Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lítil endurnýjun í prófkjörum flokkanna Krafan um endurnýjun skilaði sér ekki inn í prófkjör sjálfstæðismanna og Samfylkingar í gær að mati stjórnmálafræðings. Sitjandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins röðuðu sér alls staðar í efstu sætin. 15.3.2009 19:19
150 þungavigtarmenn í Samfylkingunni skora á Jóhönnu Líklegt er talið að Jóhanna Sigurðardóttir lýsi yfir formannsframboði sínu í Samfylkingunni á allra næstu dögum. Á föstudag var henni afhent áskorun frá 150 þungavigtarmönnum og konum í flokknum um að bjóða sig fram og í gær fékk hún yfirburðarkosningu í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík. 15.3.2009 18:48
Þrjár konur og þrír karlar leiða framboðslista VG Úrslit úr öllum forvölum Vinstri grænna liggja nú fyrir og ljóst að karlar og konur skipta með sér að leiða framboðslista flokksins í komandi kosningum. 15.3.2009 17:32
Hálka á Reykjanesbraut Hálkublettir og éljagangur eru á Reykjanesbraut og á höfuðborgarsvæðinu. Á Hellisheiði og Þrengslum er snjókoma og hálka. Á Suðurlandi eru víða hálkublettir, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 15.3.2009 17:24
Tryggvi felldi þingflokksformanninn Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og fyrrum efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Hann sigraði Arnbjörgu Sveinsdóttur þingflokksformann með rúmlega 350 atkvæða mun. Kristján Þór Júlíusson, núverandi oddviti, fékk örugga kosningu í fyrsta sætið. 15.3.2009 16:57
Saksóknari fær ekki skýrslur um gömlu bankana Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari sem ætlað er að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda bankahrunsins hefur sökum bankaleyndar ekki fengið aðgang að þeim gögnum sem hann telur nauðsynlegt að embætti sitt fái. Um er að ræða skýrslur endurskoðunarfyrirtækja um gömlu bankana dagana fyrir og eftir fall þeirra í október. Skýrslunar eru nú í vörslu Fjármálaeftirlitsins. 15.3.2009 16:19
Kristján efstur - Tryggvi í 2. sæti Kristján Þór Júlíusson er í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi þegar talinn hafa verið 1000 atkvæði. Tryggi Þór Herbertsson, hagfræðingur, er í öðru sæti. Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður, er í þriðja sæti. Tryggvi hefur 154 atkvæða forskot á Arnbjörgu. 15.3.2009 16:04
Krafa um endurnýjun og öfluga talsmenn Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að niðurstöður í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins í gær endurspegli annarsvegar kröfu um endurnýjun og hinsvegar vilja flokksmanna um að hafa atkvæðamikla og öfluga talsmenn í forystu. Hún segir að Samfylkingarfólk hafi refsað Össuri Skarphéðinssyni og að Jón Baldvin Hannibalsson geti gefið frá sér frekari stjórnmáladrauma. 15.3.2009 14:30
Feðginum hafnað Feðginunum Jóni Baldvini Hannibalssyni og Kolfinnu Baldvinsdóttir vegnaði ekki vel í prófkjörum Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í gær. Báðum var hafnað. 15.3.2009 13:27
Frambjóðandi veit ekki í hvaða sæti hann lenti ,,Ég hef ekki frekar en aðrir sem höfnuðu neðar en 12. sæti ekki hugmynd um hvort ég hafnaði í 13. sæti eða 29. sæti. Þessi leynd er afar sérkennileg og alveg ástæðulaus," segir Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og varaþingmaður. Hún sóttist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en var ekki meðal 12 efstu. 15.3.2009 13:15
Jón sigraði - Grímur varð sjötti Talningu atkvæða úr prófkjöri Vinstri grænna Norðvesturkjördæmi er lokið. Jón Bjarnason, þingmaður og oddvitaði flokksins í kjördminu, sigraði örugglega. Grímur Atlason fyrrum bæjarstjóri í Bolungarvík og núverandi bæjarstjóri Dalabyggðar hafnaði í sjötta sæti. 15.3.2009 12:43
