Fleiri fréttir

Braut og bramlaði fornminjar á Bessastöðum

Lögreglumenn yfirbuguðu og handtóku mann í annarlegu ástandi við Bessastaðakirkju í gær. Maðurinn hafði gengið berserksgang í kirkjunni, brotið glugga og eyðilagt kirkjumuni.

Vinstri sveiflan mestu tíðindin

Það að vinstriflokkarnir séu með meirihluta á þingi fyrsta sinn er stærsta fréttin eftir kosningar helgarinnar. Þetta er mat Gunnars Helga Kristinssonar stjórnmálafræðings.

Ekkert stjórnarmynstur borðliggjandi

„Ég er ánægður með niðurstöðuna hjá okkur. Ég er hins vegar ekki ánægður með að vinstriflokkarnir hafi haldið meirihluta,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann segir erfitt að sjá besta kostinn í stöðunni núna. „Það er ekkert stjórnarmynstur borðliggjandi eins og staðan er núna.

Mjög skýr skilaboð

„Við erum í sjöunda himni. Þetta eru mjög skýr skilaboð frá kjósendum um hvað þeir vilja gera," segir Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna.

Misskilin túlkun

„Ég held að það sé afskaplega mikill misskilningur sem veður uppi að úrslitin sýni aukinn áhuga á Evrópusambandsaðild," segir Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar. „Það var aðeins Samfylkingin sem boðaði skýra aðild og hún er á svipuðu róli og í síðustu tvennum kosningum."

ÖSE gagnrýnir ójafnt atkvæðavægi milli kjördæma

„Við bjuggumst við óheftum og lýðræðislegum kosningum, og sjálfur hef ég ekkert séð sem ekki stenst þær vonir,“ segir Geert Heinrich Ahrens, yfirmaður kosningaeftirlits Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) hérlendis.

Skýr krafa um ESB-viðræður

„Það er kominn þingmeirihluti fyrir því máli, þannig að ég sé ekki hvernig krafan gæti orðið skýrari,“ segir Vilhjálmur Egilsson, spurður hvort hann teldi niðurstöðu kosninganna fela í sér kröfu um aðildarviðræður við ESB.

Færri auðir seðlar en skoðanakannanir bentu til:

Rúmlega þrjú prósent þeirra sem kusu á laugardag skiluðu auðu, eða 6.226 manns. Það eru fleiri en nokkru sinni fyrr. Í alþingiskosningum í maí árið 2007 skiluðu 1,4 prósent kjósenda auðu, eða 2.517 manns. Árið 2003 voru 1.879 seðlar auðir, eða eitt prósent.

Brýnt að hefja viðræður fljótt

„Það er alveg ljóst að kallað er eftir því að farið verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið og niðurstaðan verði lögð fyrir dóm þjóðarinnar,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Velgengni Samfylkingarinnar og afhroð Sjálfstæðisflokksins undirstrikar það.“

Segir VG hafa unnið stærsta sigurinn

Bjarni Benediktsson segir að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi unnið stærsta sigurinn í kosningunum. Þessi orð lét hann falla í umræðuþætti á Rúv fyrir stundu. Hann benti einnig á að Samfylkingin hefði fengið lakari kosningu nú en árið 2003 og sagði að lýðræðislegri niðurstöðu um ESB þyrfti að ná sem fyrst.

Nítján ára stúlka í sjálfheldu í Vífilsfelli

Hjálparsveit skáta Reykjavík var kölluð út klukkan rúmlega 17:00 í dag vegna stúlku sem er í sjálfheldu ofarlega í Vífilsfelli. Þrír hópar björgunarsveitarmanna eru á staðnum og leita nú nákvæmrar staðsetningar stúlkunnar. Hún hefur verið í símasambandi og er stödd í erfiðu klettabelti og getur ekki staðið upp svo björgunarsveitarmenn sjái hana.

Björgvin heldur efsta sætinu - 8,5% strikuðu hann út

Samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjörn í Suðurkjördæmi voru gerðar breytingar á 797 kjörseðlum Samfylkingarinnar í kjördæminu sem er 10,53%. Flestir strikuðu út eða breyttu Björgvini G. Sigurðssyni oddvita listans eða 8,5%. Björgvin færist hinsvegar ekki niður um sæti því 1/6 hluta atkvæða þarf til þess að svo verði.

Andvíg inngöngu í ESB en vill tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu

Lilja Rafney Magnúsdóttir, nýkjörin þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, segist lengi hafa verið andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hún vill tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið þar sem landsmönnum gefst færi á að kjósa um það hvort að hafnar verði aðildarviðræður.

Telur að álver rísi í Helguvík

Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði og nýkjörin þingmaður Samfylkingarinnar, segir ekkert vera því til fyrirstöðu að álver rísi Helguvík nái framkvæmaaðilar að fjármagna verkefnið.

Hefur ekki íhugað afsögn

„Þó menn detti í það og skrifi einhverja bloggfærslu þá kippi ég mér ekki upp við það. Ég er ekki vanur að svara slíku næturbloggi,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson um kröfu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar fyrrum þingmanns Frjálslynda flokksins um að Guðjón segi af sér. Magnús sagði á Vísi í nótt að Guðjón ætti að segja af sér og segist bíða enn á bloggsíðu sinni í dag.

