Fleiri fréttir

Þorgerður Katrín: Þetta er grautfúlt

„Þetta er grautfúlt," sagði þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður sjálfstæðisflokksins um afhroð Sjálfstæðisflokksins í kosningunum í viðtali á RÚV. Hún sagði að flokkurinn þyrfti að halda áfram, ekki mætti dvelja í fortíðinni heldur horfa fram á við og læra af reynslunni: „Eins og ég segi alltaf, það er eitt skref til hægri og ekkert til vinstri."

Kosningaskýring: Samfylkingin komin í lykilstöðu

Meginniðurstaða kosninganna er sú að Samfylkingin hefur tekið við lykilstöðu Sjálfstæðisflokksins sem stærsti flokkur landsins. Þetta gerir það að verkum að Samfylkingin hefur nú möguleika á því að mynda meirihluta með einum flokki hvort sem er til vinstri eða hægri við sig.

Samfylkingin að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur

Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að Samfylkingin sé með kosningunum nú að stíga á sviðið sem kjölfestuflokkur í íslenskum stjórnmálum. Þetta kom fram í viðtali við hann í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins.

Krefst afsagnar formanns Frjálslynda flokksins

„Ég tel að formaðurinn hafi keyrt flokkinn í þrot og hann eigi að segja sér sem og öll stjórnin," segir Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins og fyrrum varaformaður hans en honum er brugðið vegna slæmrar útreiðar flokksins í kosningunum.

Jóhanna segir Evrópumálin eiga þátt í sigri Samfylkingarinnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist telja að Evrópumálin eigi verulegan þátt í sigri Samfylkingarinnar í kosningunum. Jóhanna sagði í kosningasjónvarpi Stöðvar 2 að Samfylkingin hafi lagt verulega áherslu á evrópumálin. Það sé sannfæring flokksins að sú stefna sé leiðin út úr vandræðunum. Hún segist telja að fólkið vilji fá að kjósa um þá kosti sem séu til staðar varðandi Evrópusambandið.

Möguleiki á þremur stjórnarmeirihlutum Samfylkingarinnar

Samfylkingin hefur möguleika á því að mynda þrennskonar ríkisstjórnir miðað við hvernig fylgið lítur út núna. Í fyrsta lagi getur Samfylkingin endurnýjað samstarfið við Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Í öðru lagi getur flokkurinn myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum. Í þriðja lagi getur flokkurinn myndað þriggja flokka meirihluta með Borgarahreyfingunni og Framsóknarflokknum.

Talningu lokið

Nú er talningu lokið í Alþingiskosningunum. 193.934 greiddu atkvæði en síðustu tölur komu frá Norðausturkjördæmi. Úrslit kosninganna eru á þann veg að Sjálfstæðisflokkurinn missir níu þingmenn á landsvísu, með 22.9 prósent og fá þeir 16 þingmenn kjörna.

Munum sækja fylgið til baka

„Við erum með fólkið. Við erum með stefnuna í farteskinu til að snúa stöðunni við. Og við munum sækja fylgið til baka," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins.

Á von á að viðræður hefjist á morgun

„Ég geri ráð fyrir að við hittumst jafnvel strax á morgun," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, fyrir stundu um möguleika á stjórnarsamstarfi VG og Samfylkingarinnar. Steingrímur sagði í samtali við fréttastofu Ríkissjónvarpsins að úrslit kosninganna væru söguleg. Þetta væri hrun Sjálfstæðisflokksins og nýfrjálshyggjunnar. Um væri að ræða gríðarlega vinstri sveiflu í þessum kosningum. Hann sagði að það væru mikil tíðindi hve mikinn stuðning VG fær í Norðausturkjördæmi, sem er kjördæmi Steingríms.

Ríkisstjórnin heldur velli

Ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt fyrstu tölum allra kjördæma. Ríkisstjórnin hefur 52,9 prósent eða 35 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn er að tapa í öllum kjördæmum.

