Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkissjóður hagnaðist verulega á sölu Baldurs Fjármálaráðuneytið segir að það hafi ekki geta selt ferjuna Baldur, sem sigldi á Breiðafirði, til annarra en Sæferða ehf. fyrr en eftir 2010 vegna samnings um rekstur skipsins. Hefði ráðuneytið ekki selt skipið hefði verðmæti þess orðið lítið við lok þess tíma. 26.2.2008 16:49
Gaukur mun líklega áfrýja Sigurmar K Albertsson, lögmaður Gauks Úlfarssonar, segir að meiri líkur en minni séu á því að dómi yfir Gauki Úlfarssyni umbjóðanda sínum verði áfrýjað. Hann segist í samtali við Vísi hafa af því áhyggjur að dómurinn muni gefa fordæmi í málum sem þessum en Gauki var í héraðsdómi í dag gert að greiða Ómari R. Valdimarssyni 800 þúsund krónur í miskabætur og málskostnað vegna skrifa á vefsíðu sína. 26.2.2008 16:42
Máli Smáís gegn Eico vísað frá dómi Smáís, samtök myndréttarhafa á Íslandi, fyrir hönd 365 miðla stefndi fyrirtækinu Eico vegna sölu áskrifta að bresku sjónvarpsstöðinni SKY. Málinu var hinsvegar vísað frá dómi í dag. 26.2.2008 16:38
Vilja heræfingar í umhverfismat Sjö þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að heræfingar á íslenskri grundu og í íslenskri lögsögu verði háðar umhverfismati. 26.2.2008 16:30
Iðnaðarráðherra leggur fram orkumálafrumvarp Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra lagði í dag fram frumvarp sitt um orkumál á Alþingi en nýlega tókst samkomulag á milli stjórnarflokkanna um efni þess. 26.2.2008 16:01
Tuttugu milljarða króna fjárfesting Verne Holdings Verne Holdings hyggur á 20 milljarða króna fjárfestingu hér á landi í tengslum við uppbyggingu alþjóðlegs gagnavers hér á næstu fimm árum og verða óbein efnahagsleg áhrif um 40 milljarðar króna. 26.2.2008 15:34
Ný jafnréttislög samþykkt á þingi Þingmenn samþykktu í dag ný lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna sem einnig ganga undir nafninu jafnréttislögin. 26.2.2008 15:09
Ekki ástæða til þess að breyta úthlutun á byggðakvóta Sjávarútvegsráðherra sér ekki ástæðu til þess að breyta úthlutun byggðakvóta eins og formaður Framsóknarflokksins lagði til á Alþingi í dag. 26.2.2008 14:47
Hringvegurinn lokaður í Borgarnesi Hringvegurinn verður lokaður næstu þrjá mánuðina þar sem hann liggur í gegnum Borgarnes. Verið er að gera endurbætur á veginum og í staðinn eiga ökumenn að aka um merktar hjáleiðir sem hafa verið opnaðar. 26.2.2008 14:40
Bænastund vegna bílslyssins á Akranesi Bænastund verður haldin í Akraneskirkju klukkan 18:00 í kvöld vegna piltanna tveggja sem lentu í alvarlegu bílslysi í bænum í síðustu viku. 26.2.2008 14:40
Deilt um skattamál á þingi Deilt var um það á Alþingi í dag hvort skattalækkanir til handa fyrirtækjum eða almenningi væri mikilvægari nú um stundir. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn gagnrýndu vinstri - græna um að vilja aldrei lækka skatta en formaður Vinstri - grænna sagði að svigrúm ætti að nýta til þess að draga úr skattbyrði lágtekjufólks. 26.2.2008 14:18
Þvagleggskonan missti prófið Dómur í svokölluðu Þvagleggsmáli féll í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. María Bergsdóttir sem ákærð var fyrir ölvun við akstur var svipt ökuleyfi í eitt ár en auk þess fékk hún 30 daga skilorðsbundið fangelsi. 26.2.2008 13:51
Hvað eru fimm ár á milli vina? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra mun í dag eiga fund með aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna, Ban Ki Moon í New York. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að réttur áratugur sé síðan utanríkisráðherra Íslands átti síðast fund með aðalframkvæmdastjóra SÞ. Þetta mun þó ekki vera alls kostar rétt. 26.2.2008 13:50
Fangi sýknaður af fíkniefnabroti þar sem það var fyrnt Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað fanga á Lilta-Hrauni af fíkniefnabroti vegna þess að mál hans er fyrnt. 26.2.2008 13:27
Dæmdur fyrir að stela bíl og henda bíllyklunum í Ölfusá Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann til 20 þúsund króna sektar fyrir eignaspjöll og nytjastuld á Selfossi. 26.2.2008 13:15
