Aðrar þjóðir geta hugsanlega lært af Íslendingum ef vel tekst til 18. október 2008 13:36
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að ef Íslendingum takist að leysa efnahagsvandann á öruggan hátt geti aðrar þjóðir hugsanlega horft til þess. Þetta kom fram í viðtali við hana í Markaðnum á Stöð 2 í morgun. Ráðherra sagði að segja mætti að Ísland væri það land þar sem efnhagsfárviðrið hefði fyrst skollið á. Það sem hefði gerst á Íslandi gæti gerst annars staðar. Ingibjörg var spurð út í þau orð fræðimanna á borð við Richard Portes og Ólafs Ísleifsson að þjóðnýting Glitnis hefði hrundið af stað skriðu í kerfinu sem ekki hefði verið hægt að stöðva. Ingibjörg sagðist ekkk hafa forsendur til að meta það en allir aðilar hefðu reynt að gera sitt besta. Aðalatriðið nú væri að koma okkur í skjól til þess að fá fleiri aðila til aðstoðar hér á landi. Enginn sá fyrir fárviðrið Vísað var til fréttar Berlingske Tidende fyrr á þessu ári þar sem Ingibjörg Sólrún sagði að bankar landsins gætu reiknað með stuðningi ríkisins, jafnvel með beinu framlagi, og að stjórnvöld myndu ekki láta það líðast að bankarnir yrðu gjaldþrota. Spurð út í þessi orð sagði Ingibjörg að staðan hefði verið sú að bankarnir hefðu staðið vel í samanburði við aðra banka. Allar forsendur hefðu verið fyrir því að þeir stæðu af sér kreppuna en enginn hefði getað séð fyrir fárviðrið sem yfir okkur hefði komið og að allt myndi botnfrjósa. Spurð um þá kröfu úr röðum Samfylkingarinnar að bankastjórn Seðlabankans víki og hvort ekki væri kominn upp fullkominn trúnaðarbrestur milli ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans sagði utanríkisráðherra að hún hefði margsinnis sagt ekki ætti að skipa fyrrverandi stjórnmálamenn í stjórn Seðlabankans. Mikilvægt væri að við hefðum seðlabankastjóra sem nytu mikils trausts og hún hefði sagt að mikilvægt væri að stjórn Seðlabankans skapaði forsætisráðherra svigrúm til breytinga með því að segja af sér. Þarf að liggja fyrir sem fyrst hvert við stefnum Þá sagði Inigbjörg aðspurð að skoða þyrfti peningamálastefnuna og hún teldi að liður í því væri að horfa til ESB og evrunnar og bakstuðnings frá Seðlabanka Evrópu. Þetta væri umræða sem fara þyrfti fram á Íslandi. Það þyrfti að liggja fyrir innan ekki of langs tíma hvert við stefndum í peningamálum. Enn fremur sagði ráðherra að það væri mjög mikilvægt að það skýrðist á allra næstu dögum hvort og hver aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins yrði hér á landi. Hún teldi jafnframt að aðstoð við Íslendinga yrði að vera fjölþjóðleg.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira