Fleiri fréttir

Eldur í gróðri við Kárastaði

Slökkvilið og lögregla frá Selfossi voru kölluð út vegna elds í gróðri í nágrenni við Kárastaði hjá Þingvöllum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var fjöldi manns kallaður til vegna eldsins en hann hafi svo reynst vera minniháttar.

Flugvél Iceland Express bilaði í Barcelona

Ein af MD 90 vélum Iceland Express flugfélagsins bilaði í Barcelona og því eru aðeins þrjár af MD 90 vélum félagsins nothæfar. Þetta hefur orsakað talsverða röskun á flugi hjá Iceland Express.

Fólskuleg líkamsárás á Þjóðhátíð

Karlmaður um tvítugt varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Vestmannaeyjum um hálftvö leytið í nótt. Maðurinn sagðist í samtali við Vísi hafa verið að dansa við stóra sviðið þegar þrír menn hafi komið að honum. Hann hafi verið tekinn kverkataki og snúinn niður.

Um 10 þúsund manns á landsmóti UMFÍ

Ellefta unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn var sett í gærkvöldi að viðstöddu fjölmenni. Talið er að um 10 þúsund gestir séu á unglingalandsmótinu og hafa þeir aldrei verið fleiri.

Forsetinn hafði ekki samráð við ríkisstjórn um för á Ólympíuleika

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafði ekki samráð við ríkisstjórn þegar hann ákvað að þiggja boð um að vera viðstaddur ólympíuleikana í Peking. Þetta kemur fram í viðtali við forsetann í Fréttablaðinu í dag, í tilefni af embættistöku hans í gær.

Töluverður fjöldi á Akureyri

Skemmtanahald á Akureyri, þar sem útihátíðin Ein með öllu er haldin, fór vel fram í nótt og bárust engin alvarleg mál á borð lögreglunnar. Töluverður fjöldi fólks er í bænum og var þung umferð fram á nótt, en hún gekk stórslysalaust fyrir sig. Einnig var rólegt á tjalstæðum bæjarins.

Um 12 þúsund manns á Þjóðhátíð

Mikill mannfjöldi er á þjóðhátíð í Eyjum og telur lögreglan að um tvö þúsund fleiri gestir séu í Herjólfsdal en í fyrra en þá voru þeir um tíu þúsund.

Ógnuðu fólki með golfkylfum

Tveir menn í Húsafelli urðu ósáttir vð samferðarfólk sitt í nótt, höfðu í hótunum, skölluðu fólk og ógnuðu fólki með golfkylfum. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi beittu þeir þó ekki kylfunum gegn neinum. Mennirnir voru færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu.

Hráskinnaleikur á stjórnarheimilinu

Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, segir að í ljósi ákvörðun umhverfisráðherra að umhverfismat eigi að fara fram vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka verði ráðherra og ríkisstjórnin að skýra mál sitt gagnvart landsmönnum.

BSRB mótmæla uppsögnum á Keflavíkurflugvelli

Níu starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli hefur verið sagt upp störfum. Um er að ræða starfsmenn sem sinnt hafa vopnaleit og öryggisvörslu. „Þetta eru slæmar fréttir", sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB í tilkynningu frá bandalaginu, en hann óttast að meira kunni að vera í pípunum bæði á Keflavíkurflugvelli og jafnvel hjá öðrum lögregluembættum.

,,Fullt af unglingum sem eru að gera góða hluti"

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hófst fyrr í dag Þorlákshöfn og fer fram núna um verslunarmannahelgina. Þar eru samankomin ríflega 1200 ungmenni hvaðanæva af landinu á aldrinum 11 til 18 ára.

Þingmaður VG segir Geir ónauðsynlegan

Geir Haarde, forsætisráðherra, er ónauðsynlegur, að mati Árna Þórs Sigurðsson. Hann segir ástandið í ríkisstjórnarliði Geirs og þingflokki vera lítið skárra en í borgarstjórnarflokknum. ,,Hann á að fara frá völdum, hans tími er liðinn," segir Árni Þór á vefsíðu sinni.

Umferð gengur vel

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gengur umferðin vel og hingað til hefur verið stóráfallalaus. Umtalsverð umferð hefur verið frá Reykjavík í dag og í kvöld. Líkt og fyrr ár hefur mikil umferð verið um Suðurlandsveg og Vesturlandsveg.

Vefsíða gegn áfengisauglýsingum opnuð

Fyrr í dag opnuðu Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum heimasíðu þar sem gefur að líta margskonar fróðleik svo sem greinar, fréttir og dóma sem tengjast áfengisauglýsingum.

Ekki hrifinn af vinningstillögunni

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að vinningstillaga að Listaháskóla Íslands falli ekki nógu vel að götumynd Laugavegar en hann telur æskilegt þeirri mynd verði haldið. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Gríðarleg umferð um land allt

Gríðarleg umferð hefur verið á landi, legi og í lofti í dag vegna verslunarmannahelgarinnar. Umferðin hefur gengið stórslysalaust fyrir sig.

Ólafur settur í embætti í fjórða skipti

Ólafur Ragnar Grímsson sór embættiseið sem forseti Íslands í fjórða skipti í dag. Forsetinn hvatti þjóðina til bjartsýni þótt á móti blási í augnablikinu.

Þórunn: Ekki að tefja

Umhverfisráðherra þvertekur fyrir að hún sé að tefja fyrir fyrirhuguðum álversframkvæmdum á Bakka með nýlegum úrskurði um að setja framkvæmdir þeim tengdum í sameiginlegt umhverfismat. Forsætisráðherra segir ríkisstjórnarsamstarfið ekki í hættu. Álverið muni rísa.

Þrjú bílslys í Reykjavík í dag

Þrjú tölvuert alvarleg bílslys urðu í Reykjavík í dag. Fimm voru fluttir á slysadeild, þar af einn talsvert slasaður, eftir fjögurra bíla árekstur á Hafnarfjarðarvegi rétt fyrir klukkan hálf fjögur í dag.

Útsvar Hreiðars þenur út pyngju borgarsjóðs

Hreiðar Már Sigurðsson er með lögheimili í Reykjavík sem þýðir að hann greiðir rúmlega 96 milljónir króna í útsvar til sveitarfélagsins. Verður það að teljast kærkominn upphæð í borgarsjóð Reykjavíkur.

Íslendingar bjórþyrstir um verslunarmannahelgi

Miklar annir eru nú í Vínbúðum á höfuðborgarsvæðinu, enda er vikan fyrir verslunarmannahelgi ein annasamasta vika ársins í verslununum, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR.

Fartölvu með mastersritgerð stolið af japönskum stúdent við HÍ

Fartölvu var stolið af japanska stúdentnum Jun Morikawa fyrir utan HÍ á dögunum. Tölvan inniheldur mastersritgerð Jun sem hann hugðist skila í byrjun september. Mikil vinna er fyrir bí ef Jun endurheimtir ekki fartölvuna en hann ætlar eftir sem áður að ljúka mastersnámi sínu þrátt fyrir áfallið.

Verður líklega næststærsta Þjóðhátíðin frá upphafi

Straumur fólks liggur nú til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð og eru allar ferðir með Herjólfi sem og öll flug full að sögn Sigurðs Bragasonar eins af skipuleggjendum hátíðarinnar. „Venjulega eru um 9000 manns á Þjóðhátíð en við teljum að 10 þúsund manna markið verði sprengt í ár," segir Sigurður.

Utanríkisráðherra heiðursgestur á Íslendingadögum í Gimli

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verður heiðursgestur og fulltrúi ríkisstjórnarinnar á Íslendingadeginum í Gimli í Kanada að þessu sinni sem og á Íslendingahátíð í Mountain í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum.

Beltið hrundi af Dorrit

Talsverður mannfjöldi er saman kominn á Austurvelli til að fylgjast með því þegar Ólafur Ragnar Grímsson sver embættiseið að nýju.

