Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skynsamlegt að leita til Mannréttindadómstólsins Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir skynsamlegt að ríkisstjórnin ætli að leita réttar síns gagnvart Bretum fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að höfða ekki mál gegn breska ríkinu en kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstólnum. 6.1.2009 14:38
Fritzl, sjóræningjar, Obama og Íslendingar vinsælastir á Guardian Litla Ísland komst í heimsfréttirnar á síðustu mánuðum liðins árs og ekki af góðu. Þegar fréttamenn breska blaðsins Guardian tóku saman mest lesnu fréttir síðasta árs á vefnum kom í ljós að frétt af falli Íslands var áttunda mest lesna erlenda fréttin þar á bæ. 6.1.2009 14:27
Landsbankinn hyggst heldur ekki kaupa veiðileyfi Nýi Landsbankinn hefur hvorki fest né keypt veiðileyfi fyrir næsta ár og hyggst ekki gera það. Þetta kemur fram í svari skrifstofu bankastjórnar við fyrirspurn Stangveiðifélags Seyðisfjarðar. 6.1.2009 13:41
Samskip áfram með rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara Samningur Vegagerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjarferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur til næstu tveggja ára. Landflutningar-Samskip hafa annast rekstur ferjunnar óslitið í rúm 12 ár, eða frá 1. maí 1996. 6.1.2009 13:10
40 prósent fleiri fyrirspurnir Neytendasamtökunum bárust alls 122.643 erindi og fyrirspurnir á nýliðinu ári sem er um 40% aukning frá árinu 2007. Flestar fyrirspurnirnar voru vegna verðlags og auglýsinga, ferðalaga, fjármálafyrirtækja og raftækja. 6.1.2009 12:27
Ríkisstjórn vill leita til Mannréttindadómstólsins Ríkisstjórnin hefur ákveðið að kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna beitingar breskra stjórnvalda á svonefndum hryðjuverkalögum frá árinu 2001 gegn Landsbankanum á síðasta ári. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi sem fram fór nú í morgun. Ekki verður höfðað mál gegn breska ríkinu þar í landi. 6.1.2009 12:14
Geir segir allt í góðu á stjórnarheimilinu Forsætisráðherra segir stjórnarsamstarfið sterkt og vísar því á bug að formaður Samfylkingar sé að finna átyllu til að slíta því með ummælum um Evrópusambandið. Mismunandi áherslur um ESB séu ekki nýjar af nálinni. 6.1.2009 12:04
Nýskráðum ökutækjum fækkaði um 42 prósent Nýskráningum ökutækja fækkaði um 42 prósent á milli áranna 2008 og 2007. Umferðarstofa hefur tekið saman yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu. 6.1.2009 11:42
Jólatrén sótt heim næstu vikuna Borgarbúum býðst að fá jólatrén sótt heim dagana 7.-14. janúar þegar starfsmenn Framkvæmda- og eignasviðs verða á ferðinni um hverfi borgarinnar. Íbúar eru beðnir að setja jólatré á áberandi stað við lóðarmörk og ganga þannig frá þeim að sem minnstar líkur séu á að þau fjúki. Fjúkandi jólatré geta valdið skemmdum. 6.1.2009 11:35
Starfsfólk St. Jósefsspítala fordæmir vinnubrögð ráðherra Starfsfólk St. Jósefsspítala og Sólvangurs lýsa yfir megnri óánægju og fordæma vinnubrögð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, í yfirlýsingu. ,,Við erum að gagnrýna samskiptaleysi og skort á upplýsingum til starfsfólks en óvissan hefur skapað óvissu kvíða um framtíð okkar og skjólstæðinga okkar," segir Ragnhildur Jóhannsdóttir deildarstjóri á skurðdeild spítalans. 6.1.2009 11:31
Lést í umferðarslysi Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi skammt austan við Selfoss í gærmorgun hét Guðjón Ægir Sigurjónsson til heimilis að Hrísholti 4 á Selfossi. Hann var fæddur 4. janúar 1971 og lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. 6.1.2009 11:15
