Telja fjárfestingasamninginn veita milljarðaafslátt af sköttum og gjöldum 5. janúar 2009 14:15 Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar.
Fjárfestingarsamningur vegna 360 þúsund tonna álvers í Helguvík sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ætlar að láta staðfesta felur í sér að álverinu verði veittur sérstakur afsláttur af sköttum og gjöldum sem önnur íslensk atvinnustarfsemi þarf að bera. Þetta er mat stjórnar Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina. Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingar og formaður Græna netsins segist ekki frekar en aðrir hafa fengið að sjá hvað felist í samningnum og átelur þau vinnubrögð að ekki sé upplýst um efnisatriði hans. „Við höldum að þetta séu í fyrsta lagi fyrirheit um skattafrystingu. Það er að segja að fyrirtækið fái loforð um að tekjuskattur af hagnaði verði sá sami og nú er jafnvel þó hann breytist hjá öðrum, og síðan ýmiskonar afsláttur á gjöldum og sköttum," segir Mörður. Hann segir að síðast þegar svipaður samningur var gerður, þá við Fjarðaál, þá hafi þær tölur verið nefndar að afslátturinn hafi numið 2-3 milljörðum króna. Mörður segir félagið undrandi á því að álfyrirtæki ein saman eigi að fá slíka fyrirgreiðslu, á meðan önnur fyrirtæki njóti hennar ekki. Össur greindi frá fjárfestingarsamningnum í grein í Fréttablaðinu á laugardaginn. Hann segir ekki þurfa að virkja í neðri hluta Þjórsár til að sjá álverinu fyrir orku, en tilgreinir þó ekki hvaðan raforka til álversins á að koma. Mörður segir fréttir af því að Orkuveitan ætli að taka allar fyrirsjáanlegar virkjanir á Hellisheiði fyrir álver í Helguvík. Jafnvel það dugi ekki til. Álverið taki nánast alla virkjunarkosti á þessu svæði. „Það ákaflega óeðlilegt ef stjórnvöld ætla að samþykkja einhvern afsláttarsamning við þetta fyrirtæki og það er ekki einu sinni ljóst hvaða orka eigi að renna til þess," segir Mörður, sem furðar sig ekki síst á því að flokksystir hans, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, vera með í slíkri ráðagerð. Hann segist ekki sjá hvernig Össur ætli að láta staðfesta samninginn. Það geti þingið eitt gert. „Þetta er nokkuð digurt hjá ráðherra að tala þannig að hann ætli að láta þingið staðfesta hann. Þingið tekur sínar eigin ákvarðanir og það er ekki þannig að það sé látið gera eitt eða neitt," segir Mörður. Mörður telur samninginn gerðan að kröfu Sjálfstæðisflokksins og finnst einkennilegt að verið sé að fara að kröfum flokksins þegar alls óvíst sé um framhald ríkisstjórnarsamstarfsins. „Það er klárt að innan Samfylkingarinnar eru miklar efasemdir um stjórnarsamstarfið sjálft, og þær ná inn í þingflokkinn og ráðherraliðið. Þannig að í því ljósi er þetta mjög furðulegt."
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Fleiri fréttir Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Sjá meira