Innlent

Fyrsta innbrotið í tónlistarhúsið í nótt

Fyrsta innbrotið, svo vitað sé, var framið í tónlistarhúsið við Reykjavíkurhöfn í nótt og náðust þar tveir þjófar. Öryggisverðir urðu varir við mannaferðir í húsinu og létu lögreglu vita, sem greip mennina þegar þeir voru búnir að fylla bakpoka, sem þeir höfðu meðferðis, af ýmsu smálegu sem tilheyrir iðnaðarmönnum.

Þeir sögðust vera listamenn og gáfu þá súrrealísku skýringu á athæfi sínu, að þeir hafi ætlað að nota hlutina til að búa til skúlptúra. Þá dreymdi sína listamannadrauma í fangageymslum í nótt og verða yfirheyrðir í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×