Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mættu með heimatilbúnar reyksprengjur á Hótel Borg Mótmælendur mættu með heimatilbúnar reyksprengjur við Hótel Borg á gamlársdag þegar sem hin árlega Kryddsíld Stöðvar 2 stóð yfir, samkvæmt Herði Jóhannessyni aðstoðaryfirlögregluþjóni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 2.1.2009 18:12
Þrettándi mótmælafundurinn á Austurvelli Raddir fólksins boða til mótmælafundar á Austurvelli á morgun laugardag klukkan 15. Sem fyrr er yfirskrift fundarins ,,Breiðfylking gegn ástandinu." Þetta er 13. laugardaginn í röð sem samtökin halda mótmælafund á Austurvelli. 2.1.2009 21:17
Brenndist illa þegar olíulampi sprakk Kona sem brenndist illa eftir að olíulampi sprakk í höndunum á henni ítrekar fyrir fólki að varlega í kringum slíka lampa. Ingunn Hauksdóttir fékk olílampa í afmælisgjöf nú um jólin. Lampann ætlaði hún svo að nota um síðustu helgi en þá vildi ekki betur til en svo en að hann sprakk í höndunum á henni. 2.1.2009 19:44
Ekki hægt að brenna dýrahræ Sérstakur gámur til að brenna dýrahræ er ekki til í landinu og þurfti að urða hræ hrossa sem drápust af skæðri salmonellusýkingu í síðustu viku. Kaup á brennslugámi hafa staðið til í langan tíma. 2.1.2009 18:57
12 milljónir í neyðaraðstoð á Gaza Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita rúmum tólf milljónum íslenskra króna til mannúðaraðstoðar „vegna hörmungarástandsins á Gaza," eins og segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 2.1.2009 16:03
Framboðsfrestur hjá VR framlengdur Kjörstjórn VR hefur ákveðið að framlengja framboðsfrest til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs félagsins fram til mánudagins 12. janúar næstkomandi. 2.1.2009 15:33
Vill funda um 40% hækkun á dreifingakostnaði raforku Jón Bjarnason, þingmaður VG í norðvesturkjördæmi, hefur sent fjárlaganefnd bréf og farið fram á fund í nefndinni til að ræða allt að 40% hækkun á dreifingarkostnaði raforku til neytenda frá 1. janúar 2.1.2009 15:14
VG enn stærsti flokkurinn - ríkisstjórnin sækir í sig veðrið Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup er Vinstri hreyfingin - Grænt framboð enn stærsti stjórnmálaflokkur landsins en í könnuninni fær hann 29 prósent atkvæða. Samfylkingin fær 28 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi. 2.1.2009 14:12
Mótmælandi óttast borgarastyrjöld Þrisvar yfir hátíðarnar hefur verið ráðist að húsi við Vesturgötu þar sem Eva Hauksdóttir mótmælandi rekur Nornabúðina. Þetta kemur fram á fréttavefnum Smugunni. Þar er sagt frá því að flösku hafi verið kastað í rúðu í íbúð á sömu hæð og búðin er og hafi ytra gler í rúðunni brotnað. 2.1.2009 13:27
Krafist gæsluvarðhalds yfir 10-11 árásarmanni Krafist verður gæsluvarðhalds yfir karlmanni sem var handtekinn seinni partinn í gær, grunaður um að hafa stungið mann í verslun 10-11 í gærmorgun. 2.1.2009 13:08
Myrká mest selda bók ársins Það kemur væntanlega fáum á óvart en það var Arnaldur Indriðason sem átti mest seldu bók ársins samkvæmt sölulista Pennans/Eymundsson. Myrká trónir á toppnum en í öðru sæti er Þúsund bjartar sólir, eftir Khaleid Hosseini í kiljuformi. 2.1.2009 13:03
Páll gæti orðið vanhæfur vegna starfa í rannsóknarnefndinni Páll Hreinsson hæstaréttardómari gæti orðið vanhæfur í málum sem kunna að koma á borð Hæstaréttar vegna hruns bankanna, hafi málin verið til rannsóknar hjá nefnd sem rannsakar hrun bankanna. Þetta er mat Bjargar Thorarensen, forseta lagadeildar Háskóla Íslands. 2.1.2009 12:23