Ólöf Nordal: Slakur árangur kvenna kemur á óvart Ólöf Nordal, sem hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, segir að það hafi komið sér á óvart að konur skyldu ekki fá betri kosningu í prófkjörinu í gær. Ólöf er eina konan í efstu sex sætunum 15.3.2009 12:18
Fjórum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hafnað Fjórum núverandi þingmönnum var hafnað í prófkjörum sjálfstæðisflokksins í gær. Kosningaþátttaka var mun dræmari nú en fyrir tveimur árum eða sem nemur 20 prósentum. 15.3.2009 12:02
Línur skýrast í Norðausturkjördæmi Kosið verður um átta efstu sæti á lista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi í dag. Kosning fer fram á kjördæmisþingi flokksins á Egilsstöðum en þingmennirnir Höskuldur Þórhallsson og Birkir J. Jónsson keppa um fyrsta sætið. Úrslit ættu að liggja fyrir í kvöld. 15.3.2009 10:59
Viðbúnaði á Vestfjörðum lokið Veðurstofan í samráði við Kristínu Völundardóttur, lögreglustjórann á Vestfjörðum, hefur afturkallað óvissustig á Norðanverðum Vestfjörðum og er því viðbúnaði lokið. 15.3.2009 10:33
Niðurstöður úr prófkjörum flokkanna Úrslit réðust í fjölmörgum prófkjörum í gær og í nótt. Illugi Gunnarsson hreppti efsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Illugi fékk ríflega helmingi fleiri atkvæði í fyrsta sætið en keppinautur hans Guðlaugur Þór Þórðarson sem hafnaði í öðru sæti. Alls tóku tæplega 8 þúsund manns þátt í prófkjörinu en talningu lauk skömmu fyrir miðnætti í gær. Pétur Blöndal hlaut þriðja sætið og Ólöf Nordal fjórða. Þar á eftir komu þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson. Ásta Möller hafnaði í sjöunda sæti og Erla Ósk Ásgeirsdóttir í því áttunda 15.3.2009 10:06
Erilsöm nótt - þrír handteknir í samkvæmi í Árbænum Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og gistu alls tíu manns fangageymslur. Átök brutust út í samkvæmi í heimahúsi í Vallarási í Árbæjarhverfi eftir miðnætti. Karlmaður var fluttur á slysadeild mikið slasaður á handlegg eftir að hann kýldi í gegnum rúðu. Þrír gestir úr samkvæminu gistu fangageymslur í nótt. 15.3.2009 09:50
Talsverður erill hjá lögreglunni á Suðurnesjum Talsvert var um að vera hjá lögreglunni á Suðurnesjum í gærkvöldi og nótt. Um ellefu leytið í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um árekstur í Grindavík þar sem ökumaður ók af vettvangi. Lögreglumenn höfðu upp á manninum skömmu síðar en hann var grunaður um ölvun við akstur. 15.3.2009 09:20
Hálka víðsvegar um landið Á Suðurlandi er hálka og éljagangur á Hellisheiði, hálka í Þrengslum og á Sandskeiði annars hálka og snjóþekja í uppsveitum, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 15.3.2009 09:04
Skíðasvæðið í Tindastól opið Skíðasvæðið í Tindastól verður opið frá klukkan 11 til 17 í dag. Viggó Jónsson, umsjónamaður, segir að skíðafærið sé afar gott. ,,Um um að gera að taka fram skíðin og mæta í hvíta mjöllina sem hefur komið hér síðustu daga með látum." 15.3.2009 09:03
Ragnheiður Elín sigraði í Suðurkjördæmi Talsverð endurnýjun varð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ragnheiður Elín Árnadóttir, núverandi þingmaður Suðvesturkjördæmis, sigraði örugglega í prófkjörinu en hlaut 2192 atkvæði í fyrsta sætið. Árni Johnsen, varð í 2. sæti með 1576 atkvæði í 1.-2. sæti. 15.3.2009 08:37
13 ára með próf í veðurfræði Þrettán ára japanskur strákur er sá yngsti sem hefur náð prófi í veðurfræði þar í landi. Þetta þykir því merkilegra að veðurfræðiprófið í gríðarlega þungt í Japan. Aðeins 6,3 prósent þeirra sem taka prófið ná því. 15.3.2009 06:45