Efar að ummæli um olíuleit hafi kostað sig þingsæti

„Ég er ekki viss. Hefðum við þá náð inn þremur mönnum í Norðausturkjördæmi,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir, fráfarandi umhverfisráðherra, aðspurð hvort að umdeild ummæli hennar um olíuleit á Drekasvæðinu hafi kostað hana þingsæti. Eftir að öll atkvæði í þingkosningunum í gær höfðu verið talinn kom í ljós að tíu ára þingferli Kolbrúnar væri lokið.

Þúsundir útstrikana í Reykjavík - niðurstaða eftir helgi

Ljóst er að töluvert var um útstrikanir í kosningunum í gær og þá sérstaklega í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðurkjördæmi. Formenn yfirkjörstjórna í Reykjavík segja hinsvegar að ekki verði ljóst fyrr en eftir helgi hvort einhverjir færist til eða detti út af listum. Kjörseðlarnir skipti þúsundum en einnig sé nokkuð um tilfærslur með númerum.

Lýðræðishreyfingin langt frá fjölda meðmælenda

Lýðræðishreyfing Ástþórs Magnússonar fékk samtals 1.107 atkvæði á öllu landinu í kosningunum í gær sem er töluvert minna en meðmælin sem þarf til þess að bjóða fram í kosningum. Fjöldi meðmæla þarf að vera í kringum 1.800 og var Lýðræðishreyfingin því nokkuð langt frá þeim fjölda í í gær. Meðmælendur framboðsins kusu því ekki flokkinn en Ástþór hefur meðal annars skellt skuldinni á Ríkisútvarpið í þeim efnum.

„Þetta er bara upphafið - nú er að sanna sig“

Guðmundur Steingrímsson er nýr þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Hann segir endurreisn flokksins þegar hafna og þegar farna að bera árangur eftir hremmingar undanfarinna ára. Hann segir miklar kröfur gerðar til þingmanna og ekki síst til sín þar sem ættarbogi hans eigi sér mikla sögu í flokknum og kjördæminu. Guðmundur talar um stórmeistarajafntefli í kjördæminu en 70 atkvæði skyldu að flokkinn sem var „stærstur“ og framsóknar sem var í fjórða sæti.

Búsáhaldarbyltingin komin á þing

Búsáhaldarbyltingin er komin á þing segja nýjir þingmenn Borgarahreyfingarinnar sem unnu stór sigur í gærkvöld. Þau lofa að halda gluggunum á þinghúsinu opnum út á Austurvöll til að rödd fólksins heyrist inni á þingi.

Fallnir af þingi

Frjálslyndi flokkurinn þurrkaðist út af Alþingi í þingkosningum. Meðal annarra sem féllu voru Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður sjálfstæðismanna.

Vissi að fylgi Sjálfstæðisflokksins væri ofmetið í Vestmannaeyjum

Róbert Marshall er nýr þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Hann segist mjög þakklátur með þann stuðning sem honum er sýndur og segist hafa vitað að fylgi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum hafi verið ofmetið. Því hafi hann einbeitt sér þar síðustu vikuna fyrir kosningar og það hafi skilað sér. Hann vill fara strax í aðildarviðræður við Evrópusambandið og vill stuttar stjórnarmyndunarviðræður.

Segir fjölmiðla hafa lagt flokkinn nánast í einelti

Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur átt sæti á Alþingi síðustu tíu árin dettur nú af þingi. Hún segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart miðað við skoðanakannanir fyrir kosningar. Hún segist ekkert hafa ákveðið hvað taki nú við en margt hafi spilað inn í slæmt gengi flokksins í kosningunum. Ásta segir fjölmiðla ekki hafa hjálpað flokknum og hamast hafi verið á Guðlaugi Þór alla páskanna á meðan þagnarhjúpur hafi verið myndaður um Ingibjörgu Sólrúnu varðandi styrkjamálin.

Listi yfir þá sem taka sæti á Alþingi - 27 nýir þingmenn

Af þeim 63 þingmönnum sem náðu kjöri í kosningunum eru 27 konur en þær hafa ekki verið eins margar á þingi áður. Framsókn nær inn 9 þingmönnum, Sjálfstæðisflokkur 16, Borgarahreyfingin 4, Samfylking 20 og VG 14. Frjálslyndiflokkurinn þurkkast út í kosningunum og fær engan mann inn á þing. Hér að neðan má sjá lista yfir þá sem taka sæti á Alþingi samkvæmt niðurstöðum kosninganna.

„Fín sárabót í restina“

„Þessi tíðindi eru fyrst og fremst ánægjuleg og gleðileg. Ég held að við sjálfstæðismenn höfum átt þetta inni sem svona sárabót í restina,“ segir Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem datt inn á þing þegar síðustu tölur komu í hús um 9:00 leytið í morgun. Jón segir að flokkurinn hafi haft trú á því í alla nótt að þessi sextándi þingmaður kæmist inn og það hafi gengið eftir.

