Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríflega 360 kaupsamningum þinglýst í september Rílfega 360 kaupsamningum um fasteignir var þinglýst við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september síðastliðnum samkvæmt tölum á vef Fasteignamats ríksisins. 20.10.2008 11:11
Árás á lögregluna er árás á þjóðfélagsskipan Íslendinga Árás á lögregluna í landinu er árás á þá þjóðfélagsskipan sem hér ríkir og ógn gegn almannaöryggi, að mati Landssambands lögreglumanna. 20.10.2008 11:08
Fjórir í gæsluvarðhald vegna árásar á lögreglu Fjórir af þeim mönnum sem stóðu að árás á lögregluþjónana tvo í Hraunbænum í fyrrinótt hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald þar til á miðvikudag. 20.10.2008 11:03
Áflogaseggur og málfarslögga á Akranesi Lögreglan á Akranesi átti um helgina við áflogasegg sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir íslenskuáhuga hans. 20.10.2008 10:57
Óvíst með stöðu landlæknis um mánaðarmótin Embætti Landlæknis hefur ekki verið auglýst til umsóknar þrátt fyrir að Sigurður Guðmundsson, fráfarandi landlæknir, láti af störfum á næstu dögum. 20.10.2008 10:40
Harður árekstur við enda tvöföldunar Reykjanesbrautar Geysiharður árekstur varð við enda tvöföldunar Reykjanesbrautar á Fitjum nú í morgun. Bifreið var ekið af Stekk og í veg fyrir bifreið sem ók eftir Reykjanesbraut. Sú bifreið stórskemmdist í árekstrinum. 20.10.2008 10:36
Vilja jafnræði kynja í ný bankaráð Stjórn kvennahreyfingar Samfylkingarinnar skorar á forystu flokksins sem og ríkisstjórn að hafa jafnræði kynja að leiðarljósi við skipan í bankaráð hinna nýju banka. 20.10.2008 09:21
Vinnubúðir á Kárahnjúkum fluttar að Búðarhálsvirkjun Landsvirkjun hyggst nota vinnubúðir af Kárahnjúkum við uppbyggingu á Búðarhálsvirkjun sem nú er að fara af stað. Á heimasíðu Landsvirkjunar er óskað eftir tilboðum í flutning vinnubúðanna frá Kárahnjúkavirkjun að vinnusvæði Landsvirkjunar við Búðarhálsvirkjun. 20.10.2008 09:12
RÚV braut ekki siðareglur með umfjölllun um Guðmund Siðanefnd Blaðamannafélagsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi ekki brotið siðareglur í umfjöllun sinni um samskipti Guðmundar Þóroddssonar, fyrrverandi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, og fyrirtækisins. 20.10.2008 09:05
Íslensk skip fá 10.000 tonna þorskkvóta í Barentshafi Þorskkvóti íslenskra fiskiskipa í Barentshafi verður tæplega tíu þúsund tonn á næsta ári, en það jafngildir ársafla að minnsta kosti tveggja frystitogara. 20.10.2008 08:19
Farþegum um Kelfavíkurflugvöll fækkar töluvert Rúmlega átta prósentum færri farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í síðasta mánuði, samanborið við sama mánuð í fyrra, eða 172 þúsumd samanborið við 187 þúsund í fyrra. 20.10.2008 08:16
Víða snjókoma í nótt Víða snjóaði á landinu í nótt og það er til dæmis hálka á Akureyri. Þar urðu tvö umferðaróhöpp í gærkvöldi og voru viðkomandi bilar á 20.10.2008 07:21
Innbrot í sjoppu í Árnesi Brotist var inn í sjoppu við Árnes í Árnessýslu í nótt og þaðan meðal annars stolið símakortum, tóbaki og bensínkortum. Þjófurinn komst undan. 20.10.2008 07:18
Jarðskjálfti í Öxarfirði í nótt Jarðskjálfti upp á 4,2 stig á Richter varð í Öxarfirði um klukkan hálfþrjú í nótt og fannst hann meðal annars í Laxárvirkjun í Aðaldal. 20.10.2008 07:14
Slasaðist á fjórhjóli í Sandvík Maður slasaðist í dag á fjórhjóli í Sandvík á Reykjanesi. Slysið varð um miðjan dag og fór lögregla ásamt sjúkrabifreið á staðinn og sótti manninn. 19.10.2008 20:09
Best að taka knapann af áður en hrossakjöt er eldað Galdurinn við að elda hrossakjöt er að taka fyrst knapann af - og ofelda ekki, segir Friðrik fimmti veitingamaður sem matreiddi hross ofan í skagfirska hestamenn í gærkvöldi. Skagfirðingar vilja auka sölu á þessu vannýtta keti í kreppunni. 19.10.2008 19:16
Berjast fyrir bættri ímynd í Bretlandi Hópur manna hefur tekið sig saman og ætlar að berjast fyrir bættri ímynd Íslands í Bretlandi. Um er að ræða fólk sem hefur góð tengsl við Bretland, hefur menntað sig þar og búið, á þar vini og þekkir fólk í lykilstöðum. 19.10.2008 18:58