Bjarni varð efstur í Kraganum - Búið að telja Lokatölur liggja fyrir í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Ekki urðu breytingar á röðun efstu manna á listanum. Bjarni Benediktsson mun því leiða listann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður í öðru sæti og Ragnheiður Ríkharðsdóttir í því þriðja. 14.3.2009 22:42
Ásta Ragnheiður náði áttunda sætinu Helgi Hjörvar og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skiptust á sætum þegar búið var að telja öll atkvæði hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Helgi Hjörvar situr því í þriðja sæti listans en Sigríður í því fjórða. Þá færðist Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir upp í 8. sæti en Anna Pála Sverrisdóttir færðist niður í það 10. Mörður Árnason vermir svo 9. sætið. Alls greiddu 3543 atkvæði en 7743 voru á kjörskrá og var kjörsókn því 45,8%. 14.3.2009 22:24
Búið að telja 78% atkvæða í Reykjavík Engar breytingar eru á röðun efstu tólf frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar að búið er að telja 6182 atkvæði af alls 7871 í prófkjörinu, eða um 78% atkvæða. 14.3.2009 21:56
Varað við óveðri á Hellisheiði Vegagerðin varar vegfarendur við óveðri á Hellisheiði. Hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Sandskeiði og mörgum öðrum leiðum á Suðurlandi. 14.3.2009 20:45
Tækifæri til að gera landinu gagn ,,Ég hef fengið tækifæri til að gera flokknum og landinu mínu gagn," segir Illugi Gunnarsson sem hefur örugga forystu í 1. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. ,,Maður gleðst auðvitað þegar vel gengur." 14.3.2009 20:31
Pínulítið hissa ,,Ég er pínulítið hissa en afskaplega þakklát og ánægð með þann stuðning sem ég hef fengið," segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur, en hún er í 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar rúmlega 1300 atkvæði eru ótalin. 14.3.2009 20:05
Tölur væntanlega úr Suðurkjördæmi upp úr miðnætti Tölur eru væntanlegar úr Suðurkjördæmi upp úr miðnætti. Áður hafði verið gert ráð fyrir að talning þyrfti að frestast vegna veðurs og að tölur yrðu ekki kynntar fyrr en á morgun en það rofaði til stutta stund í dag og hægt var að skjótast með atkvæði frá Vestmannaeyjum. Á miðnætti verða því kynntar fyrstu tölur og heldur talning áfram fram á nótt, þar til úrslit liggja fyrir. 14.3.2009 21:03
Óbreytt staða í Suðvesturkjördæmi Nýjar tölur eru komnar úr Kraganum og er Bjarni Benediktsson sem fyrr efstur og Þorgerður Katrín í öðru sæti. Ragnheiður Ríkharðsdóttir heldur þriðja sætinu, Jón Gunnarsson því fjórða, Óli Björn Kárason fimmta og Ármann Kr. Ólafsson er í sjötta sætinu. Nokkur spenna er þó um úrslitin því ekki munar miklu á frambjóðendum í þriðja til sjötta sæti. 14.3.2009 21:16
Erla og Sigríður skiptast á sætum í Reykjavík Nú hafa verið talin 5210 atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík og hefur Illugi Gunnarsson örugga forystu í 1. sætið, með alls 3076 atkvæði. 14.3.2009 21:12
Erfitt að fá svör hjá stjórn HB Granda Fréttastofa reyndi árangurslaust í dag að fá útskýringar hjá stjórn HB Granda á ákvörðun hennar um að leggja til við aðalfund félagsins að eigendum verði greiddar um 150 milljónir króna í arðgreiðslu. 14.3.2009 21:00
Óbreytt staða í Reykjavík - Illugi með örugga forystu Nú hafa verið talin 4732 atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík og hefur Illugi Gunnarsson örugga forystu í 1. sætið, með alls 2814 atkvæði. Lítil breyting er á röðun frambjóðenda fyrir neðan. Guðlaugur Þór Þórðarson er annar og Pétur Blöndal er í þriðja sæti. 14.3.2009 20:13
Frambjóðendur eyða í auglýsingar Frambjóðendur í prófkjörum Sjálfstæðisflokks eyddu mörg hundruð þúsund krónum í blaðaauglýsingar síðustu tvo dagana fyrir kosningar. Formaður yfirkjörstjórnar Sjálfstæðisflokks í Reykjavík segir þó minna auglýst nú en áður. 14.3.2009 20:00