Halldór Ásgrímsson enn í öndunarvél Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Þar hefur hann legið í um tíu daga. Halldór veiktist af lungnabólgu í desember og að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeildinni er ástand hans óbreytt. 2.1.2009 12:00
Keflavíkurflugvöllur orðinn að opinberu hlutafélagi Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tók til starfa um áramót en í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Kristján L. Möller samgönguráðherra mun hleypa fyrirtækinu formlega af stokkunum í dag við athöfn með starfsmönnum og stjórn félagsins. 2.1.2009 11:09
Einstakt að enginn farist í sjóslysi Nýliðið ár var einstakt að því leyti að enginn maður lét lífið í sjóslysi á íslenskum skipum. Vegna náinna tengsla við hafið og mikilvægis sjósókna frá upphafi, er jafnvel hægt að leiða að því líkur að 2008 hafi verið fyrsta árið frá landnámi án banaslysa á sjó, segir í tilkynningu frá Siglingastofnun Íslands. 2.1.2009 09:55
Bleikt Fréttablað í dag Fréttablaðið er bleikt að lit í dag og mun verða svo nokkra næstu daga. Ástæðan er sú að verið er að nýta pappírsbirgðir sem ella hefðu farið til spillis. 2.1.2009 07:20
Umferðarslys ekki færri síðan 1996 Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu urðu tólf banaslys í umferðinni á síðasta ári. Er þetta með minnsta móti. 2.1.2009 07:18
Telja óþarft að kjósa um aðildarviðræður Evrópumál Geir H. Haarde forsætisráðherra telur koma til greina að þjóðin fái ekki aðeins að kjósa um mögulega aðild að Evrópusambandinu, heldur einnig um það hvort gengið skuli til aðildarviðræðna. Formenn Evrópunefndar ríkisstjórnarinnar úr báðum stjórnarflokkum telja það ónauðsynlegt. 2.1.2009 05:30
Fengu þrjá laxa á nýársdag Tveir félagar hrósuðu happi í gær þegar þeir fengu þrjá laxa í Eystri-Rangá. „Ég er eiginlega viss um að það hafa ekki verið veiddir laxar fyrr á árinu," segir Kristján Þ. Davíðsson annar veiðimannanna og framkvæmdastjóri í gamla Glitni. 2.1.2009 05:00
Þurfum ekki Nýja Ísland hf. „Við þurfum samstöðu, þjóðarsátt um endurreisn. Ekki Nýja Ísland hf.!“ sagði biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson í nýárspredikun sinni í gær. Hann hvatti þjóðina til að koma auga á tækifæri nýrra tíma, þótt margir líti „rústir einar, vonleysi og sorta fram undan“. 2.1.2009 05:00
Ísrael sér lengra en Ingibjörg „Ingibjörg Sólrún segist ekki koma auga á rökin fyrir sambandsslitum við Ísraelsríki. Ég hef grun um að ísraelsk stjórnvöld kæmu auga á þessi rök," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG. 2.1.2009 05:00
Nærri tífalt yfir heilsumörkum Svifryksmengun í Reykjavík eftir miðnætti á gamlárskvöld mældist 425 míkrógrömm þar sem hún var mest, við Melatorg. Heilsuverndarmörk svifryks eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. 2.1.2009 04:00
Bætur hafa verið hækkaðar Hækkun atvinnuleysisbóta, sem átti að koma til framkvæmda 1. mars, var flýtt til 1. janúar. Gert er ráð fyrir að bæturnar hækki um 13.500 krónur, til samræmis við lægstu laun á almennum vinnumarkaði. 2.1.2009 04:00
Telur eðlilegt að allir lækki Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins, telur eðlilegt að allir taki á sig launalækkun og leggi þannig sitt af mörkum til að taka á stöðu efnahagsmála þjóðarinnar. Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks, telur það einnig eðlilegt. 2.1.2009 03:00
