Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Halldór laus úr öndunarvél Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, er á batavegi eftir að hafa verið haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi í tæpar tvær vikur. Halldór er nú laus úr öndunarvélinni, en hann veiktist hastarlega af lungnabólgu fyrir jól og átti erfitt með andardrátt. 5.1.2009 06:30
Skoðar sameiningu opinberra hlutafélaga Erfitt efnahagsástand gæti orðið hvati að sameiningu Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. Þetta kom fram í máli Kristjáns L. Möller samgönguráðherra þegar Keflavíkurflugvöllur ohf. tók formlega við rekstri flugvallarins á föstudag. 5.1.2009 06:00
Gera áætlun fyrir nauðstadda Ferðamálastofa vinnur nú að aðgerðaráætlun um hvernig skuli brugðist við þegar ferðaskrifstofur fara í þrot, svo farþegar erlendis geti verið þess fullvissir að þeir komist heim að nýju, segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri. 5.1.2009 06:00
Sjálfstæðismenn ræða stjórnarslit Þrír þingmenn sjálfstæðismanna ræddu stjórnarslit um helgina, í ljósi ágreinings stjórnarflokkanna um utanríkismál, sérstaklega ólíkar áherslur um Evrópuaðild. 5.1.2009 04:30
Ráðuneyti borgi laun tilsjónarmanns Heilbrigðisráðuneytið á að borga kostnað vegna tilsjónarmanns með verkefni um greiðsluþátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu. Þetta er úrskurður Persónuverndar. 5.1.2009 04:00
Ræða ástandið í Palestínu Á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í dag verður fjallað um ástandið í Palestínu, farið yfir stöðu mála í deilunni vegna IceSave-reikninganna og rætt hvar málarekstur gegn Bretum er á vegi staddur. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna óskaði eftir fundinum fyrir áramót. 5.1.2009 04:00
Stefna að vatnsútflutningi frá Höfn „Samningurinn gerir ráð fyrir að hafin verði uppbygging á átöppunarverksmiðju fyrir vatn innan fjögurra ára,“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar um samning sveitarfélagsins við Rolf Johansen & Co ehf. sem undirritaður var á mánudaginn. Hann segir að næstu fjögur ár verði nýtt til frekari undirbúnings en stefnt er að því að átöppun hefjist innan fimm ára. 5.1.2009 03:00
Þurfum sértækar aðgerðir í kreppunni Umhverfisráðherra er ekki ósátt við ákvörðun iðnaðarráðherra um að láta staðfesta fjárfestingasamning vegna allt að 360.000 tonna álvers í Helguvík. 5.1.2009 03:00
Blekkingar á útsölu Nú flykkjast menn á útsölur en ekki eru allir jafn sáttir, dæmi eru um að vörur séu dýrari á útsölu en þær voru nýjar. Lóa Pind Aldísardóttir rýndi í verðmiða á útsöluvörum. 4.1.2009 18:30
Hér verða allir að sitja við sama borð Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdarstjóra Samtaka Iðnaðarins segir að því verði ekki unað ef afgreiða eigi vanda einnar atvinnugreinar eða einstakra fyrirtækja með öðrum hætti eða á kostnað annarra. Hér verði allir að sitja við sama borð. 4.1.2009 19:20
Loðnu leitað næstu daga Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson og þrjú loðnuskip eru lögð upp í leitarleiðangur umhverfis Ísland í von um að bjarga milljarða loðnuvertíð. 4.1.2009 19:19
Óttast að málshöfðunin sé að klúðrast Indefence hópurinn sakar íslensk stjórnvöld um sinnuleysi og doða í undirbúningi málshöfðunar gegn breska ríkinu og óttast að málið sé að klúðrast. Frestur Kaupþings til að höfða mál rennur út eftir þrjá daga. Talsmaður hópsins segir það amlóðaskap af ríkisstjórninni ef hún ætlar að láta sér þetta tækifæri úr greipum ganga. 4.1.2009 18:30