Ögmundur Jónasson: Sallarólegur þrátt fyrir að vera ekki inni

„Ég hef áður reynt að vera inni og úti alla nóttina, síðast var það í þingkosningum árið 1995," segir heilbrigðisráðherrann Ögmundur Jónasson sem er ekki inni fyrir Vinstri græna í suðvestukjördæmi. Hann segist haga sér eins og hann gerði nóttina árið 1995: „Ég er sallarólegur og að landið rísi með nóttinni."

Mikið um útstrikanir í Reykjavík

Fyrrum formaður Samfylkingarinar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, var mikið strikuð út samkvæmt RÚV, en ekki er búið að birta nákvæmar tölur um útstrikanir. Það verður ekki get fyrr en eftir helgi. Athygli vekur að Ingibjörg er mikið strikuð út en hún vermdi síðasta sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður.

Kosningaskýring: ESB sinnuð framboð sigurvegararnir

Evrópusambandssinnar eru sigurvegarar þessa kosninga. Samfylkingin hlýtur sína bestu kosningu frá upphafi og bætir við sig fjórum þingmönnum. Og Borgarahreyfingin er sem stendur með þrjá menn kjördæmakjörna á suðvesturhorni landsins.

VG stærst í Norðaustur kjördæmi

Vinstri Grænir eru stærsti í Norðaustur kjördæmi með 1819 atkvæði eða 30,3 prósent. Samfylkinging er næst stærst með rúm 26 prósent atkvæða.

Kosningasjónvarpið í beinni á Vísi

Kosningasjónvarp Stöðvar 2 er í beinni útsendingu á Vísi frá klukkan níu í kvöld. Fréttastofa Stöðvar 2 verður með fréttatíma klukkan tíu í kvöld og aftur á miðnætti. Logi Bergman Eiðsson mun hins vegar halda úti eldhressum kosningaþætti í opinni dagskrá. Logi mun fylgjast með gangi mála í bland við lauflétt skemmtiatriði. Félagarnir Auddi og Sveppi munu einnig heimsækja kosningavökur og taka púlsinn á frambjóðendum flokkanna.

Þarf að nást samstaða um Evrópusambandið

„Aðild að Evrópusambandinu hefur fengið miklu meiri hljómgrunn en margir áttu von á. Niðurstaðan er þannig að við erum í mjög sterkri stöðu varðandi það," sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í samtali við RÚV. Þá sagði Steingrímur að það væri sögulegt að vinstri flokkarnir fengu meirihluta í kosningum. Össur sagði að Samfylkingin þyrfti að ræða við samstarfsflokkinn á morgun en það þyrfti að nást samstaða um Evrópusambandið. Það yrði reynt til þrautar.

Kosningaskýring: Samningsstaða VG hefur versnað

Þótt Vinstri grænir geti vel unað við kosningaútslitin, enda auka þeir þingmannafjölda sinn um fjóra menn, er staðreyndin samt sú að samningsstaða þeirra hefur versnað. Einkum hvað varðar aðildarviðræður við Evrópusambandið sem var höfuðstefnumál Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni.

Jóhanna: Ég er hrærð, stolt og auðmjúk

„Okkar tími er kominn," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra við stuðningsmenn sína á Grand hótel fyrir stundu og fjöldinn ærðist þegar þau fögnuðu góðu gengi flokksins eftir að fyrstu atkvæði hafa verið talinn.

Steingrímur er fyrsti þingmaður í Norðausturkjördæmi

Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti þingmaður í Norðausturkjördæmi samkvæmt fyrstu tölum. Þetta er í fyrsta skipti í sögu Vinstri grænna sem þeir eru með fyrsta þingmann í kjördæmi. „Við erum samkæmt þessum fyrstu tölum stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi. Það eru auðvitað bara frábær tíðindi ef það gengur eftir. Það sýnir bara hvað hann hefur styrkt sig - ekki bara í kjördæminu heldur á landinu öllu," sagði Katrín Jakobsdóttir í kosningasjónvarpi Stöðvar 2.

