Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Staðið við launaskuldbindingar gagnvart þeim sem sagt verður upp Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu viðskiptaráðherra um að íslenska ríkið muni hlaupa undir bagga með Landsbanka Íslands hf. til að tryggja að hann geti staðið við launaskuldbindingar sínar gagnvart starfsmönnum sem ekki flytjast yfir í Nýja Landsbankann. 10.10.2008 11:59
Sálfræðiráðgjöf vegna kreppunnar veitt í Heilsuverndarstöðinni Geðsvið Landspítalns mun í dag klukkan eitt opna sálfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga sem glíma við mikinn kvíða, depurð, sektarkennd eða önnur álagseinkenni vegna þróunar fjármála á Íslandi. 10.10.2008 11:45
Halldór vill að Ísland leiti til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Nauðsynlegt er að Ísland leiti eftir efnahagsaðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, að mati Halldórs Ásgrímssonar fyrrverandi forsætisráðherra. 10.10.2008 11:37
Leggur fram tillögu um ESB-atkvæðagreiðslu Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að atkvæðagreiðsla fari fram um aðildarviðræður við Evrópusambandið hér á landi eigi síðar en í maí á næsta ári. 10.10.2008 11:37
Árvakur segir upp 22 starfsmönnum Árvakur segir upp 22 starfsmönnum nú þegar Fréttablaðið og Pósthúsið rennur inn í fyrirtækið, en tilkynnt var um samrunann í morgun. Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Árvakurs, segir að fólki úr nokkrum deildum verði sagt upp, bæði blaðamönnum, sölufólki, umbrotsfólki. 10.10.2008 11:11
Stjórnarliðar kalla eftir stýrivaxtalækkkun Ráðherrar og fjölmargir stjórnarliðar vilja að Seðlabankinn lækki stýrivexti hér á landi umtalsvert. Sem stendur eru stýrivextir 15,5 prósent. 10.10.2008 10:58
Mótmæli við Seðlabankann í hádeginu Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan Seðlabankann í hádeginu þar sem þess verður krafist að stjórn Seðlabankans segi af sér. Hrafnkell Orri Egilsson stendur að mótmælunum ásamt vinkonu sinni sem er í Frakklandi og finnur fyrir þeirri óreiðu sem er í gjaldeyrismálum landsins. 10.10.2008 10:33
Sektaður fyrir að slá konu í andlitið Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann til að greiða 70 þúsund krónur í sekt fyrir að slá til konu í andlitið í félagsheimili á Eskifirði í febrúar. 10.10.2008 10:12
Sendi börn áfram á leikskóla þrátt fyrir kreppu Stjórn Félags leikskólakennara vill ekki að foreldrar hætti að senda börn sín á leikskóla vegna fjárskorts. Leikskólastjórar eru hvattir í ályktun stjórnar félagsins til að vera á varðbergi og grípa inn í ef grunur er um að foreldrar neyðist til að segja upp leikskóladvöl sökum fjárhagserfiðleika. 10.10.2008 09:54
Ferðaþjónusta um fimm prósent af landsframleiðslu Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu á árunum 2000-2006 reyndist 4,6 prósent að meðaltali samkvæmt ferðaþjónustureikningum sem Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta sinn. 10.10.2008 09:36
Fréttablaðið og Pósthúsið sameinað Árvakri Árvakur hf. og 365 hf. hafa undirritað samning um að sameina Fréttablaðið og Pósthúsið Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Þannig greiðir Árvakur fyrir útgáfu nýs hlutafjár og yfirtöku skulda og kemur 365 inn í hlutahafahóp Árvakurs eftir því sem segir í tilkynningu forstjóra 365, Ara Edwald. 10.10.2008 09:04
Ísland boðið upp á eBay Breskur karlmaður hefur tekið upp á því að bjóða Ísland upp á uppboðsvefnum eBay. 10.10.2008 08:54
Fyrri ferð ferjunnar Sankti Ola til Eyja fellur niður í dag Fyrri ferð ferjunnar Sankti Ola, sem leysir Herjólf af hólmi þessa dagana á meðan hann er í slilpp, fellur niður vegna viðgerða á skipinu eftir að það fékk á sig bortsjó skömmu eftir brottför frá Þorlákshöfn í gærkvöldi. 10.10.2008 07:02
Lögreglan handtók fjóra innbrotsþjófa á vettvangi í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjóra innbrotsþjófa á vettvangi í fyrirtæki við Stórhöfða í nótt. 10.10.2008 07:00
Lýst eftir Englendingi á Íslandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enskum manni James Richard Rose 44 ára. Maðurinn kom til landsins með flugi frá London kl. 15:00 þann 7. október síðastliðinn. Ekkert hefur spurst til mannsins frá því hann fór frá flugstöð Leifs Eiríkssonar. 9.10.2008 23:17