Rannsókn á flótta Annþórs lokið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á því hvað fór úrskeiðis þegar Annþór Kristján Karlsson slapp úr fangageymslum lögreglunnar á Hverfisgötu. Stefán Eiríksson lögreglustjóri hefur sent Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra greinargerð um málið. 26.2.2008 12:50
Tollar og gjöld hamla netverslun og samkeppni Tollar og gjöld á hluti sem pantaðir eru á netinu hamla netverslun Íslendinga og um leið samkeppni við innlenda verslun, segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Hann segir það hagsmunamál fyrir neytendur að lækka gjöldin. 26.2.2008 12:42
Á annað hundrað ný störf við netþjónabú Samningar um uppbyggingu og rekstur alþjóðlegs gagnavers á gamla Varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli verða undirritaðir í dag. 26.2.2008 12:12
Utanríkisráðherra ræðir við Ban Ki-moon um jafnréttismál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundar í dag með aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, í höfuðstöðvum samtakanna í New York. 26.2.2008 12:08
Fjármálaráðherra þarf að útskýra sölu á Baldri til Sæferða Fjármálaráðherra þarf að útskýra af hverju ferjan Baldur var seld til Sæferða á 38 milljónir og seld þaðan til útlanda á 100 milljónir tveimur vikum síðar. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður frjálslyndra, segir að salan sé óvenjuleg og skýra þurfi af hverju ráðuneytið auglýsti ekki söluna samkvæmt reglum árið 2006. 26.2.2008 12:02
Loðnumælingar hafnar aftur eftir óveðursstopp Áhöfnin á hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni gat hafið mælingar snemma í morgun og horfur eru góðar í dag, en hætta varð mælingum síðdegis í gær vegna óveðurs. 26.2.2008 12:00
Þriggja mánaða fangelsi fyrir fíkniefnaakstur Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þriggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og fíkniefnabrot. 26.2.2008 11:47
Peningum stolið úr ferðasjóði félagsheimilis í Eyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú þjófnað á peningum úr ferðasjóði félagsheimilisins Rauðagerðis sem átti sér stað 18. febrúar. 26.2.2008 11:19
Vilja reglur um hámarksmagn transfitusýra í mat Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verið farli að undirbúa reglur um að hámarksmagn viðbættra transfitusýra í matvælum verði tvö grömm í hverjum hundrað grömmum af fitumagni vörunnar. 26.2.2008 11:07
Veggjaldið í Hvalfjarðargöngum lækkar Spölur, sem á og rekur Hvalfjarðargöngin hefur ákveðið að lækka veggjald fyrir staka ferð í Hvalfjarðargöngum núna um mánaðarmótin úr 900 krónum í 800 krónur. 26.2.2008 10:28
Forsetahjónin heimsækja Hrafnagilsskóla Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit á morgun, en skólinn hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2007 fyrir að hafa sinnt vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. 26.2.2008 10:18
Ekki fleiri skipt um trúfélag síðan 1996 Tæpt eitt prósent landsmanna skipti um trúfélag á síðasta ári samkvæmt tölum Hagstofunnar. 26.2.2008 09:19
Verðbólga komin í 6,8 prósent Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í miðjum febrúar 2008 hækkaði um 1,38 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Það þýðir að verðbólga er nú 6,8 prósent. 26.2.2008 09:12
Vonast til að skilyrði til loðnuleitar batni Áhöfnin á hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni hefur ekkert getað mælt af loðnugöngunni síðan síðdegis í gær vegna óveðurs. Á sjöunda tímanum fór að lægja og er vonast til að skilyrði verði þokkaleg í dag. 26.2.2008 08:59
Nemandi braust inn í tölvukerfi Hagaskóla Fjórtán ára pilti í 9.bekk Hagaskóla tókst að brjótast inn í tölvukerfi skólans og eyða öllum skrám á upplýsingavef sem nemendur og kennarar nota. Tölvukerfið liggur enn niðri. Lögreglan rannsakar nú málið en skólastjóri Hagaskóla segist líta brotið alvarlegum augum. 25.2.2008 20:20
Spurði hvort þingið hefði verið beitt blekkingum Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, spurði á Alþingi í dag hvort fjármálaráðherra hefði beitt þingið blekkingum við gerð fjárlaga fyrir jól. 25.2.2008 22:09
Safna fé til styrktar Færeyingum í nauð Opnaður hefur verið söfnunarreikningur í Glitni til stuðning frændum vorum Færeyingum vegna tjóns sem þeir urðu fyrir þegar mikið óveður gekk yfir landið um síðustu mánaðarmót. 25.2.2008 21:29
Stórhríð á Gemlufallsheiði og Steingrímsfjarðarheiði Á Vestfjörðum er snjóþekja og stórhríð á Gemlufallsheiði og slæmt ferðaveður. Þæfingsfærð og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði og ekkert ferðaveður. 25.2.2008 18:14
Dæmdur fyrir vörslu barnakláms Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á föstudag ungan karlmann í þrettán mánaða fangelsi fyrir að hafa í sinni vörslu tæplega 15 þúsund ljósmyndir og 207 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. 25.2.2008 17:52
Rafmagn komið á að nýju Nú klukkan tíu mínútur yfir fimm komst rafmagn á alla staði þar sem rafmagnslaust varð í dag. Orkuveita Reykjavíkur tilkynnti um háspennubilun klukkan 13:25 í dag. Bilunin orsakaði það að Lögbergslína datt út sem þýddi það að rafmagnsleysi varð í Hveradölum og á Bláfjallasvæði. 25.2.2008 17:24
Barroso: Evrópusambandið elskar Ísland Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir samstarf ESB og Íslands á innri markaði Evrópu vera afar náið og einstaklega gott. 25.2.2008 17:03
Ekki leitað til EFTA-dómstólsins varðandi áfengislöggjöf Hæstiréttur hefur hafnað því að EFTA-dómstólnum verði farið að veita ráðgefandi álit í máli manns sem ákærður er fyrir áfengislagabrot með því að birta áfengisauglýsingar í tímariti hér á landi. 25.2.2008 17:00
Viðgerð á öðrum spenni Sultartangastöðvar lokið Viðgerð á öðrum spenni Sultartangastöðvar er lokið eftir því sem fram kemur í tilkynningu Landsvirkjunar og verður viðgerð á hinum lokið í lok apríl. 25.2.2008 16:50
Litháar áfram í gæsluvarðhaldi vegna gruns um nauðgun Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur Litháum sem bíða þess að Hæstiréttur fjalli um ákæru á hendur þeim vegna hrottafenginnar nauðgunar. 25.2.2008 16:41
Óljóst hver skuld íslenska ríkisins er við Impregilo Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir ráðuneyti hans nú kanna hver skuld íslenska ríkisins sé við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo í ljósi nýfallins dóms vegna málsins. Ráðherra segir einnig að kanna þurfi hverjir standi á bak við skattskuldina. 25.2.2008 16:15
Fundu stolna riffla í húsi á Akranesi Þrír rifflar voru meðal þess sem lögreglan á Akranesi fann við húsleit í íbúðarhúsnæði í bænum í liðinni viku. 25.2.2008 15:53
Stýrimaður smyglskútunnar dæmdur fyrir fleiri brot Guðbjarni Traustason sem dæmdur var nú nýverið í Pólstjörnumálinu svokallaða til sjö og hálfs árs fangelsisvistar, var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur fyrir brot á umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og fyrir nytjastuld. Guðbjarna var hins vegar ekki gerð refsing í málinu þar sem um var að ræða hegningarauka við Pólstjörnudóminn. 25.2.2008 15:48
Nefnd á vegum dómsmálaráðuneytis fer yfir reglur um pókerspil Dómsmálaráðherra hefur falið nefnd á vegum dómsmálaráðuneytisins að fara nú yfir reglur sem gilda um pókerspil hér á landi. Þetta kom fram í máli hans í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 25.2.2008 15:32
Stofna hlutafélag um REYST orkuskóla Rektorar Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík skrifuðu í dag undir hluthafasamkomulag vegna REYST orkuskólans ásamt stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur. 25.2.2008 15:02
Dóttirin þorir ekki lengur í sund „Dóttir mín lenti í þessum manni í janúar og þá kærðum við. Sundlaugin hefur því vitað af honum í rúman mánuð,"segir móðir ellefu ára gamallar stúlku sem lenti í perranum í Sundmiðstöð Keflavíkur. 25.2.2008 14:54