Innlent

Sjálfstæðismenn ræða stjórnarslit

Sigurður Kári Kristjánsson.
Sigurður Kári Kristjánsson.

Þrír þingmenn sjálfstæðismanna ræddu stjórnarslit um helgina, í ljósi ágreinings stjórnarflokkanna um utanríkismál, sérstaklega ólíkar áherslur um Evrópuaðild.

Deilt er meðal annars um hvort halda skuli alþingiskosningar samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort í aðildarviðræður skuli farið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur eðlilegt að gera hvort tveggja á sama tíma, en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokks, sagði hugmyndina einkennilega í blaðinu í gær.

Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, rifjar upp deilur um varnarsamninginn á heimasíðu sinni: „Er áhersla Samfylkingarinnar á [Evrópumálin] í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn aðeins leið til að skapa átyllu til stjórnarslita og kosninga? Er hið sama að gerast og á sínum tíma, þegar vinstri menn notuðu varnarmál til að útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokkinn?" spyr Björn.

Evrópumálin virðist geta orðið „hættuleg fyrir núverandi stjórnarsamstarf og framhald þess" segir hann á öðrum stað.

Ármann Kr. Ólafsson þingmaður heldur því fram á heimasíðu sinni að þrýstingur Samfylkingar á Sjálfstæðisflokkinn sé ef til vill af annarlegum hvötum, enda sé sem stendur engin leið til að vinna að ESB-aðild nema með Sjálfstæðismönnum. Ingibjörg virðist því vinna gegn ESB-umsókn: „Hefur Ingibjörg eitthvert annað markmið en það sem fram kemur á yfirborðinu? Ef svo er þá sjá landsmenn allir að erfitt að halda saman ríkisstjórn á slíkum forsendum", segir hann.

Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður sagði svo í útvarpsþættinum Sprengisandi að ekki kæmi til greina fyrir Sjálfstæðismenn að stilla Samfylkingunni upp við vegg, líkt og hún væri að gera, og segja henni að breyta afstöðu sinni ellegar yrði stjórnarsamstarfi slitið.

klemens@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×