Innlent

Hvað eru fimm ár á milli vina?

Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hitti forvera Ban Ki Moon í New York fyrir fimm árum.
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hitti forvera Ban Ki Moon í New York fyrir fimm árum.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra mun í dag eiga fund með aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna, Ban Ki Moon í New York. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að réttur áratugur sé síðan utanríkisráðherra Íslands átti síðast fund með aðalframkvæmdastjóra SÞ. Þetta mun þó ekki vera alls kostar rétt.

Ef leitað er í eldri fréttum ráðuneytisins kemur í ljós að þetta er ekki alls kostar rétt. Þann 30. september árið 2003 átti Halldór Ásgrímsson nefnilega fund með þáverandi framkvæmdastjóra SÞ, Kofi Annan, í höfuðstöðvum samtakanna í New York.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×