Skiljið klósettsetuna eftir uppi Sá fjöldi fullorðinna karlmanna sem á í erfiðleikum með að loka klósettsetunni virðist hafa unnið fullnaðarsigur. Ástæðan er velferð lítilla drengja. 4.1.2009 18:29
Óttast um eiganda bifreiðar Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu er að svipast um eftir bifreiðinni UZ-654 , Volswagen Transporter árgerð 1994. 4.1.2009 17:56
Yfirlýsing frá stjórn VR Stjórn VR senda frá sér yfirlýsingu vegna ummæla sem Lúðvík Lúðvíksson félagsmaður hefur látið falla að undanförnu. Þar segir meðal annars að sá sem býður sig til formennsku og vill stýra 28 þúsund manna félagi verði að vera ljóst hann verður að treysta á eigin burði til þess að kynna sér lög og reglur. Lúðvík hefur farið fyrir hópi sem boðað hefur mótframboð til stjórnar VR. 4.1.2009 17:48
Ökumaðurinn beittur hjartahnoði - búið að opna Hellisheiði Þrír bílar fóru útaf á svipuðum tíma á Suðurlandsvegi um fjögur leytið í dag. Tveir bílar fóru útaf á Hellisheiði og einn í Þrengslunum. Ökumaður annars bílsins á Hellisheiði var á leið austur og slasaðist alvarlega. Mikil mildi þykir að kona sem var á leið til Reykjavíkur og fór útaf hafi labbað frá flakinu. 4.1.2009 17:11
Segir Ingibjörgu Sólrúnu vinna gegn ESB umsókn Ármann Kr. Ólafsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur vinna gegn umsókn að Evrópusambandinu. Hann segir formann Samfylkingarinnar hafa vægast sagt átt furðulegt útspil í umræðunni og halda mætti að hún væri helsti andstæðingur inngöngu í sambandið. 4.1.2009 15:30
Hafa áhyggjur af stöðu Icesave málsins Samtökin In Defence of Iceland (indefence.is) hafa undanfarna mánuði barist fyrir því að leiðrétta ímynd Íslands í útlöndum og verja gríðarlega fjárhagslega hagsmuni þjóðarinnar. Í ljósi alvarlegrar stöðu Icesave málsins boða samtökin til blaðamannafundar til að ræða stöðuna í milliríkjadeilu Íslands og Bretlands. 4.1.2009 14:08
Fordæmir innrás Ísraelshers á Gaza Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fordæmir innrás Ísraelshers á Gazaströndina sem getur aldrei annað en beinst að saklausum íbúum sem eru varnalausir, innilokaðir og hafa skipulega verið sviptir aðgangi að nauðþurftum. 4.1.2009 13:05
Kannabismaðurinn játar Maðurinn sem handtekinn var í gær eftir að lögreglan þefaði uppi umfangsmikla kannabisræktun í bílskúr í Breiðholti hefur verið sleppt. Við yfirheyrslur hjá lögreglu játaði maðurinn að eiga umræddar plöntur og búnað. Hann sagðist hafa verið einn að verki. 4.1.2009 12:23
Samfylkingin stillir okkur ekkert upp við vegg Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir óeðlilegt að Samfylkingin reyni að hafa áhrif á stefnu Sjálfstæðisflokksins. Hann segir flokkinn ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg með hótunum um stjórnarslit verði stefnu flokksins ekki breytt í evrópumálum. Sigurður segir andstöðu við evrópusambandið hafa aukist innan flokksins. 4.1.2009 11:35
Prests- og djáknavígsla í Dómkirkjunni Biskup Íslands vígir cand. theol. Ástu Ingibjörgu Pétursdóttur, sem skipuð hefur verið sóknarprestur í Bíldudals- og Táknafjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi og Gunnar Einar Steingrímsson, sem kallaður hefur verið til djáknaþjónustu í Grafarvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra í Dómkirkjunn í dag. 4.1.2009 11:30
Afskrifa þarf skuldir í sjávarútvegi Árni Johnsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir öruggt mál að afskrifa þurfi hluta af skuldum í sjávarútvegi. Hann segir aldrei hægt að koma því þannig fyrir að jafnt gangi yfir alla en vill að megin línan verði sú að menn njóti sama réttar. Hann segir bankana hafa valdið sér vonbrigðum. Þeir vinni of hægt og málin þurfi að klára sem fyrst. Óvissa sé slæm. 4.1.2009 11:03
Jarðskjálftahrina í Krýsuvík Jarðskjálftahrina hefur staðið yfir í Krýsuvík undanfarna sólarhringa, en þó hafa engir stórir skjálftar fylgt hrinunni. Þannig hafa yfir fimmtíu skjálftar mælst þar frá því á miðnætti, flestir um eða innan við eitt stig, en sá öflugasti mældist 2,2 stig. 4.1.2009 10:15
Ökumenn varaðir við þoku Vegagerðin varar við þoku sem byrgir ökumönnum sýn á þjóðvegum í nágrenni Reykjavíkur. Þannig er þoka á Reykjanesi, Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Einnig hefur þoka legið yfir Reykjavíkursvæðinu í morgun og skyggni verið niður í nokkra tugi metra. 4.1.2009 09:44
Rólegheit hjá helstu lögregluembættum landsins Landsmenn byrja árið með rólegasta móti. Þrátt fyrir skemmtanahald víða um land komu ekki upp nein stórvægileg mál hjá helstu lögregluembættum landsins. Á höfuðborgarsvæðinu var nánast ekkert að gera hjá lögreglunni sem fór í nokkur hefðbundin útköll. Tveir gista þó fangageymslur fyrir ölvun. 4.1.2009 09:24
Opið í Hlíðarfjalli og á Dalvík Opið verður á skíðasvæðunum á Dalvík og í Hlíðarfjalli á Akureyri til kukkan 16:00 í dag. 4.1.2009 09:09
Einkennileg hugmynd um alþingiskosningar „Þetta hlýtur að vera úthugsað hjá þeim en þessi afstaða formanns Samfylkingarinnar er samt einkennileg,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um þá tillögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að kosið verði til Alþingis samfara hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. 4.1.2009 09:00
Ekki lög um þjóðaratkvæði Engin lög eða reglur eru til um þjóðaratkvæðagreiðslu og framkvæmd hennar. Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur nefnt þann möguleika að þjóðin kjósi um hvort hefja eigi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. 4.1.2009 08:00
Vilja veiða hafbeitarlax að vetrarlagi Ritstjórn veiðivefsins votnogveidi.is telur að leyfa eigi vetrarveiði í þeim ám sem byggja á hafbeitarlaxi. 4.1.2009 04:30
Tvær pitsur frá McCain í bann Heildsölufyrirtækinu Dreifingu hf. hefur verið gert að innkalla og hætta sölu á tveimur tegundum af pitsum frá framleiðandanum McCain vegna notkunar á aukaefninu E 541. Um er að ræða McCain Pizza Crescendo Rising Crust Pizza 4 Cheese og McCain Pizza Crescendo Rising Crust Pizza Pepperoni. 4.1.2009 04:00
Mikill fjöldi sótti útsölur Nokkur örtröð skapaðist í verslunarmiðstöðvunum Kringlunni og Smáralind um miðjan dag í gær en þá hófust hinar árlegu janúarútsölur í verslunum. Áttu margir gestir miðstöðvanna í erfiðleikum með að finna bílastæði vegna mikils fjölda bíla. 4.1.2009 03:45
Eldur í ruslagámi við Hótel Borg Eldur kom upp í ruslagámi í porti við hlið Hótel Borgar við Austurvöll nú í kvöld. Slökkvibíll mætti á svæðið og er búinn að slökkva eldinn. Einnig mætti lögreglan á svæðið en um sama port er að ræða og mótmælendur söfnuðust saman í mótmæltu Kryddsíld Stöðvar 2 á Gamlársdag. 4.1.2009 00:01
Hellisheiði lokuð vegna bílslyss Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu um bílslys í Hveradalabrekku á Hellisheiði fyrir stundu. Slysið er til móts við Skíðaskálann en ekki er vitað um meiðsl á fólki en slysið mun vera alvarlegt. 4.1.2009 16:02
Undirbjuggu leit að tveimur stúlkum Farið var að óttast um tvö stúlkubörn sem ekki skiluðu sér heim að bæ í Lundarreykjadal í Borgarfirði fyrir myrkur í dag. 3.1.2009 21:00