„Ég fer ósár frá þessu“

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði var í baráttusæti Samfylkinginarinnar í Suðvesturkjördæmi. Þegar síðustu tölur komu í hús nú rétt rúmlega 9:00 í morgun var ljóst að hann var ekki inni. Hann hefur verið inni og úti í alla nótt og segist í samtali við Vísi hafa spáð því að hann yrði Samúel Örn fram undir morgun og það virðist hafa ræst.

Lokatölur úr Kraganum - Ögmundur verður þingmaður áfram

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra nær kjöri sem þingmaður í Suðvesturkjördæmi eftir að lokatölur hafa verið birtar. Samkvæmt tölunum fær VG tvo þingmenn í kjördæminu. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir verður annar þeirra og Ögmundur hinn. Eftir að fyrstu tölur voru birtar í Suðvesturkjördæmi leit ekki út fyrir að Ögmundur næði kjöri.

Samstarf vinstri flokkanna ekki sjálfgefið

Ekki er sjálfgefið að Samfylkingin leiti eftir stjórnarsamstarfi við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð, að mati Magnúsar Orra Schram, sem er nýr þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.

Lúðvík Geirsson er inni

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri er aftur kominn með sæti á Alþingi, en hann er fimmti maður Samfylkingarinnar í Suðvestur kjördæmi. Þeir Lúðvík Geirsson og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa skipst á jöfnunarsætinu það sem af er nóttu. Enginn veit enn hvernig sú staða endar.

VG með þrjá þingmenn í NV kjördæmi

Vinstri hreyfingin - grænt framboð nær þremur mönnum á þing í Norðvesturkjördæmi eins og staðan lítur út þegar búið er að telja atkvæði úr öllum kjördeildum. Þar með er VG með flesta þingmenn í kjördæminu. Einn maðurinn nær þó sæti sem jöfnunarþingmaður. Þingsætin skiptast með eftirfarandi hætti.

Lúðvík úti - Jón Gunnarsson aftur inn

Hafnfirski bæjarstjórinn og Samfylkingarmaðurinn Lúðvík Geirsson er aftur dottinn út af þingi í suðvesturkjördæmi. Fyrr í kvöld sagði hann við Vísi að hann væri Samúel Örn kosninganna en hann datt inn og út af þingi heila nótt þar til hann endaði sem varaþingmaður.

Lúðvík Geirsson: Ég er Samúel Örn þessara kosninga

„Ég er svona Samúel Örn þessara kosninga,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar sem segir það ekki sáluhjálparatriði hvort hann detti inn sem jöfnunarþingmaður eða einhver annar Samfylkingarmaður. Hann telur gott gengi Samfylkingarinnar útskýrast á evrópustefnu flokksins.

Samfylkingin hagnast á uppbótarþingsætum

Alls eru níu þingmenn komnir inn vegna uppbótarþingsæta. Ástæðan fyrir uppbótarþingsætum er vegna þess að niðurstöður kosninga, sætanna það er að segja, er skipt á milli kjördæma til þess að jafna atkvæðavægi.

Ekki stærsti sigur Samfylkingarinnar

Samfylkingin nær ekki því kjörfylgi sem flokkurinn hafði árið 2003 ef niðurstöður verða þær sömu þegar búið er að telja öll atkvæði og þau eru núna. Árið 2003 hlaut flokkurinn 31% atkvæða. Eins og staðan er núna er flokkurinn með tæplega 30% atkvæða. Flokkurinn var hins vegar með heldur minna fylgi fyrst þegar Samfylkingin bauð fram árið 1999 og árið 2007, en þá var fylgið 26,8%.

Gríðarlegar sviptingar hjá þingmönnum

Nokkuð hefur breyst síðan Vísir sagði frá því að þingmenn væru að detta út fyrr í nótt. Formaður þingflokks Sjálfstæðismanna, Arnbjörg Sveinsdóttir, er dottinn inn sem jöfnunarþingmaður í norðausturkjördæmi. Þá er Birgir Ármannsson kominn á þing á ný sem jöfnunarþingmaður.

27 nýir þingmenn

Samkvæmt nýjustu tölum eru tuttugu og sjö nýir þingmenn að fara hefja sitt fyrsta kjörtímabil á Alþingi. Flestir þeirra tilheyra Samfylkingunni, eða níu þingmenn. Samfylkingin er jafnframt með mestu endurnýjunina. Það koma hinsvegar fæstir nýjir þingmenn frá Sjálfstæðisflokknum og því endurnýjun flokksins minnst.

Lokatölur úr Reykjavík suður

Lokatölur úr Reykjavíkurkjördæmi suður voru lesnar upp á fjórða tímanum. Samkvæmt þeim er Birgir Ármannssson með þingsæti. Lokatölur eru annars eftirfarandi.

Sigurður Kári dottinn út af þingi

Þingmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson er dottinn út af þingi en hann var jöfnunarmaður í Reykjavík suður. Hann var þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins en Ásta Möller einnig dottinn út af þingi.

Sjá næstu 50 fréttir