málið verði rætt á Alþingi síðar í vikunni. 25.5.2009 15:26
Handboltalöggur Norðurlandameistarar Handboltalið lögreglunnar á Íslandi varð norðurlandameistari í handbolta um helgina eftir að þeir sigruðu Noreg í æsispennandi leik. Mótið var haldið hér á Íslandi og meðal áhorfenda var Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að handboltalið lögreglunnar hafi staðið sig ótrúlega vel. 25.5.2009 15:26
Á þriðja þúsund stúdenta sækja sumarskóla Á þriðja þúsund háskólastúdenta hafa sótt um fá fá að studna nám við háskólana í sumar samkvæmt nýjustu tiltæku upplýsingum í menntamálaráðuneytinu. 25.5.2009 15:18
Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill 7.7 milljónir Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar vill 7.7 milljónir fyrir störf sín en launakröfuna lagði hann fram á félagafundi hreyfingarinnar í gærkvöldi. Það er Jóhann Kristjánsson sem gegnir starfi framkvæmdarstjóra. 25.5.2009 14:29
Forsætisráðherra: Munnleg skýrsla um efnahagshorfur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun síðar í dag flytja munnlega skýrslu um efnahagshorfur á Alþingi. Skýrslan er flutt að beiðni þingflokks sjálfstæðismanna. Fyrirkomulagið á umræðunni er á þann veg að forsætisráðherra flytur fimmtán mínútna langa framsögu og í framhaldinu munu aðrir flokkar fá 10 mínútur hvort fyrir talsmenn sína í fyrstu umferð og fimm mínútur í annari og þriðju umferð. Við lok umræðunnar hefur forsætisráðherra síðan fimm mínútur til þess að veita andsvar. 25.5.2009 14:10
Inflúensufundur hafinn Sameiginlegur fundur er hafin hjá sóttvarnalækni og lögreglustjóra en hann hófst í hádeginu. Þar er yfir viðbragðsáætlanir vegna Svínaflensunnar. Fundurinn var boðaður áður en maður sem kom nýlega frá New York smitaður af flensunni, greindist. 25.5.2009 13:47
Fréttastofa braut ekki siðareglur Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað að fréttastofa Stöðvar 2 hafi ekki gerst brotleg við siðareglur félagsins í umfjöllun um Minna mál Ágústu Johnsen og Mylluna í frétt og fréttaskýringu sem birtust þann 11. febrúar síðastliðinn. 25.5.2009 13:38
Niu ára í öndunarvél eftir bílslys Níu ára gamall drengur sem varð fyrir bíl á fimmtudag liggur enn þungt haldinn í öndunarvél. Slysið varð rétt fyrir klukkan tvö í Steinási í Garðabæ. Í fyrstu var talið að meiðsl hans væru minniháttar. Við ítarlegri rannsóknir á Landspítalanum komu í ljós alvarlegir höfuðáverkar. Hann gekkst þá undir aðgerð og hefur verið í öndunarvél síðan. 25.5.2009 13:13
Landsbyggðarþingmenn missa aðstoðarmenn sína Þingmenn landsbyggðarkjördæmanna munu ekki hafa aðstoðarmenn á næstunni, samkvæmt ákvörðun sem forsætisnefnd Alþingis tók í morgun. 25.5.2009 12:51
Nálastungulæknir í mál við Landlæknaembættið Nálastungulæknirinn Ríkharður Mar Jósafatsson hefur stefnt Landlæknaembættinu fyrir að veita tæplega hundrað sjúkraliðum, ljóðsmæðrum og hjúkrunarfræðingum starfsleyfi í nálarstungum. Sjálfur lærði Ríkharður nálastungufræðin í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum en honum hefur ítrekað verið synjað um starfsleyfi þar sem hann er ekki hluti af viðurkenndri heilbrigðisstétt. 25.5.2009 12:37
Sérsveitarmenn og lögreglan á Akureyri tóku töluvert magn fíkniefna Lögreglan á Akureyri lagði hald á rúmlega 60 e-töflur, tæp 10 grömm af kókaíni og svipað magn af amfetamíni auk smáræðis af hassi í fjórum aðskildu málum um síðustu helgi. Þá lagði lögregla hald á peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. 25.5.2009 12:22
Össur fordæmir kjarnorkutilraunir harðlega Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir jákvætt hversu mjög alþjóðasamfélagið hafi sameinast í sterkri fordæmingu á kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Íslensk stjórnvöld fordæmi hana harðlega. 25.5.2009 12:07
MND félagið gefur út hljóðbók MND félagið hefur gefið út hljóðbókina, Björt framtíð í því augnamiði að auka mótvægi við slæmum fréttum sem hafa dunið á íslensku þjóðinni undanfarna mánuði. Bókin er safn greina eftir fimmtíu höfunda og er von félagsins að hún auki ánægju og vellíðan þjóðarinnar. 25.5.2009 12:04
Áfrýjunarnefnd staðfestir brot Bændasamtakanna Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins frá 6. mars síðastliðnum að Bændasamtök Íslands hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum. Áfrýjunarnefndin taldi þó við hæfi að lækka sekt sem lögð var á samtökin, í sjö og hálfa milljón króna, en Samkeppniseftirlitið hafði áður sektað samtökin um tíu milljónir. 25.5.2009 11:53