Þrír mannhæða háir gluggar brotnuðu á staðgengli Herjólfs St. Ola sem siglir á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja í fjarveru Herjólfs fékk á sig brotsjó um átta leytið í kvöld. Gísli Óskarsson fréttaritari Stöðvar 2 í Vestmannaeyjum segir skipið væntanlegt til eyja um eitt leytið í nótt. 9.10.2008 22:22
Enginn einn sökudólgur Steingrímur J Sigfússon formaður Vinstri grænna segir að ef menn telji að ráðamenn þjóðairnnar hafi glatað trausti eigi að skipta um allt „settið“. Steingrímur var gestur í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. 9.10.2008 20:08
Eignir íslenskra fyrirtækja að hrynja Allar eignir íslenskra fyrirtækja og heimila eru að hrynja að sögn Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra atvinnulífsins. Lækka þurfi vexti strax og aðeins útförin ein sé eftir af peningamálastefnu Seðlabankans. 9.10.2008 19:26
Lífeyrissjóðirnir tapa tugum milljarða Lífeyrisréttindi landsmanna munu skerðast vegna þrots viðskiptabankanna. Sjóðirnir hafa tapað tugum milljarða króna. 9.10.2008 19:21
Hundruð manna missa vinnu í Landsbankanum Hundruð manna munu missa vinnuna hjá Landsbankanum, aðallega fólk á verðbréfasviði. Þetta er niðurstaðan þrátt fyrir að viðskiptaráðherra hafi sagt á fundi með starfsmönnum Landsbanks í gær að enginn myndi missa vinnuna. Elín Sigfúsdóttir, forstöðumaður fyrirtækjasviðs Landsbankans, hefur verið ráðin bankastjóri Nýja Landsbankans hf. 9.10.2008 19:10
Seðlabankastjóri í veikindaleyfi Ingimundur Friðriksson, seðlabankastjóri, hefur að læknisráði farið í stutt leyfi. Hann snýr að öllum líkindum fljótt til starfa á ný. 9.10.2008 17:57
Ungir jafnaðarmenn sammála Ágústi Ólafi um Davíð Á landsþingi Ungra jafnaðarmanna um nýliðna helgi kom fram skýr krafa um að Davíð Oddson og aðrir Seðlabankastjórar ættu að víkja. Í ræðu sinni sagði formaður félagsins, Anna Pála Sverrisdóttir, að Davíð Oddson væri gereyðingarvopn fyrir íslenskt efnahagslíf. 9.10.2008 17:22
Segir sig úr bankaráði Seðlabankans Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem situr í bankaráði Seðlabankans ætlar að segja sig úr stjórn bankans. Hún mun tilkynna forseta alþingis um afsögn sína í kvöld. Sigríður segir Seðlabankann bera mikla ábyrgð á þeim mistökum sem gerð hafa verið undanfarið og telur að mikilvægt sé að sátt ríki meðal þjóðarinnar um stjórn Seðlabankans. 9.10.2008 17:11
Fær ekki bætur vegna tjóns af völdum reykeitrunar Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm Héraðsdóms í máli manns á hendur Hampiðjunni vegna vinnuslyss. 9.10.2008 16:41
Neytendur hvattir til að fylgjast með verðlagningu í verslunum Vörukarfa ASÍ hækkaði mest í Bónus, um 2,9%, á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í annarri og fjórðu viku septembermánaðar ( 37. og 39. viku). Verð körfunnar hækkaði um 1,4% í Hagkaupum og 1,2% í Nóatúni á sama timabili. 9.10.2008 16:38
Brown: „Afstaða Íslendinga algjörlega óásættanleg“ Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, segir að framkoma íslenskra stjórnvalda í garð breta vegna fjármálakrísunnar sé „algjörlega óásættanleg“. Þetta kom fram í máli forsætisráðherrans þegar hann ræddi við breska fjármálamenn í dag. Hann sagði einnig að ríkisstjórnin breska væri enn að íhuga lögsókn ef vandamál varðandi íslensku bankana verða ekki leyst. 9.10.2008 16:38
Forsætisráðherra kallar Helga Seljan fífl og dóna Geir Haarde kallaði Helga Seljan fréttamann Kastljóssins fífl og dóna á blaðamannafundi í Iðnó í dag. Helgi reyndi á fundinum að bera fram spurningu en Geir greip fram í fyrir honum og lauk fundinum. 9.10.2008 16:33
Yoko verðlaunaði íslensku þjóðina og Vandana Shiva Yoko Ono afhenti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og dr. Vandana Shiva, umhverfissinna, LennonOno friðarviðurkenningu ársins 2008 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. 9.10.2008 16:09
Svaraði því ekki hvort stjórn Seðlabankans nyti enn trausts Geir H. Haarde forsætisráðherra svaraði ekki því hvort stjórn Seðlabankans nyti enn þá trausts ríkisstjórnarinnar. 9.10.2008 15:35
Reynt að lágmarka tjón almennings „Allar þessar málalyktir hvað varðar Kaupþing eru gríðarleg vonbrigði," sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á blaðamannafundi sem hann og Geir Haarde héldu í Iðnó í dag. Hann sagði að fyrir fáeinum dögum hefði allt útlit verið fyrir það að Kaupþing myndi komast yfir hamfarirnar sem dynji á heiminum. 9.10.2008 15:28
