Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fíkniefnamál upplýst á Ísafirði Lögreglan á Vestfjörðum lagði hald á tæplega 250 grömm af hassi, 44 e-töflur og tæpt gramm af amfetamíni í fyrrinótt. Tveir undir menn voru í haldi lögreglunnar á meðan rannsókn málsins stóð yfir. 16.10.2008 10:46
Halda því fram að Ísland hafi mat til þriggja til fimm vikna Því er haldið fram í norska blaðinu Aftenposten í dag að Íslendingar hafi einungis mat til þriggja til fimm vikna í viðbót vegna þeirra efnhagshremminga sem nú ganga yfir landið. 16.10.2008 10:32
Leiðin út úr kreppunni er alþjóðleg samvinna Alþjóðleg samvinna og aðild að henni mun gera Íslendingum kleift að forðast þær langvinnu þrengingar sem urðu á hlutskipti landsmanna á liðinni öld, að mati Jónsar H. Haralz fyrrverandi bankastjóra og efnahagsráðgjafi. 16.10.2008 10:31
Samþykkt að gera ráð fyrir útisundlaug við Sundhöllina Skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum í gær að gera ráð fyrir útisundlaug á lóð sunnan við Sundhöllina í Reykjavík. 16.10.2008 10:21
Kannabisplöntur og þýfi fundust í húsleit Fjörutíu kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar fundust við húsleit í íbúðarhúsi í Breiðholti í fyrrakvöld og lagði lögregla hald á þær. 16.10.2008 08:23
Bílvelta á Öxnadalsheiði Ungt par slapp lítið meitt þegar bíll þess rann á hálku og valt nokkrar veltur út af þjóðveginum á Öxnadalsheiði í gærkvöldi og gjöreyðilagðist. 16.10.2008 08:13
Leiðtogar ESB lýsa yfir stuðningi við og samstöðu með Íslandi Leiðtogar Evrópusambandsins munu lýsa yfir stuðningi og samstöðu með Íslandi í tilkynningu sem send verður út seinna í dag. Þetta er ein af niðurstöðum toppfundar ESB sem lýkur í dag. 16.10.2008 08:13
Eldur í gámi Sorpu í Mosfellsbæ Mikill eldur logaði upp úr opnum gámi, fullum af notuðum hjólbörðum, þegar slökkviliðið kom á vettvang á athafnasvæði Sorpu í Mosfellsbæ í gærkvöldi. 16.10.2008 08:11
Brotist inn í pylsuvagn Brotist var inn í pylsuvagninn við sundlaugarnar í Laugardal í nótt og þar leitað að verðmætum, en ekki kveikt undir pottunum. 16.10.2008 08:10
Vilja auknar veiðar úr norsk-íslenska stofninum Alþjóðahafrannsóknaráðið leggur til að veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum verði auknar um átta prósent frá síðasta ári í ljósi þess að stofninn hefur ekki verið stærri síðan fyrir hrun hans á sjöunda áratug síðustu aldar. 16.10.2008 07:18
Framboð Íslands til Öryggisráðs SÞ í uppnámi Framboð Íslands til setu í Öryggisráði SÞ er nú í uppnámi vegna fjármálaörðugleika landsins þessa stundina. Þetta kemur fram í frétt á Bloomberg-fréttaveitunni í dag. 16.10.2008 07:16
BHM fagnar vaxtalækkun Miðstjórn Bandalags háskólamanna fagnar ákvörðun Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti sem fyrsta skrefi í aðgerðum til að bæta hag almennings í landinu. 15.10.2008 21:12
Kaupþing mun hugsanlega krefja bresk stjórnvöld um hundruð milljarða Kaupþing hf hefur falið breska lögfræðifyritækinu Grundberg Mocatta Rakison að hefja undirbúning á lögsókn gegn breskum stjórnvöldum vegna aðfarar þeirra að dótturfyrirtæki Kaupþings á Bretlandi í liðinni viku. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. 15.10.2008 20:08
Vilja yfirtaka rekstur Landsvirkjunar Fjárfestingarsjóðurinn Riverstone Holdings vill yfirtaka rekstur Landsvirkjunar næstu ár og greiða áætlaðan hagnað fyrirfram. Fulltrúar frá fjárfestingarsjóðnum kynntu Landsvirkjun hugmyndina á fundi í síðustu viku. 15.10.2008 19:45
Erlendum gestum fjölgar verulega Erlendum gestum á Íslandi fjölgaði um 7300 eða 14,5% á tímabilinu 1. september til 13. október 2008. Alls fóru tæplega 58 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð á tímabilinu 1. september til 13. október 2008. Á sama tímabili í fyrra voru þeir um 50 þúsund. 15.10.2008 19:23
Fundu 40 kannabisplöntur við húsleit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Breiðholti í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 40 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 15.10.2008 18:40
Eldur í strætisvagni á Seltjarnarnesi Slökkviliðið var kallað að Vesturströnd á Seltjarnarnesi fyrir fáeinum mínútum þar sem kviknaði í strætisvagni. Tveir farþegar voru í vagninum, auk bílstjóra, þegar eldurinn kom upp en allir komust út án hjálpar. 15.10.2008 18:27
Geir hefur ekki séð skýrslu breskra sérfræðinga um bankakerfið Geir H. Haarde forsætisráðherra segir skýrslu breskra sérfræðinga, sem unnin var fyrir Landsbankan fyrr á þessu ári, ekki hafi verið lagða fyrir ríkisstjórn. Hann hafi vitað af skýrslunni en ekki lesið hana. 15.10.2008 17:34
Í farbann vegna fíkniefnamáls Þýskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í farbann til 26. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn er búsettur hér á landi, og sat um tíma í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að fíkniefnamáli sem kom upp á Seyðisfirði í byrjun síðasta mánaðar. 15.10.2008 17:17
Moskvufundir hafa gengið vel - Viðræðum verður haldið áfram Sendinefndin frá Seðlabanka Íslands og fjármálaráðuneytinu sem heimsótti Moskvu til að hefja viðræður við fulltrúa fjármálaráðuneytis Rússlands um mögulega lánveitingu til Íslands segir að fyrstu fundir hafi gengið vel. Fundum verður haldið áfram. Láninu er ætlað að bæta erlenda lausafjárstöðu Íslands. 15.10.2008 17:12
Ákjósanlegt að einn banki verði ekki í ríkiseigu Það er ákjósanlegast að einn af þremur stóru bönkunum verði á hendi annarra en ríkisins, sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á blaðamannafundi sem hann og Geir H. Haarde forsætisráðherra héldu á nú klukkan fimm. 15.10.2008 17:06
Fundað um stöðu Íslands í tengslum við Norðurlandaráðsþing Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna hyggjast hittast á fundi í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Finnlandi í lok mánaðarins til þess að ræða fjármálakreppuna og sérstaklega stöðu Íslands um þessar mundir. Þetta kom fram í máli Geirs. H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Iðnó fyrir stundu. 15.10.2008 17:03
Sendiherra fundaði með fulltrúum sveitarfélaga í Bretlandi Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi átti í dag fund með fulltrúum Samtaka sveitarfélaga í Bretlandi vegna innistæða þeirra í íslenskum bönkum þar í landi. 15.10.2008 16:45
Getur vel verið að mistök hafi verið gerð Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að vel geti verið að gerð hafi verið mistök á síðustu misserum en hann telji að íslensku bankarnari hefðu átt möguleika á að komast í gegnum erfiðleikana ef lausafjárkreppan hefði ekki skollið á af jafnmiklum þunga hér á landi og raun bar vitni. Hann sagði enn fremur að framferði Breta hefði verið tekið upp á vettvangi NATO af hálfu Íslendinga. 15.10.2008 16:37