Háloftaslys: Einstakt tilfelli „Menn komast alveg upp í þriggja kílómetra hæð á svifvængnum," segir formaður Fisfélags Reykjavíkur, Ágúst Guðmundsson, en liðsmaður félagsins varð næstum fyrir farþegaþotu þar síðustu helgi. 25.5.2009 11:19
Skyldmenni mannsins ekki smituð Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefði smitast af inflúensu A (H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnanefnd. 25.5.2009 10:50
Ólafur vill lækka hámarkshraða „Ég tel að taka þurfi kröftuglega til hendinni til að fækka slysum og eyða svartblettum í allri borginni í samræmi við tillögur mínar í borgarráði á meðan ég gegndi starfi borgarstjóra...," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra, en hann hyggst leggja fram tillögu á fundi borgarráðs næsta fimmtudag að hluta Hringbrautar og Háaleytisbraut verði breytt í þrjátíu kílómetra kafla. 25.5.2009 10:10
Sjálfstæðisflokkurinn 80 ára í dag Sjálfstæðisflokkurinn fagnar í dag 80 ára afmæli sínu en flokkurinn var formlega stofnaður 25. maí árið 1929 þegar Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn sameinuðust undir merkjum Sjálfstæðisflokksins. Fyrsti formaður flokksins var Jón Þorláksson verkfræðingur. Sjálfstæðisflokkurinn er næstelsti starfandi stjórnmálaflokkur á Íslandi, en Framsóknarflokkurinn var stofnaður 1916. 25.5.2009 09:33
Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis Sett verða skilyrði um reglusemi til að fá skotvopnaleyfi, samkvæmt drögum nefndar að frumvarpi til nýrra vopnalaga. Þetta kemur fram í athugasemum við frumvarpið sem birtar eru á heimasíðu Skotíþróttasambands Íslands. 25.5.2009 07:10
Karfavertíð hafin af krafti Árleg karfavertíð er nú hafin af fullum krafti á Reykjaneshrygg og afla íslensku togararnir vel. Þar eru nú 16 íslenskir togarar að veiðum, um 30 sjómílur innan við 200 mílna fiskveiðilögsögumörkin, en 24 erlendir togarar eru að veiðum rétt utan við lögsögumörkin. 25.5.2009 07:08
Kalla eftir frekari aðgerðum „Okkur finnst þetta hrikalegt,“ segir Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands, aðspurður um viðbrögð við frétt blaðsins í gær um að um 2.300 manns fái ekki vinnu hjá Reykjavíkurborg næsta sumar. Stærsti hlutinn er framhalds- og háskólanemar. 25.5.2009 05:00
Ekki farið gegn vilja kennara „Það verður ekki farið fram gegn vilja kennara í þessum efnum. Það er mikilvægt að allar svona aðgerðir séu ákveðnar í góðri sátt og við munum ræða málin á þeim nótum,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Katrín fundar í dag með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) um hugmyndir þeirra um tímabundna fækkun lögbundinna skóladaga grunnskólanemenda. 25.5.2009 05:00
150 plöntur í 101 Reykjavík Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð í miðbæ Reykjavíkur um miðjan dag á föstudag. Við húsleit fundust um 150 kannabisplöntur. Helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. 25.5.2009 05:00
Ekkert hótelfyrirtæki boðið samstarf „Allar athuganir okkar af þessu tagi eru reistar á grun um brot á samkeppnislögum,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sem á miðvikudag í síðustu viku aflaði gagna með húsleitarheimild á skrifstofum þriggja hótelrekanda. 25.5.2009 05:00
Flatskjá stolið í Gerðubergi Innbrotstilfelli voru 22 um helgina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Brotist var inn í bíla, fyrirtæki og heimahús. Ekki var um nein stórinnbrot að ræða. Mikið hefur verið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. 25.5.2009 05:00
Arðsemismat stendur þótt aðstæður breytist Arðsemismat eigin fjár vegna Kárahnjúkavirkjunar verður ekki endurskoðað þrátt fyrir að forsendur hafi breyst gríðarlega undanfarið með lækkandi álverði. Matinu var breytt í janúar í fyrra þar sem álverð hafði hækkað umtalsvert. Í desember sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, í samtali við Fréttablaðið ekki ólíklegt að matið yrði endurskoðað. Það verður ekki. 25.5.2009 04:00
Nýtt nafn samþykkt Almannaheill, samtök þriðja geirans, er nýtt nafn á regnhlífarsamtökum almannaheillasamtaka, sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna 19. maí síðastliðinn. Þau hétu áður Samtökin almannaheill. 25.5.2009 04:00