Bretar tryggja eðlileg og venjuleg viðskipti milli landanna Geir H. Haarde forsætisráðherra ræddi við Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, fyrr í dag og segir að Bretar muni gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja að eðlileg og venjuleg viðskipti geti farið fram á milli landanna. 9.10.2008 15:05
Útsvarstekjur borgarinnar 2,5 milljörðum minni en búist var við Útsvarstekjur borgarinnar verða um 2,5 milljörðum króna minni í ár en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í bréfi borgarhagfræðings um forsendur fjárhagsáætlunar næsta árs sem lagt var fram á fundi borgarráðs í dag. 9.10.2008 15:03
Þjónustunet vegna aðstæðna á fjármálamarkaði opnað Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót samræmt þjónustunet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði til að auðvelda fólki aðgang að upplýsingum, nýtt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall. 9.10.2008 14:45
Blaðamannafundur í beinni á Stöð2, Bylgjunni og Vísi Blaðamannafundur Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, í Iðnó verður í beinni útsendingu á Stöð2, Bylgjunni og hér á Vísi. Fundurinn hefst klukkan 15. 9.10.2008 14:45
Þrír í gæsluvarðhald vegna fíkniefnasmygls Þrír karlmenn á aldrinum 17 til 28 ára hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 14. október næstkomandi að kröfu fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 9.10.2008 14:42
Lundey landaði 730 tonnum í Vopnafirði Lundey NS kom til Vopnafjarðar nú upp úr hádeginu með alls um 730 tonn af síld. Aflinn fékkst aðallega á Jan Mayensvæðinu en að sögn Stefáns Geirs Jónssonar, sem er skipstjóri í þessari veiðiferð, var einnig tekið eitt hol í Síldarsmugunni. 9.10.2008 14:06
Aukin ráðgjöf í þjónustumiðstöðvum borgarinnar - Boðið upp á áfallahjálp Á fundi borgarráðs í morgun var kynnt áætlun velferðarráðs Reykavíkurborgar vegna stöðu efnahagsmála. Velferðarsvið eins og önnur svið borgarinnar hefur gert ráðstafanir til að aðlaga sig að þeim aðstæðum sem nú ríkja í þjóðfélaginu. 9.10.2008 13:51
Árni Matt: Fráleitt að samtalið við Darling hafi sett allt á hvolf Árni Mathiesen, fjármálaráðherra telur af og frá að Alistair Darling fjármálaráðherra Breta hafi lagt þann skilning í samtal þeirra kollega á þriðjudaginn að Íslendingar myndu ekki bæta breskum sparifjáreigendum hjá Icesave, tap sitt. Mbl.is segist hafa heimildir fyrir því innan úr fjármálaráðuneytinu breska að samtal ráðherranna hafi orðið til þess að allt fór á hvolf í Bretlandi í gær. Árni segist draga mjög í efa að samtalið hafi haft þessi áhrif. 9.10.2008 13:43
Fresta stokk undir Geirsgötu og Mýrargötu Borgarráð hefur að tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra samþykkt að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við byggingu stokks undir Geirsgötu og Mýrargötu. Tillagan var samþykkt samhljóða á fundi borgarráðs í morgun. 9.10.2008 13:36
Stjórnarandstaðan vill fund með ríkisstjórn um ástandið Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kröfðust þess á Alþingi í morgun að verða upplýstir um stöðu efnahagsmála eftir þróun síðustu daga. Forsætisráðherra sagði sjálfsagt að flytja þinginu skýrslu um málið þegar allar upplýsingar sem eðlilegt væri að opinbera lægju fyrir. 9.10.2008 13:34
Neytendasamtökin krefjast þess að stýrivextir verði lækkaðir Stjórn Neytendasamtakanna krefst þess að stýrivextir Seðlabankans verði þegar lækkaðir verulega. 9.10.2008 13:11
Menn á nokkurs konar neyðarvakt Forseti ASÍ segir menn vera á nokkurs konar neyðarvakt, ekki sé verið að huga að hugsanlegri endurskoðun kjarasamninga í ástandi sem breytist nánast frá klukkutíma til klukkutíma. 9.10.2008 13:05
Aðeins á eftir að auglýsa jarðarför peningamálastefnunnar Peningamálastefna Seðlabankans er löngu dauð og það á aðeins eftir að auglýsa jarðarförina, segir Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Viðskiptaráðherra, menntamálaráðherra og iðnaðarráðherra kalla allir eftir tafarlausri lækkun stýrivaxta. 9.10.2008 12:56
Vilja reka seðlabankastjóra Ungir framsóknarmenn krefjast þess að bankastjórn Seðlabanka Íslands verði sett af hið snarasta og stýrivextir lækkaðir í kjölfarið. Þeir beina orðum sínum sérstaklega að Samfylkingunni. 9.10.2008 12:33
Móðurfélag álþynnuverksmiðju selt að hluta Móðurfélag álþynnuverksmiðjunnar á Akureyri hefur verið selt frá Ítalíu til Þýskalands. Verksmiðjan í Eyjafirði er ekki sögð í hættu, þrátt fyrir breytt eignarhald. En hnökrar hafa komið upp milli félagsins og verðandi starfsmanna. 9.10.2008 12:24