Tungl gekk fyrir sólu í morgun

Í morgun var svokallaður deildarmyrkvi fyrir sólu sjáanlegur á Íslandi en þá gengur tunglið að hluta til fyrir sólu frá okkur séð. Á sama tíma var almyrkvi á sólu sýnilegur í norðuhluta Kanada, Grænlandi, Síberíu, Mongólíu og Kína.

Brotist inn hjá Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu

Bífræfnir þjófar brutust inn á heimili athafnahjónanna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur á Sóleyjargötu og létu þar greipar sópa á neðstu hæð hússins. Sonur þeirra var sofandi heima og hreinsuðu þjófarnir hæðina án hans vitundar samkvæmt heimildum Vísis.

30 daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi

Albanskur karlmaður var dæmdur í 30 daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa falsað vegabréf meðferðis. Lögreglan fann vegabréfið við leit á manninum á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 22. júlí síðastliðinn.

Atlantsolía lækkar um tvær krónur

Atlantsolía lækkaði í dag verð á bensíni og dísel hjá sér um tvær krónur. Er verð nú á bensínlítranum 168,2 kr. og á dísellítranum 186,10 kr.. Kemur lækkunin til vegna heimsmarkaðsverðs á eldsneyti samkvæmt upplýsingum frá Huga Hreiðarsyni hjá Atlantsolíu.

Óskar þess að SUS hætti að vernda þessa tegund af „lítilmagna“

Ögmundur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB, segir að lykillinn að því að koma í veg fyrir ofurlaun bankamanna og annarra sé upplýsingaflæði. Þess vegna furðar hann sig á því að það sé eitt helsta hugsjónaverkefni SUS, Sambands ungra sjálfstæðismanna, að banna aðgang að skattskrám.

Forseti ASÍ: Á ekki líknarorð yfir kjörin

Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að kjör tekjuhæstu bankamanna séu komin úr öllum takt við íslenskt samfélag en ellefu tekjuhæstu bankamennirnir voru samtals með hátt í fjóra milljarða í tekjur á síðasta ári.

Farið yfir marga áratugi á Akureyri

Fjölskylduhátíðin á Akureyri verður með nýstárlegu móti þetta árið þar sem uppákomur og skemmtanir bera brag af hinum ýmsu áratugum síðustu aldar.

Dorrit í dýrindis skautbúningi

Dorrit Moussaieff forsetafrú mun klæðast forláta skautbúningi við embættistöku forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar í dag. Í tilkynningu frá forsetaskrifstofu kemur fram að búningurinn hafi verið saumaður árið 1938 af Jakobínu Thorarensen, annálaðri hannyrðakonu. Hann var saumaður á Jósefínu Helgadóttur eiginkonu Skúla Guðmundssonar fyrrum alþingmanns, ráðherra og kaupfélagsstjóra í Húnavatnssýslu.

Innanlandsflug gengur vel

Hjá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að flug hafi gengið vel í morgun. Fjölmenni er samankomið í flugstöðvarbyggingu Reykjavíkurflugvallar og margir að bíða eftir flugi til Vestmannaeyja.

Allt fullt í Húsafelli

,,Svæðinu er lokað," segir Sigríður Snorradóttir, staðarhaldari í Húsafelli, en þar er tjaldstæðið orðið yfirfullt og veður afar gott. Sigríður biður fólk um að leggja ekki land undir fót í Húsafell því vísa þarf fólki frá sem leitar eftir því að tjalda á svæðinu.

Ákvörðun umhverfisráðherra enn gagnrýnd

Jón Gunnarsson þingmaður Sjáflstæðisflokksins sagði í viðtali við Ísland í bítið í morgun að ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra um að meta skuli umhverfisáhrif álvers við Húsavík og tengdra virkjana, í sameiningu, stangist á við grundvallaratriði í stefnu Sjáflstæðisflokksins.

Ekið á sex ára dreng á Akureyri

Ekið var á sex ára dreng á tjaldstæðinu að Hömrum á Akureyri um kvöldmatarleitið í gærkvöldi og var hann þegar fluttur á sjúkrahúsið.

Sjá næstu 50 fréttir