Innlent

Mótmæli við Seðlabankann í hádeginu

MYND/GVA

Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan Seðlabankann í hádeginu þar sem þess verður krafist að stjórn Seðlabankans segi af sér. Hrafnkell Orri Egilsson stendur að mótmælunum ásamt vinkonu sinni sem er í Frakklandi og finnur fyrir þeirri óreiðu sem er í gjaldeyrismálum landsins.

Hugmyndin kviknaði eftir hádegi í gær. „Okkur var bara nóg boðið. Hún er reið og leið yfir ástandinu og okkur finnst tímabært að þeir sem hafa gert mistök axli ábyrgð á ástandinu. Það er grafalvarlegt ástand í gjaldmiðilsmálum og sorglegt að þjóðin hafi beðið skipbrot þrátt fyrir að búið hafi verið að vara við þessu," segir Hrafnkell.

Hann segir að krafist verði þess að öll stjórn Seðlabankans segi af sér og axli þannig ábyrgð á mistökum sínum í peningamálastjórn. „Við lítum þannig á að það séu góð skilaboð til erlendra aðila að það sé verið að vinna í því að endurreisa trúverugleika í íslenska stjórnkerfinu," segir Hrafnkell og segir það gott fyrsta skref að skipa einhvern í stjórn seðlabankans sem sé hæfur og njóti trausts.

Safnast verður saman við styttuna af Ingólfi Arnarsyni kl. 12 og rölt yfir að torginu fyrir framan Seðlabankann. Nallinn verður sunginn og gjallarhorn verður til staðar fyrir þá sem taka vilja til máls. Aðspurður hvort hann eigi von á fjölmenni í mótmælunum segir Hrafnkell að fjölmargir hafi þegar skráð sig á Facebook-síðu mótmælanna. Þar hafa 200 manns staðfest komu sína. „Við viljum að fólk fái tækifæri til þess að tjá tilfinningar sínar og fái útrás fyrir reiði eða leiða eða eitthvað annað," segir Hrafnkell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×