Innlent

Fundu 40 kannabisplöntur við húsleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Breiðholti í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 40 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Tveir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri, voru handteknir í þágu rannsóknar málsins. Á sama stað fannst talsvert af verkfærum en grunur leikur á að þau séu illa fengin, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×