Innlent

Utanríkisráðherra ræðir við Ban Ki-moon um jafnréttismál

MYND/Pjetur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fundar í dag með aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, í höfuðstöðvum samtakanna í New York. Þar er Ingibjörg Sólrún stödd vegna árlegs fundar kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Bent er á í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að réttur áratugur sé liðinn frá því að utanríkisráðherra landsins átti síðast fund með aðalritara SÞ. Á fundinum munu þau Ingibjörg Sólrún og Ban Ki-Moon ræða jafnréttismál og mikilvægi kynjajafnréttis sem forsendu árangurs í brýnustu verkefnum alþjóðasamfélagsins er varða frið, öryggi og loftslagsbreytingar.

Í gær kynnti Ban Ki-moon stórtækustu aðgerðaráætlun gegn kynbundnu oflbeldi sem sett hefur verið fram hjá Sameinuðu þjóðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×