Á von á áframhaldandi stjórnarmynstri

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á von á því að stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verði endurnýjað ef stjórnin fær eins stóran meirihluta og fyrstu tölur benda til.

Ákall um aðild að Evrópusambandinu

„Þetta eru auðvitað skýr skilaboð um það að það er ákall um aðild að Evrópusambandinu," sagði Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við Ríkissjónvarpið í kvöld. Hann sagðist hlakka til að hægt yrði að taka Evrópumálin upp úr hjólförum flokkapólitíkurinnar.

Niðurstaðan í samræmi við kannanir

„Þetta er nú reyndar mjög í samræmi við kannanir. Okkar hlutverk er að endurvinna það traust. Ég er rétt að hefja þessa vinnu," sagði Bjarni Benediktsson í samtali við Ríkissjónvarpið nú í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn tapar 10 þingmönnum samkvæmt fyrstu tölum. Hann sagði að ríkisstjórnarinnar biði mjög erfið verkefni. Hann óskaði henni góðs gengis.

Ögmundur á leið út samkvæmt fyrstu tölum

Ögmundur Jónasson kemst ekki inn á þing samkvæmt kosningaspá sem byggð er á fyrstu tölum úr Suðvesturkjördæmi og þeim skoðanakönnunum sem voru gerðar. Ögmundur var í öðru sæti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs en Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er í fyrsta sæti. Guðfríður Lilja nær kjöri samkvæmt sömu kosningaspá.

Bjarni Ben: Verðum léttari í þingmannafjölda

„Við verðum aðeins léttari í þingmannafjölda en hefur verið," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í kosningaþætti Loga Bergmans. Viðtalið tóku spraugararnir Auddi Blöndal og Sveppi.

Þráinn Bertelsson braut kosningalög

Þráinn Bertelsson, efsti maður á lista Borgarahreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, braut kosningalög þegar að hann greiddi atkvæði í dag. Þegar Þráinn skilaði atkvæði sínu í kjörkassann gerði hann merki listans með fingrunum.

69 prósent búnir að kjósa í RVK suður

Alls höfðu 30184 kosið í Reykjavík Suður klukkan átta í kvöld eða 69 prósent. Það er ívið betra en fyrir tveimur árum síðan þegar 29488 höfðu kosið á sama tíma eða 67,96 prósent.

Finnur fyrir stemningu fyrir Vinstri grænum

„Við þurfum að telja upp úr kjörkössunum og sjá hvernig þetta endar allt saman," segir Svandís Svavarsdóttir, en hún verður nýr þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs ef marka

Ívið betri þáttaka í Reykjavík norður en síðast

Kjörsókn klukkan átta í Reykjavíkurkjördæmi norður var 67,02 prósent. Þá höfðu 29.332 manns kosið í kjördæminu. Samanborið við kosningarnar árið 2007 er kjörsóknin þetta árið ívið betri en þá höfðu 65,92 prósent mætt á kjörstað.

Meiri kjörsókn á Suðurlandi en síðast

Alls voru 18870 búnir að kjósa klukkan 18:00 á Suðurlandi samkvæmt tölum frá kjörstjórn. Það eru 1447 fleiri en kusu á sama tíma fyrir tveimur árum síðan eða 17423.

71,2 prósenta kjörsókn í Suðvesturkjördæmi

Kjörsókn í Suðvesturkjördæmi klukkan átta var 71,2 prósent. Þá höfðu 41.462 manns kosið. Í samanburði við síðustu kosningar er þetta betri kjörsókn en árið 2007 þegar 36.490 manns höfðu kosið eða 66,9 prósent.

Blá kosningatjöld í Hafnarfirði

„Þau eru varla hreinblá, eiginlega frekar gráblá," segir Jóna Ósk Guðjónsdóttir, yfirmaður kjörstjórnar í Hafnarfirði en kjósendur hafa sett sig í samband við Vísi í dag og bent á að tjöldin fyrir kjörklefunum Í Setbergsskóla séu blá.