Lambakjötsát helsta einkenni Íslendinga Við Íslendingar vorum tæplega 320 þúsund talsins þann 1.desember síðastliðinn, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands sem vakir yfir okkur og auðveldar naflaskoðun með útgáfu ritsins Ísland í tölum 2008-2009. 2.1.2009 03:00
Kreppan kallar á nýja nálgun Aðstandendur skógræktarverkefnisins Kolviður munu breyta markaðsherferð í ljósi breyttra aðstæðna að sögn Björgólfs Thorsteinssonar, stjórnarmanns í Kolviði og formanns Landverndar. Herferð verður ýtt úr vör í febrúar og mun beinast að miklu leyti að erlendum ferðamönnum en einnig verður leitast við að fá fyrirtæki til að kolefnisjafna bílaflota sinn. 2.1.2009 03:00
Mann vantar í girðingarvinnu „Svavar Gestsson sendiherra spyrst fyrir um mann til að taka að sér girðingarvinnu í Hólaseli með vorinu. Sjálfur mun hann leggja til allt girðingarefnið,“ segir á vefsetri Reykhólahrepps þar sem vísað er til smáauglýsingar sendiherrans á vefnum. 2.1.2009 03:00
Hörður Torfason harmar atburðina á Hótel Borg Ari Edwald, forstjóri 365-miðla, segist sleginn óhug eftir atburðinn á Hótel Borg í gær og segir að vopnaðir ótýndir glæpamenn séu komnir inn í hóp mótmælenda, sem lögregla verði að taka miklu harðar á. Hörður Torfason segist harma það sem gerðist. 1.1.2009 18:30
Banaslys á Ólafsfjarðarvegi Alvarlegt umferðarslys varð á Ólafsfjarðarvegi við bæinn Krossa laust fyrir klukkan 15 í dag með þeim afleiðingum að karlmaður á sjötugsaldri lést. Hálka var á veginum. 1.1.2009 17:25
Spreyjað á hús Björgólfs Thors Skemmdir voru nýverið unnar á húsnæði Björólfs Thors Björgólfssonar, ríkasta manns Íslands, og eiginkonu hans Kristínar Ólafsdóttur í Láglandi í Fossvogshverfi. Á húsið voru spreyjaðar myndir af Björgólfi og Geir H. Haarde, forsætisráðherra. Undir myndirnar er ritað fæðingarár þeirra og ártalið 2009. 1.1.2009 16:50
Flugeldasala minni en í fyrra Gleðskapur næturinnar fór fram með hefðbundnum hætti. Flugeldasala var þó töluvert minni fyrir þessi áramót en í fyrra og komu öllu fleiri verkefni inn á borð lögreglunnar en venja er. 1.1.2009 19:11
Jákvæðni og þrautseigja Þrautseigja, skýr markmiðssetning og mikil jákvæðni eru ráðin sem silfurdrengirnir frá Peking gefa þjóðinni til að vinna sig út úr kreppunni. Fréttastofa Stöðvar tvö valdi íslenska karlalandsliðið í handbolta Menn ársins 2008. 1.1.2009 19:02
Fyrsta barn ársins fæddist í uppblásinni laug Jochum Helgi Baldursson er fyrsta barn ársins 2009. Hann fæddist í heimahúsi rétt eftir miðnætti. Gamlárskvöld var með rólegasta móti framan af hjá fjölskyldunni. En litli drengurinn hafði látið bíða eftir sér því móðirin var sett á jóladag. 1.1.2009 18:51
Afbrotum fækkaði um þriðjung í Reykjavík Samkvæmt bráðabirgðatölum fækkaði sérrefsilagabrotum í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um 30% á seinasta ári í samanburði við árið 2007. Á sama tímabili fækkaði umferðarlagabrotum um 15% en hegningarlagabrotum fjölgaði hinsvegar um 10%. Munar þar mestu um aukningu hnupl- og fjársvikamála. Þetta kemur fram í úttekt á afbrotum og verkefnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2008. 1.1.2009 17:20
Ólafsfjarðarvegur lokaður vegna umferðarslyss Umferðarslys varð á Ólafsfjarðarvegi skammt norðan við Árskógssand við bæinn Krossa laust fyrir klukkan þrjú í dag þegar tveir bílar lentu saman. Af þeim sökum er vegurinn lokaður. Ekki fengust nánari upplýsingar um slysið að svo stöddu. 1.1.2009 15:32
