Hent fram af svölum í Vogunum 1. janúar 2009 11:47
Fimm líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á suðurnesjum í nótt og var talsverður erill. Ein þeirra var í Vogunum þar sem menn gengu í skrokk á íbúa í blokk, sem endaði með því að manninum var hent fram af svölum. Maðurinn kenndi til í baki og fótum og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Árásaraðilinn var handtekinn og gistir nú fangageymslur lögreglunnar. Þetta kemur fram í tilynningu frá lögreglunni á suðurnesjum. Þar segir ennfremur að ungur maður hafi verið skallaður á Hafnargötunni í Reykjanesbæ um klukkan 07:00 í morgun og brotnaði í honum tönn við árásina. Þá var stúlka lamin með glasi í andlitið á skemmtistað í Reykjanesbæ. Stúlkan var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og kom í ljós að hún var nefbrotin og með litla skurði á nefi. Gerandinn var handtekinn og gistir nú fangageymslur lögreglunnar og bíður yfirheyrslu. Þá var tilkynnt um líkamsárás í Grindavík þar sem maður var laminn í andlitið með steini. Lögreglan kom hinum slasaða á sjúkrahús til skoðunar og gerandinn var færður í fangahús. Þá var maður sleginn undir morgun á skemmtistað í Reykjanesbæ. Hann leitaði sér aðhlynningar á sjúkrahús og er talinn vera nefbrotinn. Kl. 02:36 voru sprengdir tveir hraðbankar hjá Sparisjónum í Keflavík við Tjarnargötu. Þar hafði ungur maður komið kínverjum fyrir undir gleri á hraðbönkunum og sprengt þá. Anddyrið varð fullt af reyk og var slökkvilið Brunavarna Suðurnesja kallað til og reykræsti. Miklar skemmdir urður á hraðbönkunum að sögn starfsmanns Sparisjóðsins, sem kom á vettvang. Uppátækið náðist á eftirlitmyndavélar Sparisjóðsins og hafði lögreglan uppi á gerandanum skömmu síðar, sem gistir fangageymslu lögreglunnar og bíður yfirheyrslu. Fangageymslur lögreglunnar voru yfirfullar í nótt og frameftir morgni. Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur undir morgun í Reykjanesbæ.
Mest lesið „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Fleiri fréttir Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Sjá meira