Kemur ekki til greina að við borgum Icesave Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, hefur lýst þeirri skoðun sinni að það komi ekki til greina að þjóðin beri kostnað af skuldbindingum bankana vegna icesave. Hann segir að þjóðin geti það ekki. Til þess gæti komið að einungis vaxtakostnaður þjóðarinnar næmi um 130 milljörðum á ári af óreiðuskuldum banka sem áttu að heita í einkaeigu. 3.1.2009 18:45
Fundu kannabisræktunina fyrir tilviljun Lögreglan fann fyrir tilviljun kannabisræktun í bílskúr við Stelkshóla í Breiðholti fyrr í dag. Lögreglumenn voru í hávaðaútkalli í grenndinni þegar þeir fundu mikla kannabislykt. 3.1.2009 17:08
Forstjóri Tals hafði umboð stjórnar Yfirlýsing frá Jóhanni Óla Guðmundssyni, stjórnarmaður í Tali. 3.1.2009 16:59
Barinn þræll er mikill maður Björn Þorláksson fréttamaður hélt ræðu á Ráðhústorgi á Akureyri í dag. Þar komu um hundrað manns saman í vikulegum mótmælum. Þetta var þrettándi fundurinn sem þar er haldinn en eftir ræðu Björns tókst fólk í hendur, myndaði hring og hugleiddi frið og samkennd í tíu mínútur. 3.1.2009 16:34
Hörður Torfa lenti í orðaskaki við fundargesti Nú er lokið vikulegum mótmælafundi á Austurvelli. Lögregla áætlar að um tvöþúsund manns hafi verið á mótmælunum en skipuleggjendurnir segja á bilinu fjögur til fimm þúsund hafi mótmælt. Hörður Torfason sem staðið hefur fyrir fundunum lenti í orðaskaki við fundargesti þegar hann bað hóp manna að taka niður lambhúshettur sem huldu andlit þeirra. 3.1.2009 16:21
Álverið í Helguvík verði það síðasta sem rís hér á landi Skúli Helgason framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar segist telja að ríkisstjórnin eigi að lýsa því yfir að álverið í Helguvík verði það síðasta sem rís á Íslandi í fyrirsjáanlegri framtíð. Nú verði mótuð ný atvinnustefna með áherslu á nýsköpun, fjölbreytni í atvinnulífinu og jafnvægi á milli atvinnugrein. Þetta kemur fram í grein sem Skúli skrifar á vef Samfylkingarinnar. 3.1.2009 16:04
Leigubílstjórar mega vera veikir Guðjón Þ. Andrésson formaður Bifreiðastjórnarfélagsins Andvara fagnar áliti Umboðsmanns Alþingis vegn kvörtunar sem hann sendi í maí á síðasta ári. Þar fór Guðjón fram á að reglugerð um leigubifreiðar verði felld úr gildi þar sem hún standist ekki lög um leigubifreiðar. Reglugerðin kveður á um að hægt sé að svipta mann atvinnuleyfi ef hann er veikur lengur en í sjö mánuði. „Það er ekki heil brú í þessu,“ segir Guðjón sem hvetur Kristján Möller til þess að rýna í álitið. 3.1.2009 14:59
Engum sagt upp á heilbrigðisstofnun Siglufjarðar Konráð Karl Baldvinsson framkvæmdarstjóri heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar segir að engum starfsmanni stofnunarinnar hafi verið sagt beint upp. Uppsagnir á núverandi vaktafyrirkomulagi snerti hinsvegar 35-40 af 60 starfsmönnum stofnunarinnar. Sparnaðaraðgerðir segir framkvæmdarstjórinn. 3.1.2009 14:33
Ingibjörg Sólrún á leið í geislameðferð til Svíþjóðar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer í geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi í næstu viku, en sjúkrahúsið hefur yfir að ráða tækjum sem ekki eru til hér á landi. 3.1.2009 14:19
Einn handtekinn vegna kannabisræktunar í Breiðholti Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur einn verið handtekinn í tengslum við kannabisræktun í bílskúr í Breiðholti. Málið er í rannsókn og vers lögregla allra frétta af málinu. 3.1.2009 13:30