Ellefu sæmdir fálkaorðunni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. 1.1.2009 15:05
Stunguárásin í 10-11: Fórnarlambið útskrifað Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild var stunguárásin í 10-11 nokkuð alvarleg. Maðurinn var með tvö stungusár annað í andliti og hitt á brjóstkassa. Hann hefur nú verið útskrifaður af slysadeild. Maður réðst að honum um hálf ellefu leytið í morgun og veitti honum áverka á herðablaði. Lögregla telur sig vita hver árásarmaðurinn sé. 1.1.2009 14:54
Þjóðin þarf að láta til sín taka á alþjóðavettvangi Hin svonefnda útrás var ekki aðeins verkefni fáeinna bankastjóra eða athafnamanna. Í henni tóku þátt með öflugum hætti þúsundir ungra Íslendinga, hámenntað fólk í ólíkum fræðum, 1.1.2009 14:01
Segist bera ábyrgð á stjórn landsins „Sá dagur líður ei hjá að ég spyrji mig ekki hvort stjórnvöld hefðu getað komið í veg fyrir þá atburði sem urðu hér á landi í haust," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu. Geir sagði að hann sem forsætisráðherra bæri ábyrgð á stjórn landsins og þá ábyrgð myndi hann axla, hvort sem siglt væri um lygnan sjó eða þungan. 1.1.2009 13:33
Milljónatjón vegna mótmælanna í gær Ari Edwald forstjóri 365 segist ekki vera með nákvæma tölu yfir það tjón sem fyrirtækið varð fyrir í gær vegna mótmælanna við Hótel Borg. Það sé þó ljóst að skemmdir á búnaði og röskun á tekjuöflun hlaupi á milljónum. Hann segir fyrirtækið ætla að skoða í hvaða stöðu það sé gagnvart skemmdarvörgunum. Hann spyr hversu lengi lögreglan geti tekið grímuklæddum ofbeldismönnum sem góðlátlegu gríni. 1.1.2009 13:24
Stunginn í verslun 10-11 - árásarmanna leitað Maður var stunginn í verslun 10-11 við Lágmúla í Reykjavík fyrir um klukkutíma síðan. Að sögn lögreglu er árásarmannanna sem voru tveir leitað. 1.1.2009 11:56
Hent fram af svölum í Vogunum Fimm líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á suðurnesjum í nótt og var talsverður erill. Ein þeirra var í Vogunum þar sem menn gengu í skrokk á íbúa í blokk, sem endaði með því að manninum var hent fram af svölum. Maðurinn kenndi til í baki og fótum og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Árásaraðilinn var handtekinn og gistir nú fangageymslur lögreglunnar. 1.1.2009 11:47
Ekki þurfti að kalla út slökkvibíl á Akureyri Ekki þurfti að kalla út slökkvibíla slökkviliðsins á Akureyri á nýársnótt sem telst mjög gott að sögn Þorbjörns Haraldssonar slökkviliðsstjóra á Akureyri. Áramótafögnuður Akureyringa og nærsveitunga fór því afar vel fram. Sjúkrabílar liðsins voru kallaðir 6 sinnum út í minni háttar óhöpp. 1.1.2009 11:36
Lögreglumaðurinn kinnbeinsbrotinn Lögreglumaðurinn sem fékk grjót í andlitið við mótmælin við Hótel Borg í gærkvöldi var fluttur á slysadeild þar sem kom í ljós að hann er kinnbeinsbrotinn. Þrír voru handteknir og yfirheyrðir vegna málsins. 1.1.2009 10:18
Fyrsta barn ársins fæddist í heimahúsi Fjórar mínútur yfir miðnætti í gærkvöldi fæddist drengur í heimahúsi í Skipholti í Reykjavík. Samkvæmt því sem Vísir kemst næst er þetta fyrsta barn ársins en drengurinn var 16 merkur og rúmlega fjögur kíló. Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir sem tók á móti drengnum segir allt hafa gengið eins og í sögu. 1.1.2009 09:48