Framsýn stéttarfélag: Auðmenn axli ábyrgð Framsýn-stéttarfélag á Húsavík hvetur til samstöðu meðal þjóðarinnar um að takast á við þann mikla efnahagsvanda sem blasir við almenningi á Íslandi. Hrun efnahagslífsins mun koma illa við marga, ekki síst verkafólk, ellilífeyrisþega og öryrkja. Framsýn hefur sérstakar áhyggjur af stöðu þessa fólks á þessum miklu óvissutímum. 15.10.2008 16:25
Samfylkingin lætur ekki beita sig skoðanakúgun Össsur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag að Samfylkingin myndi ekki láta beita sig neinni skoðanakúgun. 15.10.2008 16:19
Ríkissaksóknari rannsakar starfsemi bankanna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur falið ríkissaksóknara að hafa forystu um að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana. Þetta kom fram í ræðu ráðherra á Alþingi í dag. 15.10.2008 15:53
Heimildir Íbúðalánasjóðs rýmkaðar vegna kreppunnar Jóhanna Sigurðardóttir félags og tryggingamálaráðherra hefur með reglugerðarbreytingu rýmkað heimildir Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við lántakendur sem lenda í greiðsluvanda. 15.10.2008 15:26
Jóhanna: Endurskoða stjórnarsáttmála með tilliti til ESB ,,Við verðum öll að skoða aðild að Evrópusambandinu með opnum hug," sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í umræðum á Alþingi fyrir stundu. Reyna verði á aðildarviðræður þar sem þjóðin hefur úrslitavald um inngöngu. 15.10.2008 15:25
Hverjir stungu umdeildri skýrslu ofan í skúffu? Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna spurði margra spurninga í snarpri ræðu sinni á Alþingi fyrir stundu. Katrín talaði meðal annars um skýrslu tveggja breskra hagfræðinga sem unnin var fyrir Landsbankann en var stungið ofan í skúffu þar sem hún þótti of viðkvæm. 15.10.2008 15:14
Þorgerður vill læra af reynslu Finna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra, vill að Íslendingar læri af reynslu Finna og fjárfesti í menntun til framtíðar. Þetta sagði hún við umræður um stöðu bankakerfisins á Alþingi í dag. Þorgerður benti á að Finnar hefðu líkt og Íslendingar lent í bankakreppu undir lok síðustu aldar og þá veðjað á menntunþ. Það hefðii borgað sig því vöxtur finnska hagkerfisins hefði verið mikill á síðustu árum þar sem hátækni hefði skipað æ meiri sess. 15.10.2008 15:13
Spyr hvort von sé á meiru og þá hvaðan Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um stöðu bankakerfisins að fjölmörgum spurningum væri enn ósvarað. 15.10.2008 15:04
Svarfdælar fresta áformum um að breyta sparisjóðnum í hlutafélag Stjórn Sparisjóðs Svarfdæla hefur ákveðið að fresta öllum áformum um hlutafélagsvæðinu sjóðsins um óákveðinn tíma. Þetta er tilkynnt í bréfi til stofnfjáreigenda sjóðsins. Jafnframt er í bréfinu undirstrikað að áframhaldandi rekstur Sparisjóðs Svarfdæla í óbreyttri mynd er ekki í hættu, þrátt fyrir áföll að undanförnu í fjármálalífi landsins, að .því er fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum. 15.10.2008 15:04
Mjólkin hækkar um tíu prósent Mjólk og mjólkurafurðir hækka um rúm tíu prósent fyrsta nóvember næstkomandi, eða sem samsvarar um tíu krónum á mjólkurlítra. Í tilkynningu frá verðlagsnefnd búvara kemur fram að ástæður hækkunarinnar séu hækkanir á aðföngum í mjólkuriðnaði og búvöruframleiðslu. 15.10.2008 14:58