Hálka víða um land Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka og hálkublettir, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Norðurlandi er víða hálka og éljagangur og sumstaðar snjóþekja og snjókoma. Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði. Hálka, snjóþekja og éljagangur er á Austurlandi og á Suðausturlandi er snjóþekja, hálkublettir og éljagangur. Greiðfært er á Suðurlandi. 6.1.2009 11:10
Árvakur skuldar 4,5 milljarða Útgáfufélag Morgunblaðsins, Árvakur, skuldar 4,5 milljarða króna og skilaði 900 milljóna króna lakari afkomu á seinasta ári en áætlun gerði upphaflega ráð fyrir. Landsbankinn lánaði Árvakri 900 milljónir króna án veðtrygginga meðan Björgólfur Guðmundsson var ráðandi eigandi bankans og útgáfunnar. Þetta kemur fram í trúnaðargögnum sem DV birtir í dag. 6.1.2009 11:01
Segja 2,5 milljarða gat í fjárhagsáætlun borgarinnar Sjö milljarða framkvæmdir Reykjavíkurborgar eru í óvissu og tveggja og hálfs milljarða gat er í fjárhagsáætlun borgarinnar, að sögn Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar og Svandísar Svavarsdóttur oddvita Vinstri grænna í borgarstjórn. 6.1.2009 09:26
SI mótmæla hækkun á verði orkudreifingar Samtök iðnaðarins mótmæla harðlega fimmtán prósenta hækkun á verði fyrir dreifingu og flutning á raforku nú um áramótin. 6.1.2009 07:15
Íslenskir lögreglumenn rólegri en kanadískir Íslenskir lögreglumenn eru aðeins minna stressaðir en kanadískir starfsbræður þeirra, samkvæmt streitukönnun sem ríkislögreglustjóri lét gera á nýliðnu ári. 6.1.2009 07:10
Fyrsta innbrotið í tónlistarhúsið í nótt Fyrsta innbrotið, svo vitað sé, var framið í tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn í nótt og náðust þar tveir þjófar. Öryggisverðir urðu varir við mannaferðir í húsinu og létu lögreglu vita, sem greip mennina þegar þeir voru búnir að fylla bakpoka, sem þeir höfðu meðferðis, af ýmsu smálegu sem tilheyrir iðnaðarmönnum. 6.1.2009 07:07
Kveikt í vinnuskúrum í Keflavík í gær Kveikt var í tveimur vinnuskúrum á flugvallarsvæðinu í Keflavík á tólfta tímanum í gærkvöldi en slökkviliðinu tókst að slökkva eldana áður en þeir næðu frekari útbreiðslu. 6.1.2009 06:53
Enn er óánægja hjá starfsmönnum Ríkisútvarpsins Töluverðrar óánægju gætir meðal starfsmanna Ríkisútvarpsins. Stofnunin hefur þurft að ganga í gegnum erfiðan niðurskurð. Margir starfsmenn telja hins vegar að viðbrögð yfirstjórnar sýni lítil tengsl við starfsfólkið og skort á skilningi á eðli starfseminnar. 6.1.2009 06:00
Blóðbankinn minnir á sig Blóðbankinn beinir þeim tilmælum til allra blóðgjafa að hafa bankann í huga á næstunni. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að vegna fjölda frídaga yfir jól og áramót sé nauðsynlegt að styrkja öryggisbirgðir Blóðbankans. 6.1.2009 02:15
REI málið var mistök „Ég get svo sem ekkert litið á þetta REI mál annað en sem stórkostleg mistök. Hvort sem er af minni hálfu eða annarra," sagði Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, í Kastljósi í kvöld. 5.1.2009 23:04
SI mótmæla hækkun á raforku „Það er óskiljanlegt að opinbert fyrirtæki eins og RARIK hækki gjaldskrá sína um 15%“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins á vefsíðu samtakanna. Hann mótmælir harðlega hækkunum á verði fyrir dreifingu og flutning á raforku nú um áramótin. 5.1.2009 20:32
Vinnu við byggingu Tónlistarhúss frestað Starfsmenn Íslenskra aðalverktaka voru sendir heim frá vinnu sinni við Tónlistarhúsið í dag. ÍAV hafa ekki fengið greitt fyrir vinnu sína við húsið í þrjá mánuði. 5.1.2009 16:49
Skorið niður í vegagerð Sundabraut, Norðfjarðargöng og brú á Hornfjarðafljót eru meðal verkefna sem stefnir í að verði skorin niður. Þá bíða menn spenntir að sjá hvort eitt margsviknasta kosningaloforð þingmanna, Suðurstrandarvegur, lendi enn undir niðurskurðarhnífnum. 5.1.2009 19:25
Landhelgisgæslan bjargaði 68 á árinu sem leið Flugdeild Landhelgisgæslunnar hafði í nógu að snúast á árinu sem var að líða en alls var 68 einstaklingum bjargað í þeim 150 útköllum sem bárust deildinni. Útköllum fækkaði þó nokkuð á milli ára. Ekki er um fólksflutninga að ræða í öllum þeim útköllum sem berast heldur er oft er um að ræða leitarflug eða annars konar aðstoð. 5.1.2009 16:38
Prófessor í guðfræði fyrst kvenna Nýlega urðu tímamót í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands þegar dr. Arnfríður Guðmundsdóttir var ráðin í starf prófessors í trúfræði við deildina. Hún er fyrsta konan til að gegna stöðu prófessors við deildina. 5.1.2009 16:32
Hleypti ekki af fleiri skotum Drengurinn sem handtekinn var á föstudagskvöld hleypti ekki af fleiri skotum en við leikskólann Jörfa í Hæðargerði, að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Pilturinn beindi vopninu aldrei að öðrum. 5.1.2009 16:20
32 létust af slysförum árið 2008 Á nýliðnu ári létust 32 einstaklingar af slysförum. 2007 létust 29 af slysförum og 49 árið 2006. Flestir létust í umferðarslysum í fyrra eða 12, 11 í heima- og frítímaslysum, sex í vinnuslysum, einn drukknaði og tveir létust í öðrum slysum. Engin fórst í sjóslysi í fyrra. 5.1.2009 15:43
Frístundakort hækka ekki í sparnaðarskyni Vegna efnahagsþrenginga hyggst Reykjavíkurborg hætta við að hækka framlag til frístundakorta úr 25 þúsund krónum í 40 þúsund krónur líkt og var ráðgert um áramótin. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokkins, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs, segir að kortin séu einn af þeim kostnaðarliðum sem líta hafi þurft til þegar kom að hagræðingu og sparnaði í rekstri borgarinnar. 5.1.2009 15:14
Steingrímur: Varð fyrir vonbrigðum með aðgerðarleysi Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sem kallaði til fundar í utanríkismálanefnd í dag til þess að ræða ástandið á Gaza segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með félaga sína í nefndinni yfir því að ekki skuli hafa náðst samkomulag um ályktun vegna málsins. Nefndin ákvað að vinna að tillögu sem lögð verði fyrir Alþingi þegar þing kemur saman að nýju í lok janúar. 5.1.2009 14:42
Telja fjárfestingasamninginn veita milljarðaafslátt af sköttum og gjöldum Fjárfestingarsamningur vegna 360 þúsund tonna álvers í Helguvík sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ætlar að láta staðfesta felur í sér að álverinu verði veittur sérstakur afsláttur af sköttum og gjöldum sem önnur íslensk atvinnustarfsemi þarf að bera. Þetta er mat stjórnar Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina. 5.1.2009 14:15
Byssumaður skaut á leikskóla Lögreglan fann í morgun byssuskúlu í leikfangakassa í leikskólanum Jörfa í Hæðargerði. ,,Það er gat í gegnum vegginn í leikherbergi barnanna og hillustæða og tveir dótakassar hafa skaddast," sagði Sæunn Elfa Pedersen leikskólastjóri Jörfa í samtali við Vísi. 5.1.2009 14:06
Unnið að ályktun varðandi Gaza Ástandið á Gaza var til umræðu á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Þar var ákveðið að vinna að tillögu að ályktun sem verði lögð fyrir Alþingi á fyrstu dögum þingsins sem hefst á ný 20. janúar næstkomandi. 5.1.2009 13:23