Húsið verði fjölnota listahús Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur hreyft þeirri hugmynd að Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði nýtt betur með því að fá sem flestar listgreinar þangað inn. Hluti af þessu endurmati sé að flytja Íslenska dansflokkinn og Íslensku óperuna þangað. Með því sparist annað húsnæði. Þá sé einboðið að fá þurfi samstarfsaðila í reksturinn. 25.5.2009 04:00
Gaf Færeyingum ævistarfið „Það var bara mjög góð tilfinning að sjá á eftir þessu til þeirra,“ segir Magnús Magnússon kvikmyndagerðarmaður, sem gaf færeysku þjóðinni nær allt ævistarf sitt; það eru sextíu heimildarmyndir og þættir. 25.5.2009 03:30
Fyrningarleið ógnar búsetu „Áform stjórnvalda um fyrningarleið valda óvissu um starfsgrundvöll sjávarútvegsins til framtíðar og leggst bæjarráð Fjarðabyggðar því eindregið gegn þeim,“ segir í ályktun bæjarráðs Fjarðabyggðar sem segir það vera hlutverk stjórnvalda að hlúa að starfsumhverfi sjávarútvegs og sníða annmarka af fiskveiðistjórnunarkerfinu. 25.5.2009 02:00
Ólafur Ólafsson segist fullviss um sakleysi sitt Ólafur Ólafsson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna húsleitar sérstaks saksóknara í tengslum við kaup félagsins Q Iceland Finance ehf. á hlutafé í Kaupþing. Hann staðfestir að rannsóknaraðilar hafi lagt hald á tölvugöng sem voru í húsakynnum í hans eigu á Íslandi. Hann segst einnig fullviss um að vönduð rannsókn muni leiða í ljós algert sakleysi sitt af þeim ávirðingum sem á hann hafa verið bornar í fjölmiðlum. 24.5.2009 18:59
Göngugarpurinn á Ingólfsfjalli fundinn Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Árnessýslu og af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna manns sem saknað var á Ingólfsfjalli líkt og Vísir sagði frá fyrr í kvöld. 24.5.2009 21:22
Lögregla lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Jóni Helga Lindusyni. Ekki er vitað hvar hann heldur sig. Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu. Jón er fæddur árið 1993. 24.5.2009 20:26
Telur líklegt að Evróputillaga verði samþykkt Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist vera þess fullviss að þingsályktunartillaga um aðildarviðræður við Evrópusambandið verði samþykkt. Hann segir ótímabært að velta því fyrir sér hvort Samfylkingin eigi að slíta stjórnarsamstarfi við Vinstri græna verði tillagan felld. 24.5.2009 17:50
Starfsmanni á meðferðarheimili sagt upp störfum - sætir rannsókn á kynferðisbroti Starfsmaður á meðferðarheimli fyrir unglinga á Norðurlandi sem kærður var fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn þremur stúlkum hefur verið sagt upp störfum. Þetta staðfestir Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu í samtali við fréttastofu en rannsókn á málinu er ekki lokið. Maðurinn er grunaðru um að hafa brotið gegn stúlkunum sem voru á umræddu meðferðarheimili en maðurinn er á fertugsaldri. 24.5.2009 20:04
Leitað að göngumanni á Ingólfsfjalli Lögreglan ásamt björgunarsveitum af Selfossi og Hveragerði leita nú að sjötugum göngumanni sem varð viðskila við hóp sem var á fjallinu í dag. Hópurinn kom niður um hádegisbil en maðurinn skilaði sér ekki niður. Mikil þoka er á fjallinu og maðurinn ekki með búnað til þess að rata niður að sögn varðstjóra hjá lögreglu. 24.5.2009 19:55
Ógreiddur reikningur þrefaldaðist vegna innheimtukostnaðar Ógreiddur reikningur vegna lækniskostnaðar nærri þrefaldaðist eftir að lögfræðistofa rukkaði sjúklinginn um 12 þúsund krónur í innheimtukostnað. Gjörsamlega siðlaust, segir sjúklingurinn sem ætlar ekki að greiða innheimtukostnaðinn. 24.5.2009 19:30
Flaug næstum því á fallhlífarstökkvara Litlu munaði að farþegaþota Icelandair, sem var að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli síðustu helgi, rækist á fallhlífarstökkvara. 24.5.2009 18:45
Vilja lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára Hátt í sex þúsund manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem vill lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára. Á síðu hópsins segir að sjálfræðisaldurinn á Íslandi sé 18 ára en ekki megi kaupa áfengi þó þeim aldrei séð náð. Kosningarétt fá þeir sem eru 18 ára og þeir verða einnig fjárráða við þann aldur. Þú mátt skuldbinda þig annarri manneskju við 18 ára aldurinn en mátt ekki skála í tilefni dagsins segir á síðunni. 24.5.2009 16:06