Lífeyrissjóðirnir bíða svars frá stjórnvöldum „Síðast þegar ég vissi var svarið ekki komið, en það hlýtur að fara að koma,“ segir Árni Guðmundsson framkvæmdarstjóri Gildi lífeyrissjóðs en fimm stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa sent yfirvöldum erindi um hugsanlega yfirtöku á innlendri starfsemi Kaupþings. 15.10.2008 14:36
Björgvin boðar hispurslaust uppgjör Björgvin G. Sigurðsson þakkaði landsmönnum fyrir vel unnið verk á síðustu dögum í ræðu sinni á Alþingi í dag. Hann sagði afrek hafa verið unnin þegar tókst að halda bankakerfinu gangandi þrátt fyrir efnahagshrunið. Á sama tíma hefðu landsmenn allir haldið stillingu sinni og sýnt æðruleysi frammi fyrir vandanum sem við er að etja. Hann segir mikilvægt að hispurslaust uppgjör fari fram. 15.10.2008 14:31
Blaðamannafundur í beinni Forsætisráðuneytið hefur boðað til blaðamannafundar í Iðnó kl. 17.00 í dag. Fundurinn er í þetta skiptið einungis ætlaður innlendum blaðamönnum. Næsta víst að umræðuefni fundarins verði, líkt og á fjölda blaðamannafunda í síðustu viku, um stöðu efnahagsmála. 15.10.2008 14:26
Aðgerðir Breta mannréttindabrot af verstu sort Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir aðgerðir breskra stjórnvalda gegn íslenskum fyrirtækjum mannréttindabrot af verstu sótt og vill að breska ríkisstjórnin verði kærð hið fyrsta. 15.10.2008 14:20
Efnahagráðgjafi ríkisstjórnarinnar hættur Tryggvi Þór Herbertsson sem verið hefur efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar undanfarið hefur látið af störfum. Tryggvi var ráðinn til sex mánaða en starfaði einungis í tvo og hálfan mánuð. Hann segir að um sé að ræða samkomulag tveggja manna sem gert hafi verið í miklu bróðerni. 15.10.2008 14:19
Ríkisstjórnin kannar grundvöll málshöfðunar á hendur Bretum Ríkisstjórnin hefur falið breskri lögmannssstofu að kanna grundvöll málshöfðunar á hendur breskum stjórnvöldum vegna þeirra aðgerða sem þau gripu til í síðustu viku gegn íslenskum fyrirtækjum. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem flutti munnlega skýrslu um stöðu bankakerfisins. 15.10.2008 14:12
Krefst þess að auðmenn komi að uppbyggingunni eða sleppi því að koma heim Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, krefst þess að auðmenn komi heim og leggi þeirri uppbyggingu sem er að hefjast lið. Geri þeir það ekki geti þeir sleppt því að láta sjá sig á götum úti. 15.10.2008 14:03
Segir fjárlagafrumvarpið ekki ónýtt plagg Forsætisráðherra segir fjárlagafrumvarpið ekki ónýtt plagg eftir atburði síðustu daga. En að það eigi eftir að taka breytingum í meðförum þingsins. 15.10.2008 13:00
,,Af hverju segir Ingibjörg ekki bara niður með Ísland?" Það er einföldun að draga þá ályktun að Íslendingar eigi sér enga aðra leið en að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir efnahagsaðstoð, að mati Bjarna Harðarsonar þingsmanns Framsóknarflokksins. Honum hugnast ekki yfirlýsingar forystumanna Samfylkingarinnar og framamanna í þjóðfélaginu. 15.10.2008 12:55
Uppsagnir í takti við það sem búist var við „Þetta er auðvitað áfall, en í ljósi aðstæðna kannski sú tala sem við bjuggumst við,“ segir Anna Karen Hauksdóttir, formaður starfsmannafélags Glitnis. 97 starfsmenn gamla Glitnis misstu vinnuna í kjölfar þess að Nýi Glitnir tók til starfa í dag. 15.10.2008 12:49
Enginn lyfjaskortur í landinu Ekki er hætta á því að nauðsynleg lyf verði uppurin. Lyfjabirgðir Landspítalans eru í eðlilegu horfi og forsvarsmenn lyfjafyrirtækja bera sig nokkuð vel. 15.10.2008 12:45