Spítalaforstjóri í veikindaleyfi Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítala verður fjarverandi í janúar 2009 vegna veikinda. Á heimasíðu spítalans segir að hún sé væntanleg aftur til starfa nálægt mánaðamótum. Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga og staðgengill forstjóra, gegnir starfi forstjóra í fjarveru Huldu. 5.1.2009 13:09
Varað eindregið við mikilli hálku við klaustur Lögreglan varar eindregið við mikilli hálku við Kirkjubæjarklaustur. Tvö umferðaróhöpp hafa orðið þar í dag með skömmu millibili, í annað skipti velti bifreið en í hitt skiptið var um útafakstur að ræða. 5.1.2009 12:56
Banaslys austan við Selfoss Tæplega fertugur karlmaður beið bana þegar hann varð fyrir stórri sendibifreið á þjóðveginum austan við Selfoss laust fyrir klukkan átta í morgun. Þegar var kallað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, en skömmu síðar var maðurinn úrskurðaður látinn og var aðstoðin afturkölluð. 5.1.2009 11:52
Byssan var í ólæstri hirslu Drengurinn sem lögreglan handtók síðast liðið föstudagskvöld vopnaður skammbyssu stal vopninu úr ólæstri hirslu. ,,Hann nálgaðist byssuna á heimili föður síns sem var í ólæstri hirslu þar," sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi. 5.1.2009 11:34
Frístundakortin gjaldgeng á frístundaheimilum Borgarráð samþykkti á fundi sem nú stendur yfir að hægt verði að greiða fyrir frístundaheimili við grunnskóla borgarinnar með frístundakortinu. Tillaga þessa efnis var samþykkt í desember í íþrótta- og tómstundaráði og nú hefur borgarráð staðfest hana. 5.1.2009 11:33
Rætt um Gaza og Icesave í utanríkismálanefnd Utanríkismálanefnd Alþingis situr nú á fundi en það var Steingrímur J. Sigfússon sem vildi fá fund í nefndinni þrátt fyrir að þing komi ekki saman fyrr en 20. janúar. Umræðuefni fundarins eru meðal annars ástandið á Gazasvæðinu og staðan í Icesave deilunni svokölluðu. 5.1.2009 10:39
Kynningarherferð samhliða málsókn gegn Bretum Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands, telja nauðsynlegt að samhliða málsókn íslenska ríkisins gegn breskum stjórnvöldum verði gripið til kynningarherferðar erlendis. Þeir vilja að málið verði sótt fast eftir. Þetta kemur fram í grein sem þeir rita í Morgunblaðið í dag. 5.1.2009 09:53
Tíu þúsund hafa svarað kallinu GSM símasöfnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Svaraðu kallinu, hefur gengið fram úr vonum. Íslendingar hafa tekið við sér og látið af hendi gamla gsm síma sem verða endurnýttir og endurunnir og nýtast munu fólki í þróunarlöndum. 5.1.2009 09:53
Vegfarandi slasaðist alvarlega við Selfoss Gangandi vegfarandi slasaðist mjög alvarlega þegar hann varð fyrir stórri sendibifreið á þjóðveginum austan við Selfoss laust fyrir klukkan átta í morgun. Hann hefur verið fluttur á Slysadeild Landsspítalans. Þjóðvegur eitt í Flóanum er lokaður þar sem rannsóknarmenn eru á vettvangi, en vegfarendur geta farið hjáleið um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 5.1.2009 08:53
Brennuvargar á ferð norðan heiða Skemmdarvargar kveiktu í trépalli, sem er áningarstaður við gönguleiðina við Glerá á Akureyri í nótt og urðu nokkrar skemmdir á pallinum. 5.1.2009 07:24
Hjólaþjófur gómaður í samstarfi þriggja lögregluembætta Með samvinnu þriggja lögregluembætta tókst í nótt að góma þjóf, sem hafði stolið mótorkrosshjóli á kerru á Svalbarðseyri við Eyjafjörð upp úr miðnætti. 5.1.2009 07:22
Loðnuleit hafin Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson ásamt þremur fjölveiðiskipum hefur hafið loðnuleit suður af landinu. Síðan verður haldið vestur fyrir landið, en mikið er í húfi að eitthvað finnist í þessum leiðangri svo hægt sé að gefa út kvóta fyrir vertíðina, sem mátti hefjast um áramótin. 5.1.2009 07:20