Innlent

Neytendasamtökin krefjast þess að stýrivextir verði lækkaðir

MYND/GVA

Stjórn Neytendasamtakanna krefst þess að stýrivextir Seðlabankans verði þegar lækkaðir verulega.

Háir stýrivextir þjóni engum tilgangi miðað við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu og eru til þess fallnir að auka enn á þann vanda sem heimili jafnt sem fyrirtæki standa frammi fyrir.

Á vef samtakannna er þeim tilmælum beint til allra að standa sem fastast gegn verðhækkunum enda bitni vaxandi verðbólga illa á heimilunum. Sá vandi sem heimilin standi gagnvart sé það mikill að stjórnvöldum, bæði ríkisvaldi og sveitafélögum, auk seljenda vöru og þjónustu beri að standa gegn verðhækkunum og hagræða í rekstri sínum í stað þess að auka vandann með því að hækka verð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×