Stjórnvöld semji við alþjóðlegt almannatengslafyrirtæki 18. október 2008 14:30 Ómar Valdimarsson er formaður Almannatengslafélags Íslands.
Almannatengslafélag Íslands hefur sent forsætisráðuneytinu bréf þar sem lagðar eru fram hugmyndir að almannatengslum fyrir Íslands vegna þeirra erfiðleika sem við er að etja í útlöndum. Telur starfshópur á vegum félagsins brýnt að fyrst verði samið við alþjóðlegt almannatengslafyrirtæki sem geti tryggt að skilaboð á erlendum vettvangi og aðgerðir verði samhæfðar. Enginn vegur sé fyrir ráðuneyti eða aðgerðahópa hér heima að hafa þá staðbundnu yfirsýn sem til þurfi til að taka réttar ákvarðanir við að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri erlendis. Hópurinn telur að vel hafi verið staðið að upplýsingamiðlun hérlendis allt frá því að bankakreppan skall á en erlendis hafi dýrmæt tækifæri í upplýsingamiðlun hins vegar farið forgörðum vegna þess að ekki var leitað ráðgjafar í almannatengslum í hverju landi fyrir sig. „Svo virðist sem enn sé hik í þeim efnum af hálfu stjórnvalda og ætlunin að fjarstýra upplýsingamiðluninni héðan. Það er borin von," segir í tilkynningu Almannatengslafélagsins. Engar skyndilausnir til Óttast félagið að stjórnvöld ætli litla sem enga fjármuni til þess tröllaukna verkefnis að bæta orðstír Íslands erlendis heldur reiða sig að mestu leyti á eigin starfskrafta. „Með fullri virðingu fyrir getu og þekkingu starfsmanna ráðuneyta telur starfshópurinn að þar sé ekki til staðar sú þekking sem þarf í þessum efnum," segir enn fremur í tilkynningunni. Félagið segir engar skyndilausnir til en leggur til nokkur atriði. Fara þurfi í ástandsmat og kortleggja í hvaða löndum sé mikivægast að taka á málum. Samhliða þessu þurfi að koma á fót öflugri og samhæfðri upplýsingamiðlun á þeim svæðum sem eldurinn brennur hvað heitast eins og í Bretlandi, hinum norrænu ríkjunum og Benelux-löndunum. Þá þurfi að virkja ýmis hagsmunasamtök, fyrirtæki, félög og einstaklinga sem eigi skipuleg samskipti við erlend félög til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri erlendis. Þá þurfi að hvetja alla Íslendinga til að taka þátt í upplýsingamiðlun til útlanda og umræðum erlendis, hvort sem er við aðra einstaklinga eða fjölmiðla. „Þeir þurfa að hafa greiðan aðgang að öllum tiltækum upplýsingum um stöðu mála og til þess er nauðsynlegt að setja upp yfirgripsmikla vefsíðu," segir Almannatengslafélag Íslands.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira