Innlent

Sendi börn áfram á leikskóla þrátt fyrir kreppu

Stjórn Félags leikskólakennara vill ekki að foreldrar hætti að senda börn sín á leikskóla vegna fjárskorts. Leikskólastjórar eru hvattir í ályktun stjórnar félagsins til að vera á varðbergi og grípa inn í ef grunur er um að foreldrar neyðist til að segja upp leikskóladvöl sökum fjárhagserfiðleika.

Leikskólakennarar hvetja rekstraraðila leikskóla til að tryggja að börn hafi fullan og óskertan aðgang að leikskólanámi þrátt fyrir tímabundna fjárhagslega erfiðleika.

Þá er því beint til skólastjóra og kennara í leikskólum að sjá til þess að leikskólinn sé griðastaður barna þar sem þau geta dvalið við leik og nám og notið leikskólasamfélagsins án þess að þurfa að hlusta á umræður eða verða fyrir áreiti af nokkru tagi vegna þeirra óvenjulegu aðstæðna sem blasa við í íslensku efnahagslífi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×