Hlé gert á fundum í bili - þráðurinn tekinn upp síðar í kvöld Fundarhöldum er lokið í ráðherrabústaðnum í bili. Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra segir í samtali við Vísi að engin niðurstaða liggi fyrir en eins og greint var frá í dag hafa ráðherrar fundað með ráðgjöfum sínum og fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Jón Þór segir að áfram verði fundað í kvöld en að niðurstöðu sé ekki að vænta um aðstoð frá IMF að sinni. Hugsanlega skýrist hlutirnir í fyrramálið. Jón sagði þó að málið væri í góðum farvegi. 19.10.2008 16:18
Össur: Samfylking hefur lagt þunga áherslu á aðstoð frá IMF Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segir að Samfylkingin hafi lagt á það þunga áherslu að ríkisstjórnin leiti aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til þess að bregðast við þeim áföllum sem riðið hafa yfir íslenskt efnahagslíf. Þetta kom fram á fundi sem Samfylkingin hélt á Grand hóteli í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mætti á fundinn en hún hefur verið fjarverandi vegna erfiðra veikinda. Flokksmenn tóku á móti formanni sínum með lófataki og buðu hana velkomna til starfa á ný. 19.10.2008 16:04
Talibanar myrtu tuttugu og sjö í Kandahar Talibanar í Afganistan myrtu á dögunum 27 menn sem voru um borð í þremur rútum í Kandahar héraði. Talsmaður Talibana lýsti yfir ábyrgð á verknaðinum en þeir fullyrða að hinir myrtu hafi allir verið stjórnarhermenn. 19.10.2008 14:42
Jón Baldvin: Davíð stendur harðast gegn aðstoð frá IMF Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að það sem standi helst í vegi fyrir því að Íslendingar sæki um aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), sé andstaða Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra. 19.10.2008 13:43
Ráðist á lögreglumenn í nótt Ráðist var á tvo lögreglumenn að tilefnislausu í Hraunbænum í nótt. Sparkað var í höfuð annars þeirra þar sem hann lá í götunni og hlaut hann skurð á höfuð. Tildrög málsins voru þau að kvartað var yfir hávaða frá íbúð í Hraunbæ klukkan rúmlega eitt í nótt og mættu tveir lögreglumenn á staðinn og mæltust til þess að dregið yrði úr hávaðanum. 19.10.2008 12:44
Tvöföld Reykjanesbraut vígð í dag Kristján L. Möller samgönguráðherra opnar klukkan tvö í dag síðasta kaflann í tvöföldun Reykjanesbrautar við Stapahverfi í Reykjanesbæ og vígja þar með tvöfalda Reykjanesbraut frá Hafnarfirði til Njarðvíkur. Að vígslu lokinni verður umferð hleypt á þenna síðasta kafla, hálfum mánuði á undan áætlun. 19.10.2008 11:55
„Sameignin er gjörónýt“ Björk Felixdóttir var vakin af reykskynjurunum á stigagangi Vesturbergs 100 en hún er á meðal íbúa í blokkinni þar sem eldur kom upp í nótt. Hún segir þetta óskemmtilega lífsreynslu að lenda í en er þakklát fyrir að ekki fór ver. 19.10.2008 10:50
Tuttugu handteknir í miðbænum í nótt Um tuttugu manns gistu fangageymslur lögreglu í nótt en mikill erill var í miðbænum að sögn lögreglu. Að minnsta kosti þrjár líkamsárásir voru bókaðar hjá lögreglunni í nótt en engin þeirra þykir alvarleg að sögn lögreglu. Þeir sem gistu fangageymslur voru handteknir fyrir ólæti, óspektir og slagsmál. 19.10.2008 09:36
Þrír teknir í Reykjanesbæ Þrír voru teknir í Reykjanesbæ grunaðir um akstur undir áhrifum. Einn var tekinn snemma í gærkvöldi grunaður um fíkniefnaakstur og nú undir morgun voru tveir ökumenn stöðvaðir í Reykjanesbæ grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis. Þeir voru þeir sviptir ökuréttindum til bráðabirgða. 19.10.2008 09:35
Eldur í fjölbýlishúsi í Breiðholti í nótt Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Vesturbergi í nótt um klukkan hálffjögur. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang enda lagði töluverðan reyk frá húsinu á öllum hæðum. Reykkafarar fóru innn í húsið en íbúar voru beðnir um að halda sig úti á svölum. Átta íbúðir eru í húsinu og var skilaboðum komið til íbúa með gjallarhornum og í gegnum SMS skilaboð. 19.10.2008 09:22
Grindavíkurvegur lokaður í kvöld vegna tankflutnings Grindavíkurvegur verður lokaður í kvöld frá afleggjaranum að Bláa lóninu að Seltjörn á milli klukkan 21 og 22.30 vegna þess að verið er að flytja 90 tonna mjöltank eftir veginum. 18.10.2008 19:38
Fjórir sluppu án teljandi meiðsla í bílveltu í Hafnarfirði Fernt slapp án teljandi meiðsla þegar bíll valt á Kaldárselsvegi fyrir ofan Klettahlíð í Hafnarfirði um áttaleytið í kvöld. 18.10.2008 21:13
Í kappakstri á Garðvegi á 150 Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvær bifreiðar á Garðvegi um miðjan dag á 151 kílómetra hraða. Telur lögregla að ökumennirnir hafi verið í kappakstri á veginum. 18.10.2008 20:00
Gríðarleg upplýsingavinna vegna hruns bankanna Upplýsingavinna vegna hruns bankanna er líklega mikilvægasta verkefni sem unnið hefur verið í utanríkisráðuneytinu, segir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins. Fjölmargir starfsmenn þess hafa lagt önnur störf til hliðar og einbeita sér að þessu verkefni. 18.10.2008 19:30
Meintur höfuðpaur í verksmiðjumáli afplánaði aðeins fjórðung dóms Grunaður höfuðpaur í fíkniefnaverksmiðjunni í Hafnarfirði var frjáls maður einu og hálfu ári eftir að Hæstiréttur dæmdi hann í sex ára fangelsi. Föðursystir hans vann hjá Fangelsismálastofnun og er sögð hafa beitt sér í hans þágu. 18.10.2008 18:57
Tilbúinn að skoða leiðir til að koma til móts við fólk með verðtryggð lán Viðskiptaráðherra er reiðubúinn að skoða allar færar leiðir til að koma til móts við fólk með verðtryggð lán. Formaður Frjálslynda flokksins lagði til í morgun að verðtrygging lána verði stöðvuð næstu þrjá mánuðina. 18.10.2008 18:40
Þrír fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur Þrír voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur tveggja bíla á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs laust fyrir klukkan sex. 18.10.2008 18:17
Ráðherrar funduðu í Stjórnarráðinu Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar funduðu í dag í stjórnarráðinu. Auk Geirs H. Haarde forsætisráðherra sátu Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og starfandi utanríkisráðherra og Árni M. Mathiessen fjármálaráðherra fundinn. 18.10.2008 17:16
Boða aftur mótmæli eftir viku Talið er að nokkur hundruð manns hafi komið saman á Austurvelli klukkan þrjú í dag þar sem fram fóru mótmæli og þess var krafist að Davíð Oddssyni seðlabankastjóra yrði vikið frá störfum. 18.10.2008 16:31
Segja viðskiptaráðherra hafa gefið afsvar án þess að hafa allar upplýsingar Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, sem óskað höfðu eftir viðræðum um kaup á hlut í Kaupþingi, fullyrða að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hafi gefið afsvar um málið án þess að hafa vitað um heildstætt áhættumat lífeyrissjóðanna vegna kaupanna. 18.10.2008 16:20
Fjölmenni á Austurvelli í mótmælum gegn Davíð Mikill fjöldi fólks er nú saman kominn á Austurvelli þar sem fram fara mótmæli og þess er krafist að Davíð Oddssyni seðlabankastjóra verði vikið frá störfum. 18.10.2008 15:22
Lokið við að taka niður fíkniefnaverksmiðju í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýkur í dag við að taka niður fíkniefnaverksmiðjuna í Hafnarfirði sem flett var ofan af í fyrradag. 18.10.2008 15:16
Segir Evrópu hafa breyst og kallar eftir samstöðu Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, gerir ekki athugasemdir við að áhugahópur innan flokksins um Evrópumál hafi látið gera skoðanakönnun á fylgi við Evrópusambandsaðild og segir frelsi í flokknum. Hann telur hins vegar að við núverandi aðstæður hugsi menn fyrst og fremst um það hvernig íslensk þjóð muni bjarga sér. 18.10.2008 15:00
Stjórnvöld semji við alþjóðlegt almannatengslafyrirtæki Almannatengslafélag Íslands hefur sent forsætisráðuneytinu bréf þar sem lagðar eru fram hugmyndir að almannatengslum fyrir Íslands vegna þeirra erfiðleika sem við er að etja í útlöndum. 18.10.2008 14:30
UJ krefst þess að ríkisstjórnin stefni að inngöngu í ESB Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórnin stefni að inngöngu í Evrópusambandið og segja að það sé lykillinn að endurreisn Íslands. 18.10.2008 14:16
Engin kreppa í koníakinu - Báðar flöskurnar seldar Þær voru ekki lengi að fara tvær dýrustu áfengisflöskur landsins eftir að Stöð 2 fjallaði um þær í fréttum sínum í gær. 18.10.2008 13:50
Aðrar þjóðir geta hugsanlega lært af Íslendingum ef vel tekst til Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að ef Íslendingum takist að leysa efnahagsvandann á öruggan hátt geti aðrar þjóðir hugsanlega horft til þess. Þetta kom fram í viðtali við hana í Markaðnum á Stöð 2 í morgun. 18.10.2008 13:36
Enginn á ofurlaunum í Nýja Glitni Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis, segir að algjörlega ný launauppbygging sé í hinum nýja banka og þar sé enginn maður á ofurlaunum. Í samtali við fréttamann Markaðarins vildi hún hins vegar ekki gefa upp eigin laun. 18.10.2008 12:51