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í lottóinu í kvöld og verður vinningurinn því þrefaldur í næstu viku. 14.3.2009 19:54
Bjarni áfram efstur - Ragnheiður færist upp Bjarni Benediktsson er enn í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokknum í Suðvesturkjördæmi. Ragnheiður Ríkharðsdóttir er komin í þriðja sætið þegar búið er að telja um 1.100 atkvæði en hún var í sjötta sæti í fyrstu talningu. 14.3.2009 19:22
Aðstandendur fagna ákvörðun ríkissaksóknara Ríkissaksóknari vill að lögregla taki að nýju fyrir rannsókn á láti tveggja ungra manna sem fundust látnir í bíl við Daníelsslipp fyrir 24 árum. Aðstandendum þeirra var sagt að mennirnir hefðu framið sjálfsvíg en við þá skýringu hafa þeir aldrei sætt sig við. Þeir fagna ákvörðun ríkissaksóknara. 14.3.2009 18:53
Ísland sagt eitt af fimm hættulegustu löndum heims Það eru að hefjast vorfrí í bandarískum skólum. Því fagna nemendur með því að flykkjast milljónum saman til annarra landa og djúsa þar og djamma eins og það sé að koma heimsendir. 14.3.2009 18:45
Rýmingu aflétt í Bolungarvík Veðurstofan í samráði við Kristínu Völundardóttur, lögreglustjórann á Vestfjörðum, hefur afturkallað hættustig á reit 4 í Bolungarvík. Íbúum húsa á reitnum er heimilt að snúa heim og þá er umferð um reitinn heimil. Áfram er óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum, að minnsta kosti til morguns. 14.3.2009 18:42
Bjarni efstur í Kraganum - Rósa meðal efstu manna Bjarni Benediktsson er í efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi en þar er búið að telja 200 atkvæði. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er í öðru sæti. Þar á eftir koma Jón Gunnarsson, Ármann Kr. Ólafsson og Rósa Guðbjartsdóttir. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður, er í sjötta sæti en flokkurinn fékk sex þingmenn í kjördæminu í síðustu kosningum. 14.3.2009 18:24
Ásta Ragnheiður kemst ekki á blað - Sigríður í 3. sæti Sigríður Ingibjörg Ingadóttir er þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar talinn hafa verið 2363 atkvæði. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra, Mörður Árnason varaþingmaður og Jón Baldvin Hannibalsson eru ekki meðal átta efstu. Röð efstu manna hefur ekki breyst frá því að fyrstu tölur voru birtar. 14.3.2009 18:07
Illugi leiðir í Reykjavík Illugi Gunnarsson hefur hlotið flest atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar rúmlega 3852 atkvæði hafa verið talinn af 7871. Guðlaugur Þór Þórðarson er annar og Pétur Blöndal er í þriðja sæti. Frá því að fyrstu tölur voru birtar hafa Sigríður Andersen og Erla Ósk Ásgeirsdóttir hafa sæta skipti. 14.3.2009 18:04
Guðlaugur sækist ekki eftir formennsku Guðlaugur Þór Þórðarsson ætlar ekki að gefa kost á sér sem formaður á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fer dagana 26. til 29. mars í Laugardalshöll. Hann hefur um hefur alllangt skeið verið orðaður við formannsframboð. 14.3.2009 16:57
Kveikt í útiklósettum í Kópavogi Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning rétt eftir klukkan fjögur í dag um eld á íþróttasvæðinu í Fífunni í Kópavogi. Í ljós kom að kveikt hafði verið í nokkrum útiklósettum sem stóðu skammt hjá íþróttahúsinu Smáranum. Skamman tíma tók að slökkva í klósettunum 14.3.2009 16:34
Lokað fyrir umferð um Kísilveg Kísilvegur, milli Mývatnssveitar og Langavatns, er lokaður vegna ófærðar. Nokkuð hefur borið á að fólk hefur verið að festa bifreiðar sínar þarna en það er hér með áréttað að Kísilvegurinn er lokaður vegna ófærðar, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Húsavík. 14.3.2009 16:22