Rúmlega 60% kjörsókn í Reykjavík

Rúmlega 27.000 manns höfðu kosið í Reykjavíkurkjördæmi Norður klukkan 19:00 í kvöld sem er 62,49% kjörsókn en á sama tíma árið 2007 höfðu 61,49% kosið.

Töluverður áhugi á kosningunum erlendis

Erlendir fjölmiðlar sýna kosningunum töluverðan áhuga. Stórar fréttaveitur á borð við Reuters og Bloomberg fjalla um málið í dag sem og margir aðrir fjölmiðlar á Norðurlöndunum og í Evrópu.

Viðbúnaður við Hallgrímskirkju

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu upp úr 18:00 í kvöld frá manni sem sagðist vera uppi í Hallgrímskirkjuturni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mátti á manninum skilja að hann ætlaði að hoppa niður úr turninum sem er umlukinn byggingarstillönsunum.

Útsending Stöðvar 2 komin í lag

Tímabundin bilun sem kom upp í útsendingu Stöðvar 2 er nú komin í lag. Þeir sem ekki hafa myndlykil þurftu að horfa á læsta dagskrá þegar fréttir fóru í loftið í kvöld. Nú er hinsvegar búið að kippa þessu í lag.

Jóhanna þurfti túlk

Fjölmenni var á blaðamannafundi forsætisráðherra fyrir erlenda fréttamenn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Erlendir miðlar hafa vikum saman reynt að ná tali að ráðherra og fengu í dag að spyrja hana spurninga með aðstoð túlks.

Liðlega 50% kjörsókn í Kópavogsbæ

Kópavogsbær birtir á klukkustundar fresti upplýsingar um kjörsókn á heimasíðu sinni www.kopavogur.is. Klukkan 17:00 hafði liðlega helmingur kjósenda á kjörskrá í Kópavogi neytt atkvæðisréttar síns í alþingiskosningunum eða 52,9%, 5.441 karl og 5.968 konur. Þetta er umtalsvert meiri kjörsókn en á sama tíma árið 2007. Þá höfðu 48,8% kjósenda kosið í Kópavogi. Aukningin nemur 8,4%.

Var klukkutíma inni í kjörklefa

„Eigum við ekki að segja að ég hafi beitt atkvæðaþófi gegn málþófi þingmanna gegn stjónlagaþingi, persónukjöri og það að koma auðlindunum í þjóðareigu,“ segir Þorvaldur Óttar Guðlaugsson kjósandi í Reykjavík. Segja má að Þorvaldur hafi vakið nokkra athygli í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þar sem hann mætti með umferðarmerki sem merkir „Aðalbraut endar“.

Kjörseðlarnir kláruðust í Borgarnesi

Sýslumaðurinn í Borgarnesi sér um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu nú fyrir alþingiskosningarnar. Mikið af fólki dvelur í sumarbústöðum í grenndinni og kýs utankjörstaða í Borgarnesi. Það gerðist hinsvegar í dag að kjörseðlarnir kláruðust og var þónokkur fjöldi sem gat ekki kosið og þurfti að bíða eftir fleiri atkvæðaseðlum. Sækja þurfti þá í Búðardal.

79 ára gamall maður játar íkveikju í Grímsnesi

Karlmaður fæddur 1930 hefur játað að vera valdur að bruna í sumarbústað við Borgarleyni í Grímsnesi í gær. Hann var handtekinn skammt frá brunastað á meðan slökkvistarf stóð yfir og gisti fangageymslur í nótt en var látinn laus eftir yfirheyrslu um hádegisbil í dag.

Kjörsókn í Reykjavík meiri nú en árið 2007

Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu virðast sýna kosningunum mikinn áhuga samkvæmt tölum yfirkjörstjórna í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Í Reykjavík suður höfðu 19.738 kosið klukkan 16:00 sem er 45,12% kjörsókn. Það er þremur prósentum meira en í kosningunum árið 2007, en þá höfðu á sama tíma 41,89% kosið.

Sjá næstu 50 fréttir