Fartölvu með mastersritgerð stolið af japönskum stúdent við HÍ Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 1. ágúst 2008 16:21 Fartölva af þeirri gerð sem stolið var af Jun.
Fartölvu var stolið af japanska stúdentnum Jun Morikawa fyrir utan HÍ á dögunum. Tölvan inniheldur mastersritgerð Jun sem hann hugðist skila í byrjun september. Mikil vinna er fyrir bí ef Jun endurheimtir ekki fartölvuna en hann ætlar eftir sem áður að ljúka mastersnámi sínu þrátt fyrir áfallið. Jun hefur búið hérlendis í sjö ár og stundað nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur unnið að mastersritgerð sinni frá því á síðasta ári. „Að kvöldi 18. júlí var ég staddur niðri í háskóla að sinna ákveðnum erindum tengdum ritgerðinni minni og lagði bílnum mínum fyrir utan Odda. Þegar ég hafði lokið erindum mínum snéri ég aftur út í bíl en mér til mikillar skelfingar sá ég að búið var að brjótast inn í bílinn og stela ferðatölvunni minni sem innihélt mastersritgerðina mína og margar aðrar persónulegar upplýsingar sem eru mér ómetanlegar," útskýrir Jun. Klárar ekki á réttum tíma Jun segir að hann hafi einhver afrit af ritgerðinni en gagnatapið er samt sem áður gríðarlegt. Jun gerir ekki ráð fyrir að geta skilað ritgerðinni á tilsettum tíma fái hann ekki tölvuna aftur. Hann er samt sem áður ákveðinn í að ljúka námi sínu hérlendis og er strax byrjaður að vinna aftur að ritgerðinni. „Stór hluti lífs míns er samt horfinn." Háskólinn getur lítið hjálpað til þegar atvik af þessu tagi ber að garði en Jun hefur einnig haft samband við lögreglu. „Þeir sögðu mér að þeir hafi orðið varir við tölvuna á netinu en hún var eingöngu tengd við eitthvað þráðlaust net í mjög stuttan tíma og gátu því ekki rakið hana," segir Jun. Ferðatölva Jun er tveggja ára gömul Toshiba Satelite með raðnúmerið 17261931Q. Jun lofar veglegum fundarlaunum hverjum þeim sem getur komið með gagnlegar upplýsingar sem að leiða til þess að hann fái tölvuna aftur upp í hendurnar.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira